blaðið - 28.10.2006, Qupperneq 34
:TÓBER 2006
Gylltir hnappar og herklæðnaður
Áhrifa Napóleons gætir á tískupöllunum og einræðisherrann sem hingað
til hefur átt heima í sögubókum og á geðveikrahælum hefur ratað inn
sem nýjasta trendið 2006. Hattar, bláir og rauðir jakkar með bryddingum
og gullhnöppum eru hluti af þessum stíl og munið að standa beinar og
stinga annarri hendi tígulega inn undir jakkalíninguna í bjósthæð.
blaðið
Grátt í vetur
Grái liturinn er allsráðandi í vetur en vanda þarf valið
á litum sem hann er notaður með svo að þú fallir ekki
alveg inn í grámyglu hversdagsleikans. Það erfallegt
að toppa gráa stílinn með örlitlu af hlýleika eins og
fjólubláum eða gulum sem eru heitir tískulega séð.
tiska
matur@bladid.net
Dr.Hauschka
Náttúrulegar snyrtivörur
Rósakrem
fyrir þurra og viðkvæma húð
Íic.Hauu-hka
Rose
Oay Cream Orifsujchka
Lífrænt ræktuð Rósablóm og rósaber
hjálpa til við að varðveita rakann í
húðinni. Það gerir húðina silkimjúka og
veitir henni sérstaka vernd.
Rósakremið inniheldur einungis hrein
náttúruleg efni og lífrænt ræktaðar
lækningajurtir. Það er án allra kemiskra
rotvarnarefna og ilmefna. Imurinn
er úr hreinum ilmkjarnaolíum. Þetta á
einnig við um allar aðrar vörur frá
Dr.Hauschka.
dreifing:
Útsölustaðir: Yggdrasill Skólavörðustfg 16, Fræið
Fjarðarkaup, Lffsins Lind Kringlunni, Lyfja,
Maður Lifandi, Lyf og Hcilsa Kringlunni og
Heilsuhornið Akureyri.
Mossimo í Mexíkó Hönnuðurinn
Mossimo Guianulli sýndi vor- og
sumarlinuna sína á fimmtudaginn á
tískuvikunni í Mexíkó. Mossimo er
frá Ástralíu, hefur hannað í tuttugu ár,
bæði fyrir karla og konur.
A-DERMA ER SERSTAKLEGA
ÞRÓAÐ FyRIR ÞURRA,
AUMA OG VIÐKVÆMA HÚÐ
A-Derma vörurnar innihalda engin
Rjómi og lykkjufall
Sigrún Baldursdóttir er
einn af þeim fatahönnuð-
um sem kynna verk sín
í dag á hönnunarmara-
þoni sem fram fer í Lista-
safni Reykjavíkur. Hönnunarmara-
þonið gengur undir nafninu Rjómi
og er ætlað að kynna íslenska hönn-
uði og það sem þeir eru að fást við.
Sigrún útskrifaðist vorið 2005 frá
Listaháskóla íslands og í dag ætlar
Sigrún að fjalla um hönnunarlínu
sem heitir Lykkjufall og samanstend-
ur af peysum sem henta vel fyrir kon-
ur sem eru með börn á brjósti.
„Fyrir ári síðan fékk ég styrk frá
Nýsköpunarsjóði námsmanna og
hef notað þann styrk til að vinna að
verkefni sem ég var búin að ganga
með í maganum í svolítinn tíma.
Verkefnið er hönnun á fatnaði sem
hentar vel fyrir konur sem eru með
börn á brjósti. Flíkurnar er hægt að
opna á auðveldan hátt en margar kon-
ur kannast við að það getur verið ve-
sen að gefa brjóst og erfitt að finna
föt sem henta vel til þess. Peysurnar
ganga samt alltaf, hvort sem kona
er með barn á brjósti eður ei og þær
ganga vel á meðgöngu, sérstaklega
meðan á brjóstagjöf stendur og einn-
ig eftir að brjóstagjöf lýkur.”
Eftir að Sigrún fékk styrkinn gerði
hún skoðunarkönnun og athugaði
hvort þörfin á sérstökum fatnaði
væri til staðar. Könnunina lagði hún
fyrir á Barnalandi og á heilsugæslu-
stöðvum og útkoman var að greini-
lega væri mikil þörf fyrir vöruna.
„Síðan byrjaði ég bara að hanna.
Ég kynnti litla linu á Hönnunardög-
unum 2005 sem fékk mjög góðar við-
tökur og það voru þrjár meðgöngu-
verslanir sem tóku við hönnuninni,
Baby Sam, Tvö Líf og Móðurást, og
peysurnar hafa verið vinsælar.”
Peysurnar eru fallega hannaðar og
Sigrún segir að fyrst og fremst sé um
hönnunarvöru að ræða. Peysurnar
eru úr ullarblöndu og eru framleidd-
ar bæði hérlendis og í Kína.
Laugardaginn 4. nóvember opn-
ar Sigrún ásamt manninum sínum
nýja búð í Garðastræti en þar verða
peysurnar hennar til sölu auk ým-
issa fylgihluta ogbarnavara.
„I versluninni er ég með góða að-
stöðu til að hanna og það mun ým-
islegt nýtt bætast við í línuna þegar
nær dregur jólum, eins og kjólar og
bolir, “ segir Sigrún sem hlakkar
til að takast á við hlutverk búðareig-
anda samhliða hönnunarvinnunni.
Rýmingarsala vegna flutnings - Mikill afsláttur
Invita eldhúsinnréttingar - baðinnréttingar - fataskápar - heimilistæki o.fl.
... og ýmsar aðrar gerðir
Opið laugardag og
sunnudag kl. 10-14
Við flytjum í næstu viku
- persónulcga eUlhúsiö
Eldaskálinn I Brautarholti 3 I 105 Reykjavík
eldaskalinn@eldaskalinn.is I www.invita.com