blaðið - 05.01.2007, Page 8
8 FÖSTUDAGUR 5. JANÚAR 2007
blaAiö
Atvinnuleysi í lágmarki
Atvinnulausum hefur fækkað um 41 prósent í
Danmörku síðastliðin þrjú ár og er atvinnuleysi nú í
sögulegu lágmarki. Október var metmánuður á síð-
asta ári en þá fækkaði atvinnulausum um 3800, en
meðaltali fækkar þeim um 2200 á mánuði.
Latir viðskiptavinir arðbærir
Líkamsræktarkeðja ein í Noregi þénar andvirði 77
milljónir íslenskra króna á ári á korthöfum sem
aldrei mæta á svæðið. Norðmenn líkt og aðrir flykkj-
ast í líkamsrækt í jánúar með háleit markmið en um
þriðjungur þeirra gefst fljótt upp og hættir að mæta.
Mæður geti unnið
Um 70 prósent japanskra kvenna hætta að vinna eftir að þær
eignast börn þar sem vinnuveitendur veita þeim sjaldan svigrúm
til að samræma vinnu og fjölskyldulíf. Þetta kann þó að vera að
þreytast því æ fleiri fyrirtæki reyna að koma til móts við mæður til
að nýta starfskrafta þeirra.
Kennsla hefst
8. janúar
Innritun og upplýsingar
í sfma 561 5620
frá kl. 12-17
www.schballett.is
BALLETTSKÓLI
éMi (SckeMng
Safnaðarheimili Háteigskirkju
Háteigsvegi • Sfmi 552 5620
Félag íslenskra listdansara
VILTU KAUPA...?
SMAAUGLYSINGAR@BUDID.NET
Samkeppnislög endurskoöuð:
Sex ára fangelsi
fyrir samráðsbrot
Ábyrgö eintaklinga á samráðsbrotum skýrö ■ Umdeild áhrif á málarekstur gegn olíuforstjórum
blaðiðs
Eftir Höskuld Kára Schram
hoskuldur@b1adid.net
Afnema á refsiábyrgð fyrirtækja í
samráðsmálum og mun hún fram-
vegis eingöngu ná til starfsmanna
samkvæmt tillögum nefndar forsæt-
isráðherra um viðurlög við efnahags-
brotum. Nefndin leggur ennfremur
til að gerðar verði breytingar á sam-
keppnislögum þannig að hægt verði
að dæma einstaklinga í allt að sex
ára fangelsi fyrir brot á þeim. Lög-
maður Kristins Björnssonar, fyrr-
verandi forstjóra Skeljungs, segir til-
lögurnar bera með sér að núverandi
lög séu alls ekki skýr hvað varðar
ábyrgð einstaklinga. Saksóknari
hjá embætti ríkissaksóknara segir
tillögurnar ekki spilla fyrir máls-
sókn á hendur forstjórum olíufélag-
anna þriggja.
Niðurfelling fyrir uppljóstranir
„Mér sýnist að þarna sé verið að
leggja til breytingar á þeim reglum
sem gilt hafa fram að þessu,“ segir
Ragnar H. Hall, lögmaður Kristins
Björnssonar. „Kannski af því að
menn hafi talið að þær reglur séu
ekki eins skýrar og sumir héldu að
þær væru.“
Tillögur nefndar forsætisráð-
herra snerta ýmsa þætti er varða
refsiábyrgð vegna brota á samkeppn-
islögum og rannsókn þeirra.
120ffl
Bankasyóm vanran.
UmsóknaKhnéf skuLu kocmn
ril Landsböpðingja pyjun Lok
ágúsrcvánaðaK. ÁnsLaunm
em 5000 knónm.
Landsbankinn
Banki allra landsmanna í 120 ár
Verjendur forstjóranna segja að ekki sé hægt að refsa ein-
staklingum fyrir brot á samkeppnislögum Mál ríkissaksókn-
ara á hendur olíuforstjórunum verður þlngfest i næstu viku.
Leggur nefndin meðal annars til
að refsiábyrgð fyrirtækja verði af-
numin og þess í stað bundin stjórn-
valdssektum. Gerð er tillaga um
að nýtt ákvæði verði sett inn í sam-
keppnislög þannig að hægt verði
að sekta starfsmenn fyrirtækja eða
dæma þá í allt að sex ára fangelsi
fyrir brot.
Þá leggur nefndin til að þeir sem
hamli rannsókn á samkeppnis-
brotum skuli sæta allt að þriggja ára
fangelsi. Á móti fá þeir sem upplýsa
um brot niðurfellingu refsingar.
Ennfremur eru ákvæði er varða
rannsókn efnahagsbrota skýrð
þannig að komið er í veg fyrir að
margar stofnanir og embætti rann-
saki sama málið samtímis.
Hefurekki
áhrlfámála-
rekstur gegn
oliuforstjórum
Helgi Magnús Gunnars-
son,.saksóknari
A
Reglurnar ekkl
skýrar
Ragnar H. Hall
hæstaréttarlögmaður
Hefur ekki áhrif
Ríkissaksóknari lagði fram
kæru á hendur núverandi og fyrr-
verandi forstjórum olíufélaganna
þriggja í síðasta mánuði. Málið
verður þingfest í Héraðsdómi
Reykjavíkur á þriðjudaginn í
næstu viku.
Ragnar Hall hefur gagnrýnt
ákæru ríkissaksóknara á þeim
forsendum að refsiábyrgð einstak-
linga í samráðsmálum sé ekki skýr
í lögum. Því sé ekki hægt að sækja
forstjórana til saka.
Helgi Magnús Gunnarsson, sem
reka mun málið fyrir hönd ríkis-
saksóknara, er á öndverðum meiði
og segir tillögurnar ekki hafa nein
áhrif á tilvonandi málarekstur.
„Það er ekki verið að ákveða refsi-
ábyrgð einstaklinganna eins og
hún hafi ekki verið fyrir hendi.“
Hópslagsmál brutust út Á gamlárskvöld brut-
ust út hópslagsmál meðal starfsmanna Impre-
■ gilo þegar leið á veislu sem þeim var haidin.
Starfsmenn Impregilo:
Hópslagsmál í veislu
Eftir Trausta Haf steinsson
trausti@bladid.net
„Ég hef heyrt að það var töluvert
um ryskingar milli manna. Menn
hafa bara misst sig aðeins og verið
þreyttir eftir daginn,“ segir Oddur
Friðriksson, trúnaðarmaður starfs-
manna við virkjunarframkvæmdir.
Starfsmönnum Impregilo við að-
göng tvö var boðið í veislu á gaml-
árskvöld að loknum vinnudegi.
Samkvæmt heimildum Blaðsins var
mikið um slagsmál þegar leið á veisl-
una. Greint hefur verið frá því að
Kínverji stakk portúgalskan starfs-
bróður sinn þrívegis.
Oddur segist ekki hafa orðið
Menn þreyttlr
eftir daginn
og misstu sig
aðeins
Oddur Friöriksson,
trúnaöarmaöur
vitni að slagsmálunum sjálfur en
hefur heyrt ávæning af þeim, Hann
telur aðstæður manna á virkjun-
arsvæðinu ekki vera þær ákjósan-
legustu yfir áramót. „Það er nú
ekkert skemmtilegur staður fyrir
fjölskyldumenn að vera á og svona
getur farið þegar nóg er veitt af víni.
Annars held ég að þetta hafi nú verið
fín veisla,“ segir Oddur.
Reykjavík:
Byrgiö og
borgin
Mbl.is Fulltrúar Samfylkingar-
innar í borgarráði Reykjavíkur
óskuðu á fundi ráðsins í dag
eftir upplýsingum um fjárhags-
leg samskipti borgarinnar og
meðferðarstofnunarinnar
Byrgisins, m.a. um hvernig farið
væri með fjárstuðning vegna
einstaklinga sem þar hafa dvalið.
I fyrirspurninni er einnig
spurt um skyldur borgarinnar til
eftirlits með starfsemi Byrgisins
og hvernig fjármunir þar hafi
verið nýttir. Þá er spurt hvernig
eftirlitinu hafi verið framfylgt.
Finnland:
Eitrað vín
drap þrjá
Mbl.is Þrír menn létust eftir
samkvæmi í heimahúsi í bænum
Kauhava í Finnlandi og leikur
grunur á að mennirnir hafi drukk-
ið eitrað áfengi. Einn maður
hefur verið handtekinn, grun-
aður um að hafa veitt áfengið.
Að sögn lögreglu fengu
fleiri gestir í samkvæminu
eitrunareinkenni. Málið er
rannsakað sem manndrápsmál.