blaðið - 18.11.2006, Síða 28

blaðið - 18.11.2006, Síða 28
28 LAUGARDAGUR 18. NÓVEMBER 2006 blaöið Ferðalög og falsanir Sumarið 1938 tók Carl Christensen, danskur ríkisborgari, á leigu hús- næði þar sem Nýja bifreiðastöðin hafði áður verið. Eftir að bifreiða- stöðin flutti stóð húsnæðið tómt að mestu en eftir varð ýmiskonar dót, þar á meðal selskinn. Carl tók selskinnið og seldi Þóroddi Jónssyni skinnakaupmanni hvert skinn á 10 krónur. Brast kjark Carl fann fleira í húsnæðinu sem hann hafði tekið á leigu, hluti sem urðu eftir þeg- ar bifreiðastöðin flutti þaðan. Meðal þess sem Carl fann voru tvö tékkhefti. Hann lét tvo félaga sína vita, Magnús Jónsson og Þór- arin Vigfússon. Þeir ræddu sín á milli hvað þeir ættu að gera við tékkheftin og varð nið- urstaðan sú að falsa tékka og var ráðagerð þeirra að gera það utanbæjar. Fyrstu ferðina ákváðu þeir að fara austur á Selfoss. Til ferð- arinnar leigðu þeir sér bíl en til þess urðu þeir að greiða 30 krónur sem Magnús lagði út fyrir. Áður en þeir lögðu af stað hafði Carl fals- að ávísun upp á þrjú þúsund krónur, útgef- andi var sagður vera Samband íslenskra sapivinnufélaga. Hann vélritaði á eyðublað- ið en handskrifaði undir nafn eins af for- stjórum Sambandsins. Þegar þeir komu á Selfoss stoppuðu þeir við útibú Landsbank- ans. Þórarinn var valinn til að fara í bank- ann og fá tékkanum skipt. Þegar Þórarinn kom inn í bankann brast hann kjark og í stað þess að reyna að fá tékkanum skipt bað hann um víxileyðublað. Þegar Þór- arinn kom út í bíl sagðist hann ekki hafa getað skipt tékkanum þar sem í bankanum hefði verið maður sem hann þekkti. Ekki var annað að gera að sinni en snúa aftur til Reykjavíkur og eyðilögðu þeir tékkann við svo búið. Núgekk það Nokkru síðar fóru þeir aftur austur á Selfoss sömu erinda. Allt var með svipuðu sniði; bíll var leigður og á leiðinni austur skrifaði Carl á nokkur tékkablöð þar til hann hafði útfyllt eitt þeirra svo vel lík- aði; hin eyðilögðu þeir. Tékkinn sem þeir ákváðu að nota var að fjárhæð 1.384 krón- ur og sem útgefanda höfðu þeir ákveðinn mann sem að sjálfsögðu kom hér hvergi aða tékkanum og fékk afganginn í pening- um. Reyndar voru þeir með tvo aðra tékka með sér, annan upp á 1400 krónur og var ætlunin að Þórarinn freistaði þess að fá honum skipt í Sparisjóðnum. í Sparisjóðinn fór hann en brast kjark. Magnús var einnig með tékka en ekkert varð úr að reynt yrði að skipta honum. Næst til Akureyrar Sæmilega hafði gengið að afla fjár með þessum hætti og var ákveðið að freista gæf- unnar næst á Akureyri. Áður en til þess kom bættist fjórði maðurinn í hópinn, Ragn- reyndi að fá honum skipt en það gekk ekki. Þórarinn, Magnús og Ragnar fengu þá Carl til að hætta frekari tilraunum til tékkasölu á Akureyri. Þeir héldu til Reykjavíkur. Þegar þeir komu suður settust þeir niður til að skipta fengnum á milli sín. I fyrstu var ákveðið að Ragnar fengi 200 krónur í sinn hlut. Ragnar var ekki sáttur við það, taldi sig eiga að fá fullan hlut á við hina. Úr varð að þeir létu hann fá 100 krónur til viðbótar, samtals 300 krónur. Eftir aö Landsbankinn á Selfossi og Útvegsbankinn, bæöi í Keflavík og á Akureyri, kærðu til lögreglu hófst rannsóknin. nærri. Nafn framseijanda var út í bláinn. Þegar þeir komu á Selfoss varð úr að Carl færi í bankann. Nú gekk allt að óskum, tékkanum var skipt. Ágóðanum, að frá- dregnum kostnaði, skiptu þeir jafnt á milli sín. Félagarnir ákváðu fleiri ferðir. Næst skyldi halda til Keflavíkur. Áður höfðu Carl og Magnús séð þegar Stefán Þorláksson bóndi fyllti tékka í Xfengisverslun ríkisins og náð niður reikningsnúmeri hans. Áður en þeir fóru til Keflavíkur útfyllti Karl nokkra tékka þar sem hann notaði reikningsnúmer Stefáns bónda og skrifaði nafn hans undir. Úr varð að þeir hugðust nota tékka að fjárhæð 400 krónur. Þegar til Keflavíkur kom fór Þórarinn inn í verslun og keypti sér þar stígvél sem kostuðu 22 krónur. Hann greiddi með fals- ar Pálsson. Þeir lögðu af stað föstudaginn 2. september. Fyrsta dag ferðarinnar komust þeir i Hvalfjörð. Á laugardeginum komust þeir norður á Blönduós og aðfaranótt mánu- dagsins gistu þeir hjá skyldfólki Ragnars. Það var síðan á mánudag að þeir komu til Akureyrar. Nú voru þeir betur búnir en áð- ur; höfðu keypt sér stimplakassa og stimpl- að nöfn þriggja fyrirtækja á nokkra tékka; Samband íslenskra samvinnufélaga, Heild- verslunin Hekla og Smjörlíksgerðin. Þegar þeir voru komnir til Akureyrar skrifaði Carl á nokkur tékkaeyðublöð. Eitt þeirra fór Þórarinn með í Útvegsbankann og fékk tékkanum skipt en hann var að fjár- hæð 1897 krónur. Magnús var með tékka upp á 190 krónur þar sem nafnið Stefán Bergmann var notað sem útgefandi. Magn- ús fór með tékkann í verslun þar sem hann Rannsókn hefst Eftir að Landsbankinn á Selfossi og Út- vegsbankinn, bæði í Keflavík og á Akur- eyri, kærðu til lögreglu hófst rannsóknin. Grunur beindist strax að Carli. Hann játaði strax og benti á félaga sina. Þeir játuðu allir aðild að svikunum. Ragnar sagðist hafa ætl- að að halda sig utan við málið, hann hefði eftir umhugsun tekið við peningunum en ætlað að geyma þá. Fjórmenningarnir gátu allir skilað nokkru fé og Þorsteinn Þorsteinsson, kaup- maður í Keflavík, fékk aftur stígvélin sem greidd höfðu verið með fölsuðum tékka. í aukarétti voru þeir dæmdir; Carl til að sæta átján mánaða betrunarhússvinnu, Þórarinn og Magnús í tveggja ára betrunar- hússvinnu og Ragnar í fangelsi til fjögurra mánaða. Refsing þess síðastnefnda var skil- yrt héldi hann almennt skilorð. Þá voru þeir allir dæmdir til að greiða skaðabætur til Landsbankans og Útvegsbankans. Hæstiréttur staðfesti refsinguna sem aukaréttur hafði dæmt fjórmenningana til. Allir fila Delfí Nýr, mjúkur, ferskur ostur

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.