blaðið - 21.12.2006, Síða 30
30
FIMMTUDAGUR 21. DESEMBER 2006
blaðið
fólk
folk@bladid.net
HVAÐ FINNST ÞER?
Er komid syndaflóð?
„Nei, þetta er alvanalegt. Höfum við ekki haft fjögur ár í hæg-
lætinu? Það er bara verið að minna okkur á að við séum orðnar
kveifar og emjum eins og krakkar þegar það blæs. Hollt að
minnast heilags Þorláks sem aldreí lastaði veður."
Geir Waagc, sóknarprestitr
í Rei/kholti í Borgarfirði
Mikið hefur verið um flóð á Suðurlandi og Norðurlandi
svo helst mætti líkja við syndaflóðið sjálft.
HEYRST HEFUR...
að hafa verið miklar um-
ræður í þjóðfélaginu um um-
deildan Kompássþátt
þar sem Guðmundur
Jónsson í Byrginu
var borinn þungum
sökum. Guðmundur
mætti í Kastljós á þriðjudags-
kvöldið til að svara fyrir sig
þar sem Sigmundur Ernir
Rúnarsson, fréttastjóri frétta-
stofu Stöðvar 2, var í sama þætti
kvöldið áður. Það fer ekki mikið
fyrir umræðum um sekt eða sak-
leysi Guðmundar á bloggsíðum,
enda virðist sem fæstir vilji
bendla nöfn sín við slíkt. Óðru
máli gildir um www.malefnin.
com enda vefur þar sem not-
endur geta tjáð sig nafnlaust. Þar
er könnun á því hvort notendur
trúa útskýringum Guðmundar í
Kastljósi og þegar þetta er ritað
eru um 63 prósent sem gera það
ekki. í umræðum á Barnalandi
virðist flestum finnast leiðinlegt
að þetta skyldi koma fram svona
stuttu fyrir jól og líta þar til fjöl-
skyldu Guðmundar.
Björgvin Halldórsson á
vafalaust góð jól framundan,
enda virðast vinsældir nýjustu
geislaplötu hans engan enda
ætla að taka. Á
plötunni eru tón-
leikar Björgvins
og Sinfóníuhljóm-
sveitar íslands
sem haldnir voru í september
síðastliðnum. Platan kom út 25.
nóvember og nú þegar hafa selst
17 þúsund eintök sem er frábær
árangur á innan við mánuði. Þó
ber að hafa í huga að um 8500
eintök voru seld í sérsölu til fyrir-
tækja og annarra aðila. Björgvin
og Sinfóníuhljómsveitin fengu
afhenta platínuplötu á þriðju-
dagskvöldið við hátíðlega
athöfn. Útgáfan inniheldur bæði
geislaplötu og DVD-mynddisk
sem þýðir að mynddiskurinn
er langsöluhæsti diskurinn sem
hefur komið út fyrr eða síðar á
íslandi.
svanhvit@bladid.net
Marteinn Þorkelsson: „Mat-
arvenjur Islendinga um jólin
hafa breyst undanfarin ár
en klassískur matur er alltaf
áberandi." BbSiSÆyþór
U Starfið mitt
Hangikjötið selst alltaf vel
Það er nóg að gera hjá Marteini
Þorkelssyni, framleiðslustjóri í
Kjötbankanum, þessa dagana enda
nokkrir dagar til jóla og landsmenn
því í óðaönn að kaupa í jólamatinn.
Marteinn segir að annríkið sé í há-
marki þessa síðustu daga fyrir jól.
„Það er ekki góð hugmynd að kaupa
kjötið of seint því það er búinn að
vera kjötskortur undanfarna mán-
uði og til að mynda er mikill skortur
á rjúpu. Það hefur verið hörgull á
grísakjöti og nautakjöti undanfarið
og ég held því að fólk ætti að hafa
vaðið fyrir neðan sig.“ Þar sem Kjöt-
bankinn er framleiðslufyrirtæki
segir Marteinn að annríkið byrji
hjá þeim í endaðan nóvember. „Við
seljum kjöt í jólahlaðborðin á veit-
ingahús og hótel. Þá kemst maður
í jólaskap þar sem við framleiðum
paté, reykjum fyrstu hangikjöts-
grindurnar og gröfum kjötið.“
Nýjungagirni í matarvali
Marteinn Þorkelsson segist telja
að matarvenjur landans um jólin
hafa breyst undanfarin ár. „Við
framleiðum ekta ameríska kalkúna-
fyllingu og eftirsóknin eftir henni er
alltaf að aukast. Neyslan á kalkúnum,
öndum og öðru fuglakjöti er því að
aukast. Eins hefur innflutningur á
dádýrum og strútakjöti aukist enda
er fólk jafnan nýjungagjarnt og vill
prófa eitthvað nýtt. Samt sem áður
er þessi klassíski matur alltaf áber-
andi, hangikjöt, hamborgarhryggur
og rjúpa,“ segir Marteinn sem sjálfur
hefur kalkún á aðfangadag. „Eg hef
kalkúninn á amerískan máta, með
sykursætri kartöflumús og öllu til-
heyrandi. Svo má ekki gleyma jóla-
hangikjötinu á jóladag en salan á því
er alltaf jafn mikil. Þótt allar þessar
nýjungar komi inn á markaðinn
selst hangikjötið alltaf jafn vel.“
Nautið vinsælt yfir áramótin
Auk þess segist Marteinn finna
fyrir því að fólk noti frekar léttari
mat um áramótin. „Kjötbankinn
er áberandi í nautakjötssölu og við
seljum meira fyrir áramótin en
fyrir jólin. Ég held að fólk sé búið
að fá nóg af salti og reyk eftir jólin.
Það vill komast í góða Wellington-
nautalund, heilsteiktar nautasteikur,
kalkúninn eða jafnvel bara gott fersk-
kryddað lambalæri. Fólk leitar því í
ferskleikann aftur.“
svanhvit@bladid.net
SU DOKU talnaþraut
6 1 5 2 8 9 7 4 3
3 9 7 1 4 6 2 5 8
2 4 8 3 5 7 6 9 1
9 6 3 4 7 8 5 1 2
4 5 2 9 1 3 8 6 7
7 8 1 6 2 5 9 3 4
i 2 9 7 6 4 3 8 5
5 3 4 8 9 2 1 7 6
8 7 6 5 3 1 4 2 9
Lausn síðustu gátu:
Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum
frá 1-9 lárétt og lóðrétt í reitina, þannig
að hver tala komi ekki nema einu sinni
fyrir f hverri línu, hvort sem er lárétt eða
lóðrétt. Sömu tölu má aukin heldur
aðeins nota einu sinni innan hvers níu
reita fylkis. Unnt er að leysa þrautina út
frá þeim tölum, sem upp eru gefnar.
Gáta dagsins:
2 9 5 4
5 7 4 8
7 9 6
5 2 9 7
3 5 9 8
9 3 1 5
7 1 6 5 3
8 2 1 6
7
eftir Jim Unger
2-26
© LaughingSlook Inlernalional Inc./dist. by United Media. 2004
Ég held að samstarf okkar sé ekki
að ganga upp, fröken Baxter.
A förnum vegi
Hvað gefurðu margar
jólagjafir?
Hlynur Rúnarsson, nemi
„Ég gef þrjár jólagjafir til þeirra
sem eru mér kærastir."
Guðrún Sonja
Birgisdóttir, nemi
„Ég held ég gefi þrettán jólagjafir."
Karl Gunnarsson,
svæðisstjóri
„Ég hef ekki hugmynd um það,
konan sér um þetta.“
Stefanía Sjöfn
Vignisdóttir, nemi
„Ég gef svona tíu jólagjafir. Gef
fjölskyldunni og vinkonum."
Vala Fanney ívarsdóttir, nemi
„Þær verða svona sex.“