blaðið - 05.01.2007, Síða 10
10 FÖSTUDAGUR 5. JANÚAR 2007
blaðið
40 milljónir í lykla
Stjórnendur Stokkhólmsháskóla þurftu að verja 40
milljónum króna I að skipta um lása í öllum stofnunum
skólans eftir að brotist var inn í skáp og lyklum stolið.
Brotist var inn í lyklaskáp í júlí og þurfti öryggisdeild
skólans að skipta um lása eftir það.
Obama er ekki Osama
Bandaríska fréttastöðin CNN hefur beðist afsökunar á
villu sem gerð var við vinnslu umfjöllunar um Osama
Bin Laden. Þar var spurningin: Hvar er Obama? sett
undir mynd af Osama, en Barack nokkur Obama
verður hugsanlega forsetaefni demókrata á næsta ári.
pSEHEÉÖ
Terri Irwin fær upptöku
Ekkja krókódílafangarans Steves heitins Irwins hefur nú
fengið í hendurnar eina myndbandið sem til er af dauða
manns hennar, en hann lést þegar hann var stunginn í
hjartastað af stingskötu í september á síðastliðnu ári.
Öllum afritum af myndbandinu hefur verið eytt.
w
MULTI-VIT
Náttúruleg fjölvítamín
meö steinefnum
Vilm bætitfni fynr þarhr hlendtnga
180 töflur
Inniheldur 22 valin bætiefni,
12 vítamín og 10 steinefni.
vgr*m ■■
íqíP; r\Vi heilsa
ös. V 'Íaui -hafðu þaö gott
Svíþjóð:
Abba-stjarna
skuldar skatta
Mbl.is Abba-stjarn-an
Björn Ulvaeus, á
enn í útistöðum við
sænsk skattayfirvöld.
Á síðasta ári var
hann krafinn um 86
milljónir sænskra
króna en sú krafa var
lækkuð niður í 65 milljónir. Nú
hafa skattayfirvöld krafið Ul-
vaeus um 16 milljónir sænskra
króna, ógreidda skatta fyrir
árin 2004 og 2005. Ulvaeus
hefur vefengt þessa síðustu
skattakröfu og vísað málinu
til yfirskattanefndar. Ástæðan
fyrir deilunum er flókið net
fyrirtækja sem Ulvaeus hefur
stofnað í skattaskjólum.
r
188(>
2006
Bráðnun íshellunnar opnar siglingaleið um norðurheimskautið:
Eyfirðingar vilja
næla í risahöfn
■ Viðræður á viðkvæmu stigi ■ Slegist um staðsetningu
Eftir Trausta Salvar Kristjánsson
traustis@bladid.net
Loftvarnaræfing í kvöld.
Minnum á loftvarnarbyrgið
í kjallara okkar í Lands-
bankahúsinu Austurstræti.
Landsbankinn
Banki allra landsmanna i 120 ár
J
Viðræður hafa staðið yfir í nokkurn
tíma milli kanadíska stórfyrirtæk-
isins Omnitrax og forráðamanna
Eyjafjarðar með aðkomu Valgerðar
Sverrisdóttur utanríkisráðherra. Til
stendur að byggja upp gríðarstóra
alþjóðlega umskipunarhöfn fyrir
gámaskip í Eyjafirði.
Þór Jakobsson veðurfræðingur
segir bráðnun íss við Grænlands-
haf gefa stórum flutningaskipum
kost á að sigla þar í gegnum Ishafið
til Kyrrahafs, allan ársins hring,
nokkuð sem þótti óhugsandi fyrir
aðeins tiu árum: „Með þessu á ís-
land möguleika á að verða að mikil-
vægri miðstöð alþjóðlegra siglinga-
leiða þar sem opnast fyrir styttri
vegalengdir í gegnum Ishafið."
Kristján Þór Júlíusson, fráfarandi
bæjarstjóri á Akureyri, segir viðræð-
urnar á viðkvæmu stigi: „Ég get að-
eins staðfest að fyrirtækið er kanad-
ískt og heitir Omnitrax, annað get
ég ekki gefið upp á þessari stundu,"
Halldór Halldórsson, bæjarstjóri
á ísafirði, segir mikinn áhuga fyrir
slíkri höfn á Vestfjörðum enda
séu náttúruleg skilyrði með allra
besta móti. Halldór segist bíða
eftir skýrslu sem varpi ljósi á kosti
og galla Vestfjarða sem mögulegs
hafnarsvæðis en telur fyrirfram að
kostirnir vegi þyngra en gallarnir.
Vestfirðir voru ekki taldir meðal
kosta í skýrslu sem unnin var fyrir
utanríkisráðuneytið í fyrra.
„Þeir sem unnið hafa að rann-
sóknum vegna málsins segja að eitt
skilyrðið fyrir slíkri uppbyggingu
sé alþjóðaflugvöllur ásamt góðum
hafnarskilyrðum. Það liggja fyrir
teikningar að alþjóðaflugvelli í
Dýrafirði sem unnar voru fyrir
nokkrum árum og Vestfirðir bjóða
upp á ógrynni af fjörðum sem eru
tilvaldir í slíkt verkefni. Að þeim
forsendum gefnum sé ég ekkert því
til fyrirstöðu að Vestfirðir hljóti
að teljast jafn góður kostur og hver
annar,“ segir Halldór.
Valgerður Sverrisdóttir utanrík-
isráðherra segist hafa hitt að máli
sendinefnd frá Omnitrax ásamt Krist-
jáni Þór á Akureyri og að ráðamenn
Akureyrarbæjar hafi að sama skapi
heimsótt fyrirtækið í Manitoba í Kan-
ada. Valgerður sagðist ekki geta út-
skýrt hvers vegna horft var framhjá
Vestfjörðum í skýrslunni, enda hafi
hún ekki verið tekin við ráðuneytinu
þegar skýrslan var samin.
„Ég setti hinsvegar í gang annan
starfshóp sem vinnur nú að frekari
þróun málsins og mér skilst að Vest-
firðir séu, líkt og aðrir staðir, ennþá
inni í myndinni hvað staðsetningu
umskipunarhafnar varðar,“ segir
Valgerður sem heldur ráðstefnu um
Norðurslóðamál á Akureyri í mars.
Hörður Blöndal, hafnarstjóri á
Akureyri, segir að slík höfn muni
mælast í ferkílómetrum og kostn-
©Vestfirðir hljóta
að teljastjafn
góður kostur ag
hverannar
Halldór Halldórsson
bæjarstjóri á Isafirði
Skipaði
starfshóp sem
vinnur að málinu
Valgerður Sverrisdóttir
utanríkisráðherra
ísiand gæti orðið
mikilvæg mið-
stöð alþjóðlegra
siglingaleiða
Þór Jakobsson
veðurfræðingur
aður geti hlaupið á tugum eða
hundruðum milljarða, en hinsvegar
liggi slík framkvæmd alls ekki fyrir:
„Menn mega ekki æsa sig of mikið
yfir þessu. I fyrsta lagi eru ennþá
20 til 30 ár þangað til siglingaleiðin
verður orðin það örugg að trygginga-
félögin leyfi skipum að sigla þarna
um. Einnig þarf að huga að því, að
stærð slíkrar hafnar krefst margra
ferkílómetra af sléttu undirlendi,
nokkuð sem íslenskar hafnir geta
ekki státað sig af. Þó hugmyndin sé
heillandi er hún ennþá fjarlæg."
Þrír árásarmenn:
Gáfu sig fram
Mbl.is Þrír menn sem lýst var eftir
vegna grófrar líkamsárásar í Garða-
stræti á nýársnótt gáfu sig fram við
lögreglu síðdegis í fyrradag og ját-
uðu brot sín.
Að sögn Sigurbjörns Víðis Egg-
ertssonar, yfirmanns ofbeldisbrota-
deildar lögreglunnar á höfuðborg-
arsvæðinu, telst málið upplýst, en
hann segir óhætt að álykta sem svo
að birting mynda úr öryggismynda-
vélum í fjölmiðlum hafi orðið til
þess að mennirnir gáfu sig fram.
Segir Sigurbjörn að ábendingar hafi
borist í kjölfar myndbirtinganna en
að auðvitað hafi verið farsælast að
málið leystist með þessum hætti.
Þremenningarnir réðust á tvo
menn við kínverska viðskiptasendi-
ráðið í Garðastræti 41 og segir lög-
reglan að árásin virðist hafa verið
algjörlega að tilefnislausu. Báðir
mennirnir sem fyrir árásinni urðu
misstu meðvitund. Annar maður-
inn höfuðkúpubrotnaði og liggur
á sjúkrahúsi en hinn hefur verið
útskrifaður.