blaðið - 05.01.2007, Síða 22
22 FÖSTUDAGUR 5. JANÚAR 2007
blaðið
-
KoU
kolbrun@bladid.net
1
Uppskriftin aö ham-
ingjunni er góð heilsa
og slæmt minni.
Ingrid Bergman
Afmælisborn dagsms
ROBERT DUVALL LEIKARI, 1931
WALTER MONDALE VARAFORSETI, 1928
Kristín Bjarnadóttir
Tangó í
aðalhlutverki
Ég halla mér að þér og flýg
- Engin venjuleg ferðasaga
eftir Kristínu Bjarnadóttur kom
út um áramótin og inniheldur
fimm frásagnarljóð.
Ekkert af Ijóðum bókarinnar Ég
halla mér að þór og flýg hefur
áður birst á prenti, en i fyrra
kom út smásagan Heimsins
besti tangóari á íslensku og
spænsku í sömu bók. Þetta er
því önnur bók Kristínar í ritröð
um dans, þar sem tangóinn er í
aðalhlutverki.
Bókin fæst hjá höfundi á
kynningarverði - netfangið er
kb.lyng@gmail.com.
Metsölulistinn - innlendar bækur
Almanak Háskóla fslands
Háskóli fslands
2.
10.
Hannes - Nóttin er blá mamma
Óttar M. Norðfjörö
Almanak Þjóðvlnafélagsins
Hið íslenska þjóðvinafélag
Biblían á 100 mínútum
Ugla
Þriðja táknið
Yrsa Sigurðardóttir
Yulelads
Brían Pilkington
Lost in lceland
Sigurgeir Sigurjónsson
Stafsetningarorðabókin
Dóra Hafsteinsdóttir ritst
Ripley's - Ótrúlegt en satt!
Sögur útgáfa
Bústaðir / lcelandic Cottages
Elsa Ævarsdóttir o.fl.
I
lll
Listinn var gerður út frá sðlu dagana 27.12.06 - 02.01.07 í
Pennanum Eymundsson og Bókabúð Máls og menningar.
Metsölulistinn - erlendar bækur
1 The Templar Legacy
Steve Berry
2 Whirlpool
Elizabeth Lowell
j Crusader Gold
David Gibbins
( Mary, Mary
James Patterson
5 Valley of Silence (Cirde Trilogy 3)
Nora Roberts
, Eragon & Eldest Boxedset
Christopher Paolini
7 Insight World Travel Encyclopedia
Insight Editions
3 TheCeil
Stephen King
j Drop Dead Gorgeous
Linda Howard
Fashion History
Akiki Fukai
10.
Llstínn var gerður út frá sölu dagana 27.12.06 - 02.01.0/ í
Pennanum Eymundsson og Bókabúð Máls og menninga.
Líf og ástir skáldjöfurs
llnokkrar ævisögur
hafa verið skrifaðar um
breska skáldjöfurinn
Thomas Hardy. Nú hefur
ein bæst við og kannski
er hún sú besta. Bókin Thomas Har-
dy: The Time-Torn Man eftir Claire
Tomalin hefur fengið frábæra dóma
og þar er dregin upp ný mynd af Har-
dy. f fyrri ævisögum hefur honum
verið lýst sem fremur þunglamaleg-
um persónuleika, en Tomalin segir
hann hafa verið fullan af andríki og
gleði allt til dauðadags þrátt fyrir að
hafa átt sína dimmu daga.
Hardy er einn merkasti skáld-
sagnahöfundur Viktoríutímans og
eitt besta ljóðskáld 20. aldar. Meðal
þekktustu skáldsagna hans eru Borg-
arstjórinn í Casterbridge sem kom út
í íslenskri þýðingu fyrir jól, Jude the
Obscure og Tess, en um síðastnefndu
bókina var sagt að hún hefði valdið
fjölskyldudeilum og leyst upp vin-
áttusambönd, svo sterka og ólíka af-
stöðu tóku einstaklingar til hennar.
Skáldið og konurnar
Tomalin er þekktur ævisagnahöf-
undur og hefur meðal annars skrif-
að bækur um Shelley-hjónin, Jane
Austen og Samuel Pepys. Hún hefur
hlotið nokkur bókmenntaverðlaun
fyrir vandaðar bækur sínar. Bókin
um Hardy veldur engum vonbrigð-
um. Tomalin er góður penni og hef-
ur lifandi áhuga á þeim
persónum sem hún skrif-
ar um. Bók hennar hefst
á sérlega sterkum kafla
um dauða Emmu, fyrri
eiginkonu Hardys, og
áhrif þess missis á skáld-
ið. Hjónabandið hafði
verið langt og afar óham-
ingjusamt og síðustu árin
töluðust hjónin vart við.
Samt var það svo að þegar
Emma lést lét Hardy setja
lík hennar í líkkistu sem
hann geymdi við rúm
sitt í þrjá daga og þrjár
nætur þar til jarðarförin
fór fram. Síðan tók hann
til við að yrkja ljóð um þann löngu
liðna tíma þegar þau Emma voru
ung og ástfangin.
Eftir áhrifaríka byrjun víkur To-
malin síðan að upphafinu, fæðingu
Hardys og sambandi hans við for-
eldrana og þá sérstaklega móðurina
sem var sérstök kona. Hún hafði ung
orðið þjónustustúlka og gekk síðan í
hjónband eftir að hafa orðið barns-
HARDY
THE TIME-TORN MAN
hafandiaðThom-
as litla. Móðir
Hardys ráðlagði
seinna börnum
sínum að ganga ekki í hjónaband
því það myndi hefta freísi þeirra.
Kannski hefði Hardy betur farið að
ráðum móður sinnar.
Einmana eiginkonur
Fyrri eiginkona Hardys var Emma,
lífleg og hreinskilin ung kona sem
langaði til að verða rithöfundur.
Hún hafði mikinn áhuga á skrif-
um eiginmanns síns en hann átti
vanda til að loka sig af í eigin heimi
og sinna skriftum. Hún hafði ekki
aðgang að þeim heimi sem gerði að
verkum að bil myndaðist milli þeirra
hjóna. Barnleysi setti einnig mark á
hjónabandið. Fyrri ævisagnaritarar
Hardys hafa sagt Emmu hafa verið
kjánalega og grunnhyggna konu
og margir vina rithöfundarins áttu
erfitt með að þola hana. Tomalin
dregur hins vegar upp samúðarfulla
mynd af konu sem var lokuð af uppi
í sveit i Dorset og hafði ekkert við
að vera annað en að hugsa um kött
sinn, bródera, versla og skipa einni
eða tveimur þjónustustúlkum fyrir
verkum.
Þegar Hardy var 65 ára gamall
kynntist hann hinni 26 ára gömlu
Florence. Eftir lát Emmu gengu þau
í hjónaband. Það var ekki í eðli Har-
dys að vera umhyggjusamur eigin-
maður. Líf hans snerist um skriftir
og hann lifði í eigin heimi. Florence
varð því á vissan hátt jafn einmana í
hjónabandinu og Emma hafði verið.
Hardy lést árið 1928,88 ára gamall.
Síðasta plata
Buddy Holly
menningarmolinn
Á þessum degi árið 1959 kom
út síðasta plata Buddy Holly, It
Doesn’t Matter Anymore. Tæpum
mánuði seinna, 3. febrúar, ákvað
hann að fljúga frá Iowa til Minnes-
ota í stað þess að keyra í vonsku-
veðri. Flugvélin hrapaði nokkrum
minútum eftir flugtak og allir um
borð létust, þar á meðal voru tón-
listarmennirnir Ritchie Valens og
J. P. Richardson. Holly var 22 ára.
Tveimur mánuðum eftir dauða
hans komst plata hans í 13. sæti
bandaríska vinsældalistans.
Holly samdi lög sín sjálfur og með-
al þeirra þekktustu eru That’ll Be the
Day og Peggy Sue. Hin skammvinna
ævi hans varð síðar efni í söngleik og
kvikmynd. Vísað er til dauða hans
með eftirminnilegum hætti í laginu
American Pie eftir Don McLean sem
varð gríðarlega vinsælt árið 1972.
Madonna kom laginu svo aftur á met-
sölulista árið 2000.