blaðið - 21.12.2006, Blaðsíða 41
blaðið
FIMMTUDAGUR 21. DESEMBER 2006 41
Þingmaður stóð upp á Banda-
ríkjaþingi og sagði tímabært að
biðja Ingrid Bergman afsökunar á
þeirri fordæmingu sem hún hefði
orðið fyrir, hún myndi alltaf eiga
pláss í hjörtum Bandaríkjamanna
sem einn besti leikari samtímans.
Ingrid Bergman og Rossellini
skildu eftir sjö ára stormasamt
hjónaband. Ingrid hafði trúað því
að hjónaband þeirra myndi leiða
til farsællar listrænnar sköpunar
en svo varð ekki og vonbrigði
hennar voru mikil. Hún giftist
sænskum leikhúsframleiðanda,
Lars Schmidt. Þau skildu eftir
sautján ára hjónaband eftir að hún
komst að ástarsambandi hans við
yngri konu.
Lifði fyrir vinnuna
Einn ástmanna Ingridar, harm-
óníkuleikarinn Larry Adler, sagði
um hana: „Maður hreifst af fegurð
hennarenmannifannsteinsoghún
hefði aldrei lesið bók. Hún hafði
engan áhuga á þjóðfélagsmálum.
Ég held að Ingrid hefði tekið að sér
hlutverk í góðri kvikmynd fyrir
hvern sem var, jafnvel fyrir nasista.
Hún var mjög ákveðin kona. Hún
lifði fyrir vinnu sína. Og ég held
að enginn einstaklingur hafi verið
henni jafnmikils virði og vinnan.“
Þriðju Óskarsverðlaunin hlaut
Ingrid fyrir leik sinn í Morðinu í
Austurlandahraðlestinni og síðan
vann hún einn stærsta leiksigur
sinn í Haustsónötu Ingmars Berg-
mans. Þá var hún fárveik af krabba-
meini en heyrðist aldrei kvarta.
Örfáum dögum fyrir dauða sinn
sagði hún: „Ég er ekki hrædd við að
deyja. Líf mitt hefur verið auðugt.
Ég er sátt.“ Ingrid Bergman lést
árið 1982 á 67. afmælisdag sinn.
I
m.
21.-24 desember
UR KJÖTBORÐI
„Mér finnst líf mitt hafa verið
dásamlegt,“ sagði Ingrid Bergman
þegar hún sneri til Bandaríkjanna
eftir sjö ára fjarveru til að taka við
verðlaunum gagnrýnenda fyrir leik
sinn í Anastasíu. „Ég hef gert það
sem mér hefur fundist vera rétt. Ég
fékk hugrekki í vöggugjöf og all-
nokkra ævintýraþrá og það hefur
fleytt mér áfram ásamt skopskyni
mínu og skammti af heilbrigðri
skynsemi."
S?T ?
Kaupmannsbúðirnar
BÆJARLIND 1 • SÍMI 544 4510
Opið alla daga frá kl. 10 - 20
Hamborgarhryggur frá kr. 1.190 kg
Hóisfjalla hangilæri kr. 1.590 kg
Nautalundir kr. 3.590 kg
mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm
Oprð á Aðfangadag
til kl. 14:00
EFLIR - ALMANNATENGSL