blaðið - 05.01.2007, Page 14
blaði
Útgáfufélag:
Stjórnarformaður:
Ritstjóri:
Fréttastjórar:
Ritstjórnarfulltrúi:
Árogdagurehf.
SigurðurG.Guðjónsson
Trausti Hafliðason
Brynjólfur Þór Guðmundsson og
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
Elin Albertsdóttir
Fyrirtæki með vilja
Nefnd, sem forsætisráðherra skipaði fyrir ríflega tveimur árum, hefur
lokið störfum. Nefndin hefur nú skilað tæplega 400 blaðsíðna skýrslu þar
sem fjallað er um ný viðmið um beitingu viðurlaga við efnahagsbrotum.
Meginhlutverk nefndarinnar var að skýra betur hvenær beita eigi stjórn-
valdssektum annars vegar og öðrum viðurlögum hins vegar.
í ljósi olíusamráðsins vekur kaflinn um viðurlög vegna brota á sam-
keppnislögum mesta athygli. Ekki síst eftir ákvörðun ríkissaksóknara í
síðasta mánuði að ákæra Einar Benediktsson, forstjóri Olís, Geir Magn-
ússon, fyrrverandi forstjóri Essó og Kristinn Björnsson, fyrrverandi for-
stjóri Skeljungs, fyrir brot gegn samkeppnislögum.
Eftir að ákæran var gefin út sögðu bæði Ragnar Hall, lögmaður Krist-
ins og Gísli Baldur Garðarsson, lögmaður Einars, ákæruvaldið vera með
lögfræðilega tilraunastarfsemi. Verið væri að ákæra fyrir brot sem sam-
kvæmt samkeppnislögum vörðuðu félög en ekki einstaklinga.
Skýrsla nefndarinnar var birt í fyrradag. Tímasetningin vekur nokkra
athygli því á þriðjudaginn verður ákæran gegn forstjórunum þingfest í
Héraðsdómi Reykjavíkur. Það kæmi ekki á óvart ef verjendur forstjóranna
nýttu sér efni skýrslunnar að einhverju leyti í vörn sinni. Ragnar Hall
segir í Blaðinu í dag að honum sýnist sem verið sé að leggja til breytingar
á þeim reglum sem gilt hafi. “Kannski af því að menn hafi talið að þær
reglur séu ekki eins skýrar og sumir héldu að þær væru.”
1 skýrslunni leggur nefndin til að afnema eigi refsiábyrgð fyrirtækja við
brotum á samkeppnislögum. Viðurlögin eigi að felast í stjórnvaldssektum
sem samkeppnisyfirvöld ákveði. Nefndin telur nauðsynlegt að einstak-
lingar geti sætt refsiábyrgð vegna þátttöku í ólögmætu samráði. Slíkt
ákvæði geti haft f för með sér sterk varnaðaráhrif.
Nefndin leggur einnig til að viðurlög við refsingu starfsmanna fyrir-
tækja verði hert. í drögum að frumvarpi um breytingar á samkeppnis-
lögum hefur verið bætt við grein sem kveður á um að gerist starfsmenn
eða stjórnarmenn fyrirtækis brotlegir geti refsingin varðað allt að sex ára
fangelsi.
Ef menn hugsa málið út frá almennri skynsemi, sem þarf ekki endilega
að vera hlutverk lögmanna, þá hafa fyrirtæki ekki sjálfstæðan vilja. Það
er fullkomlega rökrétt að æðstu stjórnendur þeirra beri ekki bara ábyrgð
á rekstri fyrirtækja, heldur líka brotum þeirra. Hvort núverandi lög ná til
meintra brota forstjóranna mun hins vegar ekki koma í ljós fyrr en málið
fer fyrir dómstóla.
Það er engum vafa undirorpið að verði tillögur nefndarinannar að veru-
leika styrkist staða Samkeppniseftirlitsins og það er gott. Tímasetningin á
birtingu skýrslunnar orkar kannski tvímælis.
Trausti Hafliðason
Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson Ritstjórn & auglýsingar: Hádegismóum 2,110 Reykjavík
Aðalsími: 5103700 Símbréf á fréttadeild: 510 3701 Símbréf á auglýsingadeild: 510 3711
Netföng: bladid@bladid.net, frettir@bladid.net, auglysingar@bladid.net
Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins
510 3700
Geymdu auglýsinguna
og láttu okkur vita ef
Blaðið berst ekki
blaöi
14
FÖSTUDAGUR 5. JANÖAR 2007
blaöiö
Nú er tími fyrir
aukinn jöfnuð
Um áramótin hækkuðu komu-
gjöld mjög víða í hinu opinbera
kerfi. Heimsóknir á heilsugæslu-
stöðina eru nú dýrari en áður,
sama má segja um heimsókn til
sérfræðings, eða á slysadeildina,
allt verður nú dýrara en áður.
Sama má segja um ýmsa þjónustu
sveitarfélaga, þannig hækka alls
kyns gjöld hjá þeim, til að mynda
leikskólagjöld og gjöld fyrir þjón-
ustu við eldri borgara.
Margumtalaðar skattalækk-
anir ríkisstjórnarinnar sem hún
þreytist seint á að hrósa sjálfri sér
fyrir fara fyrir lítið þegar tekið
er tillit til allra þessara hækkana.
Breytingin er sú að nú þurfa þeir
sem síst skyldi að borga meira en
það eru þeir sem af einhverjum
orsökum þurfa að borga fyrir
læknisþjónustu. Sama má segja
um barnafólkið sem fær þarna
reikning fyrir skattalækkunum
þeirra sem mest hafa á milli handa.
Þannig hafa skattalækkanirnar
nefnilega virkað. Þeir sem hafa
mestar tekjur af fjármagnstekjum
borga auðvitað minnst eða 10 pró-
sent og jafnvel eru dæmi þess að
þeir sem eingöngu hafa fjármagns-
tekjur borgi ekkert útsvar og greiði
þannig ekkert fyrir þá þjónustu
sem þeir samt nýta sér, hvort sem
það eru leikskólar, bókasöfn eða
gatnaframkvæmdir.
Þannig hefur ríkisstjórninni
tekist að búa hér til kerfi sem ýtir
beinlínis undir misskiptinguna og
í ofanálag er hún stolt af verkum
sínum.
Framsóknarflokkurinn þar sem
margir ágætir félagshyggjumenn
hafa verið innandyra þegir þunnu
hljóði á meðan Sjálfstæðisflokkur-
Katrín Jakobsdóttir
inn hagræðir skattkerfinu í þágu
þeirra ríku en við hin, hvort sem
við erum meðaljónar eða hrein-
lega fátæk, sitjum eftir og borgum
brúsann.
Við í Vinstri grænum viljum
berjast gegn misskiptingunni. Sú
barátta snýst ekki um að banna
fólki að græða peninga eins og
sumir pólitiskir andstæðingar
okkar vilja vera láta. Hún snýst
um að stjórnvöld noti skattkerfið
til að jafna aðstæður og kjör fólks
þannig að þeir sem minnst hafa
borgi hlutfallslega minni skatta en
þeir sem mest hafa. Því er eðlilegt
að hækka skattleysismörk og per-
sónuafslátt og lækka þannig skatta
hjá þeim sem lægst hafa launin en
að sama skapi er eðlilegt að hafa
hærri skatta á þá sem græða millj-
ónir á mánuði.
Þetta er mun eðlilegri tekjuleið
fyrir ríki og sveitarfélög en að
rukka almenning fyrir þjónustu
sem á að vera sjálfsögð og eðlileg.
Leikskólinn á að vera ókeypis fyrir
öll börn og sama má segja um
þjónustu grunnskólans, hvort sem
um er að ræða skólamáltíðir eða
frístundaheimili.
Nú er tími til að brey ta áherslum
i skattamálum áður en við fjarlægj-
umst um of þau jafnaðarsjónarmið
sem hér voru lengst af ríkjandi
eftir seinna stríð. Venjulegir Islend-
ingar skilja lítið í fagnaðarlátum
ríkisstjórnarinnar yfir sjálfri sér
og skattalækkunum sínum. Það
er ekki skrýtið þegar í ljós kemur
að sá sem lengst af leiddi þessa
ríkisstjórn telur sig til helstu fá-
tæklinga landsins þar sem þing-
fararkaup sé auðvitað sérlega lágt
— eða bara hálf milljón á mánuði.
Venjulegir íslendingar hljóta að
staldra við og velta fyrir sér hvort
hagsmunum þeirra sé ekki betur
borgið með nýjum stjórnvöldum
þar sem Vinstrihreyfingin - grænt
framboð mun skipa lykilhlutverk
og tryggja aukinn jöfnuð í íslensku
samfélagi. Sá tími er kominn.
Höfundur er varaformaður Vinstri grænna
Klippt & skorið
Mismæli geta verið neyðarleg og oft
skelfilegt fyrir blaðamenn að lenda
í þeim, hvað þá
forseta íslands. Til eru mörg
fræg mismæli blaðamanna ,/
sem gjarnan eru rifjuð upp í R j .
góðum partium en þau urðu L jaA
öll til löngu fyrir tima svo-
kallaðra bloggara sem nú eru margir orðnir
nokkurs konar varðhundar mismæla og prent-
villna, svo rétterað passa sig beturen nokkurn
tíma fyrr. Þannig skýrir Steingrímur Sævarr
Ólafsson, fyrrverandi blaðamaður, frá frétt f
Fréttablaðinu í fyrradag þar sem rætt er um
forseta Englands. Guðmundur Magnússon,
sagnfræðingur og fyrrverandi blaðamaður,
gerirsvo gott betur og kemst að því að leiðara-
höfundur Morgunblaðsins hafi talað um for-
seta Englands 18. apríl 2004. Það er sem sagt
hægt að „gúgla" gömlu mismælin - æi, æ!
Og Guðmundur bendir líka á mismæli
(forsetans í áramótaávarpi og segir:
„Undir lokávarps sínsá
nýársdag komst forseti (slands,
Ólafur Ragnar Grímsson,
svo að orði: „I Laxdæla sögu
sagði Ketill hængur þegar
börn hans reyndu að teyma
hann með sér til (slands: „( þá veiðistöð kem
eg aldregi á gamals aldri." Glöggir áheyrendur
tóku strax eftir því að forsetinn hafði annað
hvort mismælt sig eða mislesið fornsöguna.
Það er Ketill flafnefursem segir hin tilvitnuðu
orð (Laxdælu. Enda byrjar sagan á þessum al-
kunnu orðum: Ketill flatnefur..." Guðmundur
bendir á í lokin að búið sé að leiðrétta ræðuna
á vef forsetans en eftir situr villa í prentuðum
Mogga og í Sjónvarpinu.
Þi
að dugði ekkert minna
)en breski leikarinn
John Cleesetil að aug-
lýsa nafnbreytingu á KB banka.
Sagt er að það hafi kostað bankann að minnsta
kosti 80 milljónir króna. Það hefði hins vegar
verið sniðugt fyrir bankann að gera skoðana-
könnun meðal (slendinga áður en til þess kostn-
aðar var gripið og spyrja hvort þeir þekktu
leikarann. (fjölmennu boði sem skrifari var (á
jóladag kom nafn þessa leikara upp en aðeins
þrír gestir vissu hver maðurinn væri!
elin@bladid.net