blaðið - 05.01.2007, Side 20
20 FÖSTUDAGUR 5. JANÚAR 2007
blaöiö
HVAÐ FINNST ÞÉR?
Var álbragð af Kryddsíldinni?
„Nei, það var ekki álbragð af Kryddsíldinni enda vissi ég ekki að þetta
væri í boði Alcans, Ég gat þess vegna ekki sett neitt samasemmerki þar
folk@bladid.net ámiiii."
Guðjón A. Kristjánsson,
þingntaður Frjálslynda flokksins
Kostun Alcans á Kryddsíldinni, áramótaþætti Stöðvar 2,
hefur sætt harðri gagnrýni og þykir málið ósmekklegt.
Auglýsingar Alcans um jólin hafa verið með margvislegu
móti og áberandi.
HEYRST HEFUR...
Reynir Traustason sagði
upp störfum hjá Birtíngi
i sumar sem leið þar sem
hann var ósáttur við yfirgang
aðalritstjór-
ans, Mikaels
Torfasonar.
Reynir stofn-
aði eigið tíma-
rit með Baug
sem bakhjarl
en nú hefur
það fyrirtæki selt Reyni og fé-
laga. Mun því tímaritið fsafold
flytja í höfuðstöðvar Birtíngs
við Lyngháls áður en langt
um líður en það hefur verið
til húsa á Laugavegi. Mörgum
finnst þetta nokkuð skondið
búmmerang. Nú bíða menn
spenntir eftir að sjá hvort
Nanna Rögnvaidar og félagar
sem stofnuðu tímaritið Bistro,
eftir að hafa yfirgefið Gestgjaf-
ann og Birtíng, flytja líka aftur
á gamla vinnustaðinn sinn en
Nanna hefur fagnað því mjög á
bloggsíðu sinni að vera laus við
strætóferðirjil og frá vinnu ...
Sumir bankar eru duglegri
en aðrir að færa viðskipta-
vinum sinum gjafir fyrir jólin.
KB banki, sem nú heitir Kaup-
þing, sendi viðskiptamönnum
sínum forláta brauðkörfu
sem átti að vera hönnuð af
einhverjum fínum listamanni.
Gjöfin leit út eins og stór
hattur eða húfa úr þykku efni.
Viðtakendur vissu hins vegar
ekkert hvað þetta væri fyrr
en þeir höfðu lesið miða sem
KB BANKI
fylgdi með þar sem því var lýst.
Heyrst hefur að margir hafi
gert sér ferð í bankann til að
skila þessari gjöf og enn aðrir
fleygt henni. Þarna hefði bank-
inn getað sparað sér einhverja
aura... eða jafnvel lagt upphæð
gjafarinnar inn á bankareikn-
inga viðkomandi viðskiptavina
og fengið meiri þökk fyrir...
A förnum vegi
Helguð slökun og afslöppun
Álfrún Örnólfsdóttir leikkona
hlakkar til komandi helgi sem hún
ætlar að nýta í slökun og hreinsun
eftir jólin. „Jólin eru búin að vera
hugguleg en ég er samt ekki frá því
að ég sé aðeins eftir mig eftir allt
kjötátið og það að vaka lengi fram
eftir.”
Jólin hjá Álfrúnu hafa verið anna-
söm þar sem hún leikur í verkinu
Bakkynjur sem sýnt er í Þjóðleik-
húsinu og var frumsýnt á öðrum
degi jóla. Auk þess er hún að æfa
nýjan barnarokksöngleik í Hafnar-
fjarðarleikhúsinu. Verkið er nýtt og
heitir Abbababb en höfundur þess
er Doktor Gunni.
Hátíðlegt í leikhúsinu
„Það má segja að annar í jólum
hafi verið aðaldagurinn hjá mér
um þessi jól. Aðfangadagur og
jóladagur voru eiginlega aðeins
að flækjast fyrir og það var ekki
fyrr en eftir frumsýninguna sem
ég náði fyrst að slappa af. Annars
fannst mér injög hátíðlegt að sýna
í leikhúsinu á þessum tíma.“
í leikritinu leikur Álfrún eina
af bakkynjunum og hún er inni á
sviðinu allan tímann, dansandi og
syngjandi. „Þetta er skemmtilegur
hópur og mikill kraftur og átök á
sviðinu. Eftir á líður mér svolítið
eins og ég hafi hlaupið maraþon.
Ég fékk nudd í jólagjöf sem kemur
sér mjög vel og það er aldrei að vita
nema ég nýti mér það nú um helg-
ina. Kannski ég fari í jóga á eftir til
þess að jafna orkuflæðið.“
Sól íandlitið
Ef veðrið verður gott sér Álfrún
fyrir sér að kíkja í sundlaugina.
„Það væri ljúft, sérstaklega ef sólin
skín, að fá smá sól í andlitið og
ferskt loft. Síðan gæti ég hugsað
mér að taka smá gönguferð um
svæði toi og skoða íbúðir í leiðinni.
Ég er að leita mér að íbúð þessa
dagana og ef ég finn einhverja sem
mér líst á ætla ég að nota helgina til
þess að skoða. Eg vil helst ekki búa
neins staðar annars staðar en í mið-
bænum og það má segja að ég sé al-
ger miðbæjarrotta.”
Álfrún hefur ekki tekið neinar
ákvarðanir úm hvort stefnan verður
tekin á næturlífið nú um helgina.
„Ef ég næ að slappa vel af þá er aldrei
að vita hvað ég geri.”
Tekurðu mark á
völvuspám?
Þórhildur Einarsdóttir, nemi
„Nei, þetta er bara skemmtun."
Pétur Rafnsson, nemi
„Nei, ég hef lesið spá en tek ekk-
ert mark á henni."
Aðalsteinn Gunnarsson, nemi
„Nei, mér er bara alveg sama
um slíkt."
Alfrun Ornolfsdottir leikkona
ætlar að slaka vel á um helgina
Þarf að jafna sig eftir jólin.
Mynd/Eyþór
SU DOKU talnaþraut
1 7 8 6 4 9 3 5 2
5 4 3 2 7 8 9 6 1
9 2 6 1 3 5 4 7 8
2 9 4 7 1 3 6 8 5
8 1 5 9 2 6 7 4 3
6 3 7 5 8 4 1 2 9
3 5 2 4 9 7 8 1 6
7 6 9 8 5 1 2 3 4
4 8 1 3 6 2 5 9 7
Lausn síðustu gátu:
Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum
frá 1-9 lárétt og lóðrétt í reitina, þannig
að hver tala komi ekki nema einu sinni
fyrir í hverri linu, hvort sem er lárétt eða
lóðrétt. Sömu tölu má aukin heldur
aðeins nota einu sinni innan hvers níu
reita fylkis. Unnt er að leysa þrautina út
frá þeim tölum, sem upp eru gefnar.
Gáta dagsins:
4 6 1 7 5 8 9
2 1
7 5 6
2 5 6
3 7 6 2 8 9 5
7 2
9 3 1 5
1 3 4 6
8 7 1 9
eftir Jim Unger
3-16
© LaughingStock Inlernational IncVdisl by Umted Media 2004
Ég sé hér að þú hefur tilhneigingu til
að smjaðra. Hvernig lýsir það sér?
Sigurður Logi Snæiand, nenii
„Nei, mér finnst þetta bara bull.“
Berglind Bjarnadóttir, nemi
„Voða lítið, kannski eitthvað
aðeins."