blaðið - 05.01.2007, Síða 12
FÖSTUDAGUR 5. JANUAR 2007
blaðiö
UTAN UR HEIMI
Aftaka Saddams sigur
Formaður Sambandsflokksins í Færeyjum tekur
ekki undir kröfu forsætisráðherra Ítalíu um að
alþjóðlegt bann verði lagt við dauðarefsingum.
Hann segir hengingu Saddams Husseins,
fyrrum einræðisherra í Irak, sigur fyrir réttvísina.
Bílskúrssala hjá Whitney
Söngkonan Whitney Houston neyðist til að selja fjölda
persónulegra muna á næstu dögum til að geta borgað
reikninga. Meðal þess sem verður selt er fatnaður,
hljóðfæri og svipa. Þó svo Whitney hafi selt milljónir ein-
taka af plötum sínum á hún nú í fjárhagsörðugleikum.
Hafnar vestrænni menningu
Forseti Irans, Mahmoud Ahmadinejad, segir George Bush og Tony
Blair vera spillta þjóðarieiðtoga sem reyna að troða hinni gölluðu
vestrænu menningu upp á allar þjóðir heimsins. Hann segir þjóð
sína verða að boða sína sérstæðu menningu, réttlæti og trúrækni
á móti og láta ekki undan menningarlegu oki Vesturlanda.
Hraðakstur:
Stoppaður enn
einu sinni
Mbl.is Hálfþrítugur karlmaður
var stöðvaður fyrir hraðakstur
á Reykjanesbraut í Kópavogi
i fyrrakvöld. Bíll hans mæld-
ist á 139 kílómetra hraða en
á þessum kafla er leyfður
hámarkshraði 70 kílómetrar á
klukkustund. Að sögn lögreglu
hefur ökumaðurinn alloft áður
gerst sekur um hraðakstur.
Nokkru áður voru tveir
piltar um tvítugt teknir fyrir
hraðakstur. Annar var stöðv-
aður á Kringlumýrarbraut á
130 kílómetra hraða en hinn
á Hafnarfjarðarvegi á 120 kíló-
metra hraða.Á umræddum
stöðum er leyfður hámarkshraði
80 kílómetrar á klukkustund.
Líkamsárás í Keflavík:
Ofbeldi aldrei réttlætanlegt
■ Hótaöi að drepa son minn ■ Verður að taka sprenginguna alvarlega
Eftir Trausta Hafsteinsson
trausti@bladid.net
,Þetta mál lítur klárlega út fyrir að
vera lögreglumál og lögreglan mun
líklega hafa samband við okkur.
Maðurinn verður meðhöndlaður
sem meintur sakamaður og tekin
verður ákvörðun hjá okkur hvort
við munum skoða þetta sérstaklega,“
segir Hjördís Árnadóttir, forstöðu-
maður fjölskyldu- og félagsmála-
sviðs Reykjanesbæjar. I fyrradag
var maður á fimmtugsaldri kærður
í Keflavík fyrir líkamsárás gegn
fimmtán ára gömlum dreng eftir að
heimatilbú-
inni flugelda-
sprengju var
kastaðaðhúsi
mannsins.
Erna Reyn-
aldsdóttir,
móðir drengs-
ins, ítrekar að
sonur sinn hafi
ekki tekið þátt
í umræddri
sprengingu.
Hún segir að
maðurinn hafi
hótað syni sínum lífláti. „Hann var
bara á röngum stað á röngum tíma.
Auðvitað vissi hann hvað hinir
voru að gera en var sjálfur ekki
með neinar sprengjur á sér,“ segir
Erna. „Maðurinn var hræðilegur
við strákinn. Hann sagðist ætla að
drepa hann og henda honum ofan í
djúpan skurð.“
Um leið og Hjördís fordæmir
ofbeldið í málinu þá varar hún
jafnframt við því að ungmennin
sleppi alfarið með skrekkinn því
sprengjan hefði getað valdið skaða.
„Áuðvitað á enginn maður að ganga
í skrokk á öðrum
manni en spreng-
inguna verður líka
að taka alvarlega,“
segir Hjördís. „Það
er ekki ólíklegt að
við munum þurfa
að veita unga mann-
inum einhverja
aðstoð því það
getur verið hræði-
legt fyrir ungt
fólk að burðast
með svona. Allt
ofbeldi er náttúr-
lega skelfilegt.“
■ Forsíða Blaðsins í gær.
Hótaði lífláti Maður í Keflavík hefur verið
kærður fyrir iíkamsárás gegn fimmtán ára
unglingi sem hann grunaði um að hafa hent
heimatilbúinni sprengju að húsi sínu.
Allt á einum stað
Skvass
Körfubolti
Spinning / Þrektímar
Golfhermir
Tækjasalur
Ljós / Gufuböð já
Wkf
f*
20 ára 1987-2007
lArrrrMART
£kv/is&C\~}r1á(&Hrtekt
s*- ^
77< V- Gullinbrú • 577 5555
www. veggsport. is