blaðið - 21.12.2006, Síða 6
6 FIMMTUDAGUR 21. DESEMBER 2006
blaöiö
4 lítra flíspoki
VC 5200 / VC5300
■ Afl: 1800/2000 w
■ Hepa 12 sía
■ Sérlega nett
■ Hæöarstilling
áröri
■ 3,3 Itr poki
HEPA 12 sía
hreinsar 99,5%
óhreininda
A 2204 / A 2604
■ Sýgur blautt og þurrt
■ Einnig fyrir útblástu
■ 18 / 25 Itr tankur
VC 6100/VC 6200
■ Afl: 1800/2000 w
■ HEPA 12 sía
■ Hæöarstilling á röri
■ Aukahlutir
Snura dregst mn
k^
ÞRÓUNARAÐST00
Fjórðungur til Malaví
Nær fjórðungur af framlögum Þróunarsamvinnustofnunar á næsta ári fer til
verkefna í Malaví. Þau framlög nema alls 280 milljónum króna en alls kosta
verkefni á vegum stofnunarinnar 1.200 milljónir króna á næsta ári. 150 milij-
ónir fara til Úganda og litlu minna til Namibíu. 130 milljónir verða notaðar í
Mósambík, tæpar 100 milljónir í Srí Lanka og 70 milljónir fara til Níkaragúa.
INNLENT
Biðstaða á strandstað
Stjórnarformaður Nesskipa
segir aðgeröir í biðstöðu og
að líklegt sé að skipið verði
hlutað sundur í fjörunni.
Veðurskilyrði hamla þvi'að
SKEIFAN 3E-F ■ SlMI 581-2333 • FAX 568-0215 • WWW.RAFVER.IS
Aðgerðir á strandstað í biðstöðu:
Rífa skipið líklega
í fjöruborðinu
■ Ósköp lítiö hægt aö gera ■ Hættum ekki mannslífum
■ Aðstæður ekki eins og best verður á kosið
Eftir Trausta Hafsteinsson
trausti@bladid.net
„Ég held að það sé ósköp lítið sem
hægt er að gera og rólegt hefur verið
á vígstöðvunum. Ástæða strands-
ins virðist vera bilun í sjálfstýring-
unni og ekkert annað hefur komið
fram. Skaðinn er augljós þar sem
skipið er ónýtt og darraðardansinn
í kringum þetta er kostnaðarsamur
segir GuðmundurÁsgeirsson, stjórn-
arformaður Nesskipa.
Flutningaskipið Wilson Muuga
var vaktað í fyrrinótt af lögreglu- og
björgunarsveitarmönnum eftir að
það strandaði utan við Sandgerði
klukkan sex mínútur yfir fjögur að-
faranótt þriðjudags. í gær var unnið
að því að leggja viðunandi veg
niður að fjörunni og undirbúnar að-
gerðir við að tæma olíutanka skips-
ins. Veður hélt áfram að hafa áhrif
á störf björgunarmanna þar sem
mikið rok og rigning var á strand-
staðnum í gær.
Slæmar aðstæður
Umhverfisstofnun stýrir að-
gerðum varðandi losun þeirra
fjögur hundruð tonna af svartolíu
á' ' Það fer eftir að-
r n stæðum hvenær
* a, fJm hægtverðurað
hefjast handa.
V jTj s Stefán Einarsson,
y, 7 Umhverfisstofnunar
sem eru í tönkum skipsins. Stefán
Einarsson, fagstjóri framkvæmda-
og eftirlitssviðs stofnunarinnar,
segir aðstæður á strandstað stýra
því hvernig framvindan verður.
„Við urðum að bjarga fólkinu fyrst.
Síðan verður hafist handa við að
ná olíunni úr skipinu, eftir því sem
hægt er. Undirbúningur stendur
yfir og við erum í samstarfi við 01-
íudreifingu með þá aðgerð,“ segir
Stefán. „Það fer eftir aðstæðum hve-
nær hægt verður að hefjast handa,
aðstæður hér eru ekki eins og best
verður á kosið.“
Hættum ekki mannslífum
Gestur Guðjónsson, umhverfisör-
yggisfulltrúi Olíudreifingar, segir
undirbúning í gangi en bendir á
að lítil dagsbirta og veðurskilyrði
dragi úr kraftinum. Hann segir of
snemmt að segja til um hvenær haf-
ist verði handa við dælingu. „Við
erum að senda mannskap um borð
til að meta aðstæður og búnaður-
inn er kominn. Þetta er heilmikil
aðgerð og við ætlum alls ekki að
hætta mannslífum hérna,“ segir
Gestur. „Varðandi framhaldið er
best að spyrja veðurguðina. Núver-
andi veðurspá gefur ekki tilefni til
bjartsýni.“
Hlutað sundur
Aðspurður ítrekar Guðmundur
að lítið verði gert við skipið úr
þessu. Hann telur líklegt að beðið
verði eftir því að skipið þokist ofar
í fjöruna og þá verði hægt að hluta
það sundur. „1 næstu viku gæti þok-
ast eitthvað í því að vinna í skip-
inu en í raun er allt í biðstöðu og
menn að skoða aðstæður. Það eina
sem er 1 gangi er að tappa olíunni
af,“ segir Guðmundur. „Ég hef
sjálfur átt samtöl við skipsáhöfn-
ina og þar kom ekkert nýtt fram.
Skipstjórinn gegndi öllu því sem
honum var sagt og gerði allt í sam-
ráði við okkur. Nú er rannsóknar-
lögreglan að yfirheyra mennina
og teknar voru alkóhólprufur af
öllum skipverjum."
fituskert
og eggjalaus
gerir gœfumuninn
vÁÍ'/.
VOGABÆR
Sími 424 6525 www.vogabaer.is
Utigangsmenn í Reykjavík:
Fá hlý rúm og hjúkrunarþjónustu
Opna á nýtt heimili fyrir útigangs-
menn í Reykjavík á næsta ári sam-
kvæmt samkomulagi sem Magnús
Stefánsson félagsmálaráðherra og
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgar-
stjóri undirrituðu í gær. Á heimil-
inu verður boðið upp á gistiaðstöðu
fyrir tíu karlmenn en rannsóknir
benda til þess að þeir skipi yfirgnæf-
andi meirihluta heimilislausra í
Reykjavík.
Samningurinn nær til fjögurra
ára og áætlað er að félagsmálaráðu-
neytið og Reykjavíkurborg muni
samanlagt verja um 160 milljónum
til stofnunarinnar.
Fram kom í máli félagsmálaráð-
herra í gær að margt bendi til þess
að útigangsmenn eigi upp til hópa
við alvarlegan heilsubrest að stríða
og séu einnig almennt háðir áfengi
og fíkniefnum.
Á heimilinu munu útigangs-
menn meðal annars fá aðgang að
sérhæfðri heilbrigðis- og hjúkrunar-
þjónustu en ekki verða sett skilyrði
fyrir dvöl á heimilinu um að við-
komandi hætti neyslu.
Heimilislausir í Reykjavík fá gisti-
aðstöðu / Reykjavík eru nú um 50
heimilislausir einstaklingar og þá
aðallega karlmenn á aldrinum 30 til
50 ára.