blaðið


blaðið - 18.11.2006, Qupperneq 16

blaðið - 18.11.2006, Qupperneq 16
blaði Útgáfufélag: Stjórnarformaður: Ritstjóri: Fréttastjórar: Ritstjórnarf ulltrúi: Árogdagurehf. Sigurður G. Guðjónsson Sigurjón M. Egilsson Brynjólfur Þór Guðmundsson og Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir JanusSigurjónsson 16 LAUGARDAGUR 18. NÓVEMBER 2006 blaðið LEfT STtNPilH EíW MTiJt W>TuflMScK>ía'RrLoKfcNl/v(. Síwsr snsTTU hak/s í tíMbúíkjjld/i á H>h-oMturlam>í EíKHVFrS SrfivflR jS MilM REfWRO/i^ltoC HúSAV'ÍK<-in. Þjófur Stundum virðist iðrunin aðeins í orðum, ekki í gjörðum eða skilningi á því sem menn hafa gert af sér. Einhvern veginn þannig virðist það vera með Árna Johnsen. Þegar hann sagði í viðtali í fréttum Sjónvarps í vik- unni að hann iðraðist þeirra tæknilegu mistaka sem hann hefði gert. Tæknilegu mistökin voru að hans mati væntanlega fjárdráttur í opin- beru starfi, umboðssvik í opinberu starfi og mútuþægni í opinberu starfi. f það minnsta hljómaði hæstaréttardómurinn yfir Árna frá árinu 2002 þannig að hann hefði gerst sekur um öll þessi brot. Þetta kallar hann tæknileg mistök. Árni Johnsen var ekki ákærður, sakfelldur og læstur inni fyrir tækni- leg mistök. Hann var læstur inni fyrir að vera þjófur. Ef hann skilur það ekki er ekki furða að fólki bregði og tortryggi rétt hans til veru á Alþingi. Ungir sjálfstæðismenn brugðust fljótt við og skömmuðu hann fyrir yf- irlýsingar sínar. Að þeirra mati lék ekki nokkur vafi á að hann hefði gerst sekur um „alvarleg og mjög ámælisverð afbrot“ en ekki „tæknileg mistök". í yfirlýsingu sinni sögðu ungir sjálfstæðismenn meðal annars: „Þátt- takendur í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi hafa nú veitt Árna Johnsen annað tækifæri til að sýna að hann geti staðið undir því trausti sem kjósendur sýna kjörnum fulltrúum. Fyrsta skrefið í að endurvinna traust flokksmanna og almennings í landinu er að iðr- ast fyrri mistaka af einlægni og koma fram af auðmýkt og virðingu. Ef Árni Johnsen tekur sæti á Alþingi munu fjölmiðlar og aðrir fylgjast vandlega með störfum hans þar. Ætla má að embættisstörf hans verði í meira mæli undir smásjánni en gildir um aðra þingmenn. Standi Árni Johnsen undir þeim auknu kröfum sem til hans verða gerðar hefur hann nýtt tækifærið og lagt grunninn að því að endurheimta það traust sem hann glataði við áðurnefnd afbrot.“ Af orðum Árna í viðtalinu hjá Sjónvarpinu í vikunni má ráða að hann hafi ekkert lært. Það er mjög slæmt. Þó maður ætli Árna ekki að hann brjóti aftur af sér er það mjög slæmt þegar stjórnmálamaður sem eitt sinn hefur verið sakfelldur fyrir „alvarleg og mjög ámælisverð afbrot“, afbrot sem hann framdi í skjóli opinbers starfs sem hann gegndi, sýnir ekki meiri iðrun en þetta, og er hætt við að efasemdir vakni. Ekki svo mjög um að hann brjóti aftur af sér heldur um dómgreind mannsins. Maður sem kallar alvarleg afbrot „tæknileg mistök“ er hvorki góð fyr- irmynd né sérlega traustvekjandi hluti af löggjafarvaldinu. Það á ekki að útiloka menn frá opinberum störfum vegna þess að þeir hafi brotið af sér og afplánað dóm. Það á hins vegar að krefjast þess að þeir sjái að sér og játi brot sín, ekki sem „tæknileg mistök" heldur sem aíErot, hrein og klár lögbrot. Þar til hann gerir það getur hann ekki ætlast til að hann njóti trausts. Brynjólfur Þór Guðmundsson Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson Ritstjórn & auglýsingar: Hádegismóum 2,110 Reykjavík Aðalsími: 510 3700 Símbréf á fréttadeild: 510 3701 Símbréf á auglýsingadeild: 510 3711 Netföng: bladid@biadid.net, frettir@bladid.net, auglysingar@bladid.net Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins PENZIM ÍSLENSK NÁTTÚRUVARA UNNIN Ú R SJÁVARRÍKINU UMHVERFIS ÍSLAND Dr. Jón Bragi Bjamason, prófessor í lífefnafræði, hefiir unnið að rannsóknum og þróun Pensímtækninnar um áratuga skcið og er hún nú einkaleyfisvarin um allan heim. Penzim fyrir húðina, liðina og vöðvana PENZIM er hrein, tærog litarlaus náttúruvarabyggðá vatnien ekki fitu. PENZIM inniheldur engin ilmefni, litarefni eða gerviefni sem geta valdið ofnæmisviðbrögðum. PENZIM inniheldur engarfitur, oílureða kremblöndursem geta smitaö og eyðilagt flíkureðarúmfót. PENZIM PENZIM Kc^nctwrtng GliL WtTH AJJ. N’ATLRAI. St n.R AGTtVJ MAMNCfiaÓlfö Aíhvn<rd íAl» fc Body (Urx r>«atu4 MoiMur.rtngfa LOTION Wfrit ALL NATURAl AdvawnlSWnfeltody t«c rtwi. VtrHwuir HiOjt & PENZIM Penzim fæst í apótekum og heilsubúðum um land allt. IMIMMMMBBMBMMMBPB penzím.ÍS Islenskudagurinn „Dagur íslenskrar tungu“ er ný- liðinn. Jafnvel nafngiftin felur í sér þá upphafningu, sem ég held að reynist málinu síst til framdráttar. Eða finnst einhverjum (sem ekki drekkur reglulega te í Norræna hús- inu, gengur í fótlaga skóm eða heldur að hann sé skáld) uppskrúfað orðfar aðlaðandi? Mér heyrðist raunar í út- varpsviðtali við Njörð P. Njarðvík, hinn nýbakaða handhafa jónasar- bikarsins í íslensku innanhúss, að hann væri fremur á því. Ekki er það betra stofnanamálið, sem furðumargir virðast ímynda sér að geri texta á einhvern hátt virðu- legri, nú eða „faglegri" eða bara eitt- hvað annað en ótínd alþýðan notar í fánýti sínu dagsdaglega. Ef maður fyndi óhugnaðinn aðeins í rituðu máli hjá opinberum starfsmönnum væri ástandið kannski þolandi, en einkageirinn fylgdi illu heilli eftir og nú verð ég æ oftar var við þetta hrognamál hjá Jóni og Gunnu, sem maður hefði haldið að væri ekki í smithættu. Það notar ósköpin ekki hversdags, en ég tek eftir því þegar önnur hver sjónvarpsstöðin stingur hljóðnema upp í aumingja fólkið til þess að spyrja frétta eða álits. Þá setja margir sig í einhverjar stell- ingar, fara að tala um aðila og ferli frekar en fólk og aðferðir. Ofmælt hnignun Alla mína ævi hef ég þurft að hlusta á fólk, sem hefur haft áhyggjur af hnignun íslenskunnar, en samt verð ég nú ekki var við annað en að flest fólk geti talað hana skammlaust þegar á þarf að halda. Sérstaklega þegar það skammast (sem er kannski ástæðan fyrir því hve mörgum finnst Steingrímur J. Sigfússon bera af öðrum þing- mönnum í málnotkun að ég segi ekki málflutningi!). Eitt tíndi Njörður þó til, sem ég var honum hjartanlega sammála um, en það var að orðaforði hefði jafnt og þétt rýrnað á undanförnum áratugum. Hann rakti það helst til þess að menn læsu ekki jafnmikið og áður og það held ég að sé líka hárrétt hjá honum. En ég ætla ekki að kenna síbyljunni, erlendu sjónvarpsefni eða tölvuleikjum um. Þarna hefur menntakerfið nefnilega brugðist í einu og öllu. Hvað þurfa grunnskóla- g| AÉ Viðhorf Andrés Magnússon börn að lesa margar bækur á skóla- göngu sinni? Alvörubækur — ekki námsbækur — á kjarnyrtri og góðri íslensku? Ætli þær séu ekki 3-4 alls og þá ekki fyrr en undir lok grunn- skóla. I stað þess, að kenna börnum málið með því að lesa, skrifa og tala, er dýrmætustu námsárunum gereytt í málfræði, setningafræði og ámóta ömurð. Er einhver viðvar- andi skortur á málfræðingum, sem mér er ókunnugt um? Erlendir ógnvaldar Menn tala varla um íslenskuna án þess að minnast á aðsteðjandi hættur og þá er enskan vinsælasti ógnvald- urinn. Ég hef raunar alltaf verið fremur efins um þá tilgátu og held að hættulegasta málmengunin komi enn frá dönsku eða skandinavísku. Vissulega sletta menn mikið á ensku, en þær slettur eru alltaf augljósir að- skotahlutir, norrænu áhrifin eru hins vegar lymskulegri og leynast betur, enda skyldleikinn miklu meiri. En ensk áhrif finnast og jafnvel þar sem síst skyldi. í góðri trú fást margir við að smíða nýyrði um sérhvert hug- tak og hvern hlut. Þar eru fremstar í flokki íðyrðanefndir, málstöðvar og þess háttar þing, en þetta starf er ein- att á miklum misskilningi byggt, mis- skilningi á eðli málsins. Þorsteinn heitinn Gylfason, sem var afbragðsþýðandi og íslensku- maður auk alls hins, sem honum var til lista lagt, benti á að íslenskan þyrfti ekki orð um hvern hlut, því merking orðanna felst ekki síður í samhengi þeirra. Þannig gefum við þeim merkingu eftir þörfum fremur en að þurfa að eiga eitt og einstakt orð yfir sérhvern hlut og hugtak. Kaffibolli breytist þannig í öskubolla með því einu að drepið sé í sígarettu í honum. Allir skilja orðið, en ætli nokkrum detti i hug að senda seðil um það til Orðabókar Háskólans? Þess vegna finnst mér merkilegt að Námsgagnastofnun (www.nams. is) gengst fyrir samkeppni um ný- yrðasmíð, þar sem auglýst er eftir ís- lenskum orðum yfir tíu ensk hugtök, sem talsvert er slett hér. Ég fæ ekki séð að nokkurt þeirra feli í sér merk- ingu, sem ekki er þegar til orð y fir á ís- lensku, sum eru þegar í notkun, önnur eruyfirfærðrar merkingar en myndu hæglega skiljast. Eigum við ekki að huga betur að endurnýtingunni? Höfundur er blaðamaður. Klippt & skorið eir eru ekki allir jafnstórtækir og Eggert Magnússon og Björgólfur Guðmundsson, vaentanlegirkaupendur West Ham, viðskipta- mennirnir sem áhuga hafa á íþróttum. Ás- geir Þór Davíðsson, Geiri á Goldfinger, keypti markmann fyrir Hhandboltalið HK og nú segja Framarar að Eng- ilbert Runólfsson hafi borgað fimm millj- ónir og keypt þannig Helga Sigurðsson frá Fram og til Vals. Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks eru margir undrandi og ekki alls kostar sáttir með hversu mikið Fram- sóknarflokkurinn og áhangendur hans fá í meirihlutasamstarfinu í Reykjavík, meðan full- trúar Sjálfstæðisflokks- ins láta sig ekki einu sinni dreyma um að verða settirí vel launuð störf þrátt fyrir að vera hluti af stærsta flokki borgarinnar. Nýráðning varaborgarfulltrúans, Óskars Bergssonar, í starf á vegum hafnarinnar leysti úr læðingi fýlu hár og þar í stóra flokknum og þykir mörgum sem samstarfsflokkurinn sé að fá mikið fyrir lítið. Ekki er annað að sjá en að sundurlyndi sé meira áberandi hjá Frjálslynda flokknum en frjálslyndi. Koma Jóns Magnússonar til flokksins og málstaður hans og einkum og sér í lagi varaformannsins og þingflokksformanns- ins, Magnúsar Þórs Hafsteinssonar, hefur stuggað við Margréti Sverrisdóttur framkvæmdastjóra sem hefur haft á orði að verði málstaður þeirra félaga Jóns og Magn- úsar ofan á segi hún sig úr flokknum. Það þarf að lofta út á þessu heimili og áhugafólk um stjórnmál bíður. Breytinga er að vænta, og það á næstu dögum.

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.