blaðið - 05.01.2007, Page 6
6 FÖSTUDAGUR 5. JANÚAR 2007
blaöiö
Fæðingarorlof á Hvammstanga
Vinnumálastofnun tók við starfsemi Fæðing-
arorlofssjóðs um áramót og færist afgreiðsla
sjóðsins nú til Hvammstanga. Þangað eiga
væntanlegir foreldrar að senda umsóknir sínar,
upplýsingar má fá á þjónustuskrifstofum.
Ríkissjóður fitnar
Tekjur ríkissjóðs fyrstu ellefu mánuði síðasta árs voru
34 milljörðum króna meiri fyrstu 11 mánuði síðasta árs
en árið áður, ef tekjur af sölu Símans upp á 57 milljarða
eru undanskildar. 52 milljarðar króna voru til í handbæru
fé eftir ellefu mánuði, 30 milljörðum meira en árið áður.
Fleiri fá afslátt
Allt að 4.700 ellilífeyrisþegar njóta afsláttar af fasteigna-
sköttum og holræsagjöldum í Reykjavík samkvæmt breytingum
sem borgarráð samþykkti á reglum borgarinnar í gær. Tekjuvið-
miðin hækka um 20 prósent milli ára, en ekki sex prósent líkt
og ef farið hefði verið eftir forsendum Tryggingastofnunar.
Dúndur
útsala!
Opið 10-18 virka daga
og laugardaginn 6 jan 10-16
Síðumúli 13 sími 5682870
Okkarárvissaflugukastkennsla ÍT.B.R. húsinu
Gnoðavogi 1 hefst 7. janúar kl 20:00.
Kennt verður 7., 14., 21. og 28. janúar.
Við leggjum til stangir.
Skráning á staðnum gegn greiðslu (ekki kort).
Mætið tímanlega. Munið eftir inniskóm.
Verð kr 8.500.- en kr 7.500.- til félagsmanna,
gegn framvísun gilds félagsskírteinis.
Upplýsingar veita Gísli í síma 894-2865 og Svavar í síma 896-7085
KKR, SVFR og SVH ^
120«
Vegna miðbæjar-
brunans mikla verður
lokað næstu daga.
Landsbankinn
Banki allra landsmanna í 120 ár
V____________________________________________________________________7
Breskir veðurfræðingar spá
hlýju ári. íslendingar gætu
þó lent í köldum bletti Árið
2003 var það hlýjasta á istandi
frá upphafi mælinga
Jörðin hlýnar og ísland með:
Spá hlýjasta ári frá
upphafi mælinga
■ Mikil veðursæld ■ Vaxandi meðalhiti ■ Gætum lent í köldum bletti
Eftir Höskuld Kára Schram
hoskuldur@bladid.net
Veðurfar hefur verið óvenjulega gott
hér á landi síðustu ár og litlar líkur
eru á breytingum til hins verra að
mati Trausta Jónssonar veðurfræð-
ings. Undanfarin tíu ár hafa verið
þau hlýjustu síðan mælingar hófust
og síðasta ár það ellefta hlýjasta í
Reykjavík. Breskir veðurfræðingar
hafa nú spáð því að nýbyrjað ár
verði það hlýjasta á jörðinni frá upp-
hafi mælinga.
Heitt ár
„Við höfum verið inni í hlýskeiði
og það er ekkert sem bendir til þess
að því linni,“ segir Trausti Jónsson,
veðurfræðingur hjá Veðurstofu Is-
lands. „Það geta hins vegar alltaf
komið kuldaköst af og til.“
Samkvæmt spá veðurfræðinga
hjá bresku veðurstofunni eru yfir
6o prósent líkur á því að árið 2007
verði eitt það hlýjasta á jörðinni
síðan mælingar hófust. Spáin
byggir meðal annars á aukn-
ingu gróðurhúsalofttegunda í
lofthjúpi jarðar og því að líklegt
þykir að veðurfyrirbrigðið E1
Nino muni þrýsta upp hitastigi
jarðar áþessu ári.
Síðasta ár var eitt það heitasta
í Evrópu frá því mælingar hófust
og það allra heitasta á Bretlandi.
Almennt hefur meðalhitastig
jarðar farið hægt vaxandi á undan-
förnum árum og þannig hafa tíu
heitustu ár frá upphafi öil mælst á
síðustu tólf árum.
Kaldir blettir
Trausti segir að íslendingar
muni ekki fara varhluta af vaxandi
veðursæld þó alltaf geti brugðið til
beggja vona að því leyti. „Það er
aldrei alveg alls staðar hlýtt. Það
eru kaldir blettir víðsvegar um
heiminn og við getum alveg lent í
slíkum bletti.“
Trausti bendir á að árið 1998 sem
var eitt það hlýjasta á jörðinni frá
upphafi mælinga hafi hiti á íslandi
verið um og fyrir neðan meðaltal.
„Þetta var frekar venjulegt ár hér
Getur
brugðið
til beggja
vona
Trausti Jónsson
veðurfræðingur
heima á meðan það var mjög heitt í
öðrum löndum.“
Þá segir Trausti óvíst hvort kenna
megi mengun alfarið um vaxandi
meðalhita á jörðinni. „Veður hefur
hlýnað bæði á íslandi og í heim-
inum um 0,7 gráður á síðustu 100
árum. Sólin á sjálfsagt einhvern
þátt í því en það er líklegra að hlý-
indin síðustu 30 ár séu af mann-
anna völdum.“
6,5°
6,0°
5,5°
5,0°
' 1
6,1° L - _ . .. . .. ....
5,4° 5,6° 5,4°
5,0° 5,1° 5,2° 5,' l°
4,7° 4,5° 4,5°
4,0°1
3,5° L
3,0°i-
1996 1997 1998 1999 2000 2001 2002 2003 2004 2005 2006
Heimild: Veðurstofa Islands
Vaxandi veikindi vinnandi fólks:
Veik tíu daga á ári
Starfsmenn íslenskra fyrirtækja
voru tiu daga frá vinnu árið 2005 að
meðaltali og er það nokkuð meira
en árið áður. Þetta kemur fram í
úttekt ráðgjafarfyrirtækisins ParX
sem unnin var í samvinnu við Sam-
tök atvinnulífsins.
Hættast við veikindum var op-
inberum starfsmönnum og starfs-
mönnum í upplýsingatækni og fjar-
skiptum, þeir voru frá vinnu í ellefu
daga að meðaltali. Þeir sem voru
minnst frá vinnu voru þeir sem
vinna við fjármál og tryggingar,
þeir misstu úr rúma átta og hálfan
dag vegna veikinda að meðaltali.
Arndís Ósk Jónsdóttir, mannauðs-
ráðgjafi hjá ParX, segir erfitt að
finna einhverja eina rétta skýringu
á þessari þróun: „Það er ólíklegt
að einhver ein skýring nái yfir öll
þessi fjölbreyttu fyrirtæki og starfs-
hópa sem könnunin nær til enda
ekki markmið könnunarinnar sem
slíkrar, þó eflaust verði reynt að
rannsaka þær ástæður síðar.“
Grétar Þorsteinsson, forseti ASÍ,
segist vita af skýrslunni en hann
hafi ekki kynnt sér niðurstöðurnar
ennþá. „Ég á eftir að setjast niður
með fulltrúa frá Samtökum atvinnu-
lífsins og ræða þetta betur. Við
létum gera svipaða könnun fyrir
okkur fyrir um fimm árum og það
verður fróðlegt að bera niðurstöður
ParX saman við þær.”