blaðið - 28.10.2006, Page 26
26 LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 2006
blaðið
Þú hefur í hugum margra vissa töf-
faraímynd. Erþað röng ímynd?
„Ég hef aldrei verið töffari og
aldrei gengist upp í þvi. Á þessum
síðustu og verstu tímum eru menn
dæmdir mikið út frá því hvernig
þeir líta út. Það má enginn vera að
því að kynna sér hvað viðkomandi
segir eða spyrja hvort honum búi
yfirleitt eitthvað í brjósti. Allir eru
vegnir og metnir út frá yfirborðinu.
Samfélagið má ekki verða þannig
að tímaleysi þegnanna verði til
þess að dagarnir endist aðeins til
að vinna og sofa. Ef listamenn eru
perlukafararnir og enginn hefur
tíma til að njóta perlanna - þá rís
samfélag sem byggir á endalausum
misskilningi, tortryggni, og þá
verður til ástand sem við þekkjum
af sögum úr þrælabúðum. Við
verðum að eiga tíma fyrir okkur
sjálf, þannig komumst við hjá því
að dæma okkur sjálf léttvæg og aðra
sem töffara.“
Er ennþá að skána
Finnst þér þú verða betri lista-
maður með árunum?
„Mér finnst ég alltaf vera að fæð-
ast upp á nýtt og þar af leiðandi hef
ég dáið mörgum sinnum. Þeir sem
bera vinnu sína á torg - lifna og
deyja á víxl. Þeir lifa ágætu og góðu
lífi ef verk þeirra fá byr og svo deyja
þeir ef viðbrögðin eru engin. Það
sama gerist ef þeir þurfa að viður-
kenna fyrir sjálfum sér að eitthvað
hafi ekki heppnast sem skyldi. En
mönnum lærist að vinsældir eru
ekki allt og varhugavert að meta
gæði verka út frá þeim staðli. Annað
er hollt, en jafnframt erfitt fyrir lista-
menn, og það er að játa á sig mistök,
en oftar en ekki þroskar þetta við-
komandi og hann verður færari í að
höndla lífsitt og list. Hlutverk mín í
lífinu eru orðin nokkuð mörg og ég
er enn að bæta við - árangur er af-
stæður - ég er nýbúinn að senda frá
mér orð á bók, ég hef unnið sem leik-
ari, upptökustjóri, tónskáld, söngv-
ari, ljóðskáld, textahöfundur, ég er
faðir, eiginmaður og nú nýlega afi
og ég tel mér trú um að ég sé ennþá
að skána.“
Ertu ánægður með öll þessi
hlutverk?
„Það segi ég ekki. Ég er eiginlega
aldrei ánægður. Ég kann alveg að
standa með sjálfum mér en ég geri
ekki meira af því en ég þarf. Ég
get verið grimmur og allt að því
óvæginn."
Við sjálfan þig?
„Já, fyrst og fremst við sjálfan mig.
Ég er það stundum við aðra en það
stendur aldrei lengi yfir. Ég sé að
mér og er þá fyrirgefið af þvi góða
fólki “
Hverju skilarþað að vera óvæginn
við sjálfan sig?
„Þegar maður er að vinna skap-
andi vinnu er sú hætta alltaf fyrir
mk
25%
afsláttur
Nicorette Fruitmint
Nýtt bragð
sem kemur á óvart
Nícorette nikótínlyf eru fáanleg án lyfseðils og eru notuó þegar reykingum er hætt eða þegar dregið er úr
reykingum. Ttl að ná sem bestum árangri skal ávallt fylgja leióbeiningum í fylgiseöli. Skammtar eru
einstaklingsbundnir eftir því hve mikíð er reykt, hvort hætta á reykingum eða draga úr þeim. Því ber aö
kynna sér upplýsingar um notkun í fylgbeðli. (fylgíseð.linum eru upplýsingar um: verkun og notkun,
varúðarregíur, míkilvægar upplýsingar sem nauðsynlegt er að lesa áður en fyfrn eru notuö, hugsanlegar
aukaverkanír og aðrar upplýsíngar. Leitið til læknis eða lyfjafræðings ef þörf er á frekari upplýsingum um
lyfin. Þeir sem fengiö hafa ofnæmi fyrir níkótíni eða öörum innihaldséfnum lyfsins, nýlegt hjartaáfall,
^óstoðuga versnandi hjartaöng, alvarleg hjartsláttarglop eöa nýlegt heilablóðfall eiga ekki aö nota Nicorette
’ nikóti'nlyf. Börn yngri en 15 ára, þungaöar konur og konur meö barn á brjósti eíga ekkiaö nota Nicorette
nikótínlyf nema að ráði læknis. Lesið allan fylgíseðílinn vandlega áður en byrjað er að nota lyfið.
6eymið fylgiseðilínn. Nauösynlegt getur verið að lesa hann síðar.
Handhafi markaðsleyfis: PfÍ2er ApS. Umboð á Íslandí: Vistor bf., Hörgatúni 2, Garðabæ; www.nicorette.is
*Tilboðsverö 2006
„Samfélagiö má ekki veröa þanttig að tímaleysi
þegnanna verði til þess að dagarnir endist aðeins til
að vinna og sofa. Ef listamenn eru perlukafararnir
og enginn hefur tíma til að njóta perlanna - þá rís
samfélag sem byggir á endalausum misskilningi, tor-
tryggni, og þá verður til ástand sem við þekkjum af
sögum úr þrælabúðum. Við verðum að eiga tímafyrir
okkur sjálf, þannig komumst við hjá því að dæma
okkur sjálf léttvæg og aðra sem töffara."
hendi að maður verði ástfanginn
af hugmynd sinni. Menn geta orðið
svo yfirmáta hrifnir af sjálfum sér
og hugmyndum sínum, að engu
tauti verður við þá komið. Mitt
í hrifnisbrímanum er hætta á
hrösun. Og ef menn detta þá er það
oft skelfilegt fall. Þeir detta beint á
andlitið og gleyma að bera fyrir sig
hendurnar. En ef menn eru meðvit-
aðir um hættuna á því að verða ást-
fangnir af sjálfum sér geta þeir kom-
ist hjá þessu. Þess vegna er ég alltaf
á varðbergi.
Það er freistandi að láta skyn-
semina vera ambátt löngunarinnar,
það er að láta löngunina ráða för,
en ég er á því að menn verði að hafa
jarðsamband. Það er allt 1 lagi að
vera í skýjunum yfir stórkostlegri
hugmynd en það er ráð að koma
niður til jarðarinnar og skoða hana
yfirvegað og kalt Þá gerist annað
tveggja, annað hvort slær maður
hugmyndina af eða hún verður
betri."
kolbrun@bladid. net