blaðið


blaðið - 18.11.2006, Qupperneq 15

blaðið - 18.11.2006, Qupperneq 15
blaðið LAUGARDAGUR 18. NÓVEMBER 2006 15 Bandarískur hagfræðingur: Friedman allur Vindasamt á Kjalarnesi: Strætó lagði ekki í rokið Almenningssamgöngur milli Akraness og Reykjavíkur lágu niðri í fyrradag vegna mikilla vindhviða á Kjalarnesi. Strætó bs. tók þá ákvörðun að það væri ekki áhættunnar virði að standa í fólksflutningum þarna á milli á meðan veðráttan væri á þennan veg. Þórhallur Halldórsson, deildar- stjóri fraþegaþjónustu hjá Strætó bs„ segir að það sé stefna fyrir- tækisins að þegar vindhviður á Kjalarnesinu fari upp fyrir 34 metra á sekúndu fari vagninn ekki af stað. Vindhviðurnar fóru upp í 42 metra á sekúndu. Þórhallur segir að Skagamenn skilji vel þessar ráðstafanir Strætó og því beri lítið á kvört- unum vegna þessa. Ánægðir með íslendingana Gagnkvæm ánægja ríkir milli íslenskra og erlendra starfs- manna sem vinna að byggingu álvers Alcoa á Reyðarfirði. Þetta kemur fram í niðurstöðum könn- unar sem Alcoa lét gera meðal starfsmanna sinna. Tæplega 70 prósent erlendra starfsmanna segja það hafa verið ánægjulega reynslu að vinna með Islendingum og 75 prósent íslendinga segja erlenda starfs- menn hafa reynst sér vel. Kaupmannahöfn: Hótel verður reist í Tívolí Nýtt hótel verður opnað í Tívolí í Kaupmannahöfn árið 2010. Breski arkitektinn Norman Foster vann samkeppni um teikn- ingu byggingarinnar. 102 metra hár turn mun standa upp úr byggingunni og verður væntanlega eitt helsta kennileiti borgarinnar. Bygg- ingin rís á horni Tívolísvæðisins sem snýr að Ráðhústorginu. Hún verður um tuttugu þúsund fermetrar að stærð og verður þar að finna 150 hótelherbergi og fimmtíu íbúðir. Bandaríski hagfræðingurinn Milton Friedman er allur. Hann lést í San Francisco á fimmtudag, 94 ára gamall. Friedman var einn áhrifa- mesti hagfræðingur nýliðinnar aldar og hafði mikil áhrif á stjórn- málamenn eins og Margréti Thatc- her og Ronald Reagan. Friedman var oft kallaður æðsti- prestur peningamagnssinna, en það er sá skóli hugsunar innan hag- fræðinnar sem leggur mikla áherslu á tengsl peningamagns sem er í umferð í hagkerfinu við verðbólgu. Fram til þess tíma þegar Friedman tók að vekja athygli á hugmyndum sínum lögðu hagfræðingar mesta áherslu á skoða tengslin milli at- vinnustigs og verðbólgu. Framlag Friedmans til hagfræð- innar var ekki eingöngu tæknilegt. Hann var einnig mikilvirkur tals- maður hugsjóna frjálshyggjunnar og óþreytandi við að benda á hvernig ríkisvald brýtur á frelsi ein- staklinga og kæfir frumkvöðlastarf- semi í þjóðfélögum. Friedman beitti sér einnig fyrir því að herskylda væri lögð niður í Bandaríkjunum. En hann var ákaflega stoltur af framlagi sínu í þeirri baráttu. Milton Friedman fæddist í New York árið 1912. Hann var lengi pró- fessor í hagfræði við Chicago-há- skóla og ásamt því að rita fjölda bóka var hann ráðgjafi tveggja for- seta, Richards Nixons og Reagans, í. efnahagsmálum. HRINGUR TANKADOS EFTIR DAN BROWN FRA HOFUNDI ^^■YKILSINS ' BJARTUR

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.