blaðið - 05.01.2007, Page 1
265. tölublaö 3. árgangur
föstudagur
5. janúar 2007
■ MATUR
Þóra Tómasdóttir, einn umsjónar-
manna Kastljóss, segist vera í heilsu
átaki og þá kom pastauppskriftin
frá Gísla Marteini sér vel. I síða22 M
Isu- Á
A
■ FÓLK
Álfrún Örnólfsdóttir leikkona
hlakkar til komandi helgi sem hún
ætlar að nýta í slökun og hreinsun
eftir allt átið um jólin. | síða2o
FRJALST, OHAÐ & QV
Verjandi fyrrum olíuforstjóra um nýjar tillögur í efnahagsbrotamálum:
Sýnir að lögin eru óskýr
■ Ábyrgð starfsmanna fyrirtækja aukin ■ Allt að sex ára fangelsi ■ Spillir ekki dómsmáli
Eftir Höskuld Kðra Schram hoskuldur@bladld.net
Tillögur um að afnema refsiábyrgð fyrirtækja í
samráðsmálum og setja í ákvæði lög um refsingar
starfsmanna bera með sér að núverandi lög séu
alls ekki skýr þegar kemur að ábyrgð einstaklinga,
segir Ragnar H. Hall, lögmaður Kristins Björns-
sonar, eins þriggja núverandi og fyrrverandi for-
stjóra olíufélaganna sem hafa verið ákærðir fyrir
ólöglegt verðsamráð.
Tillögurnar eru hluti af skýrslu nefndar á
vegum forsætisráðherra sem fór yfir viðurlög
við efnahagsbrotum. Skýrslan var birt í fyrradag,
tæpri viku áður en mál gegn fyrrum forstjórum
olíufélaganna verður þingfest. í henni er meðal
annars lagt til að refsiábyrgð fyrirtækja verði af-
numin en að starfsmenn geti sætt allt að sex ára
fangelsi fyrir brot.
„Mér sýnist að þarna sé verið að leggja til breyt-
ingar á þeim reglum sem gilt hafa fram að þessu,“
segir Ragnar. „Kannski af því að menn hafi talið
að þær reglur séu ekki eins skýrar og sumir héldu
að þær væru.“ Ragnar hefur gagnrýnt að fyrrum
forstjórar olíufélaganna voru ákærðir með þeim
rökum að ekki séu lagaheimildir fyrir því. Helgi
Magnús Gunnarsson saksóknari vísar þessu á
bug. Hann á ekki von á að nýju tillögurnar hafi
áhrif á málareksturinn sem er framundan.
SJá einnig síðu 8
í stafgöngu í borgarlandinu Þó að nokkuð kalt hafi verið í veðri á höfuðborgarsvæðinu í gær kom það ekki í veg fyrir að margir ræktuðu líkamann utandyra. Þessi maður fór í staf-
göngu og lét engan bilbug á sér finna.
^Dýrindi fyrir einhleypa
Guðrún Theodóra gefur les-
endum Blaðsins uppskrift aö
dýrindismáltíð sem er
sérsniðin að einhleypum,
, að minnsta kosti þeim
sem nenna að elda.
Hlýnar í veðri
Hæg og suðlæg átt í nótt
og léttir til fyrir norðan, en
áfram skúrir eða slydduél
sunnan- og vestanlands.
Suðvestan 8-13 í kvöld.
Hlýnar í veðri.
VEÐUR
» síða 2
Metnaðarlaus stjórnvöld
Reynir Harðarson, einn stofnenda
CCP og stjórnarmaður í Framtíðar-
landinu, gagnrýnir atvinnustefnu
stjórnvalda harðlega sem hann
telur einkennast af metnaðar-
leysi og skorti á heildarsýn.
5 68 68 68
StórPizzam/2
áleggjum og
brauðstangir
1590 kr Sótt
700% íslenskur ostur
Mjódd • Dalbraut 1 • Hjarðarhaga 45
Rússamir koma
Sífellt fleiri rússneskir auðmenn koma
hingað til lands í skemmtiferðir og
skilja eftir sífellt hærri fjárhæðir. „Þetta
er rosalegur pakki hjá þeim og þetta
er fólk í ríkari kantinum sem hingað
kemur. Við sjáum um ferðalagið frá A
til Ö og þetta eru mjög dýrir pakkar.
Þar fyrir utan er fólkið ekkert að skera
neitt við nögl,“ segir Einar Bollason,
framkvæmdastjóri Ishesta.
Verslunar- og þjónustufólk í Reykja-
vík hefur orðið áþreifanlega vart við
Rússana og ríkidæmi þeirra. Bryndís
Sigrún Sigurðardóttir, verslunarstjóri
Rammagerðarinnar, hefur tekið eftir
aukningunni. „Ég myndi gjarnan vilja
sjá enn meira af Rússunum því þeir
kaupa mjög vel. Það lítur út fyrir að
þeir sem hingað koma séu efnaðir,"
segir Bryndís. „Þeirsitja lengi hjá
okkur og kaupa mikið af mat og drykk,“
segir Agnes Valdimarsdóttir, afgreiðslu-
kona á Café Sólon.
Acer Aspire SOSlWXMi
TILBOÐSVERÐ
svan) tmkn>
SÍÐUMÚLA 37-SIMI 510 6000
Fjarnám á vorönn 2007
Skráning fer fram 5.-12. janúar
á heimasíðunni www.fa.is/fjarnam