blaðið - 05.01.2007, Qupperneq 24
24 FÖSTUDAGUR 5. JANÚAR 2007
blaðið
WORKWEAR
Alvöru vinnufatnaður - Ný hönnun, nýtt útlit.
Láttu þér líðavel
ívínnunni
Siitsterkt Pcrfyesterog
Power Potyamide efni
vatnsfráhrindandi.
Stórir og sérstaklega
styridir hlöanrasar
með Blix rennilás.
Léttir, piássmikiir
Sériega mjúkt etni
semgerirallar
hreyfingar léttari.
Cordura ® er nýjung
fráSnickersefni
semersérstaldega
slitsterid.
t
S
TvöfökfVelcrofesting
ogauðveldaraerað
verkfærabettið.
Tveirstórir
brjóstvasar meö
renrrilás, lyrir
pianbókina og
GSMsímann,
Sértiannaður, styrktur
vasi, aðeins
fyrirGSM.
Vasamirerumeð
mjúku efni að
innanverðu sem ver
viðkvæma hluti.
Twisted leg ® er ný
hönnun á vasa fyrir
hnéhlrf sértil þess
aðhúnsrturatltaf
á réttum stað.
Vinnufatadeild
naúst>
535 9000
Akureyrí • Egilsstöðum • Hafnarftrði • Höfn • Keflavík • Kópavogi • Reykjavík • Setfossi
SMÁAUGLÝSINGAR 5103737
KAUFW/SELIA
blaöiö Si
Afmæli i Kópavogi
I dag fagnar Leikfélag Kópavogs 50 ára afmæli sínu. Af því tilefni verður efnt til afmælis-
fagnaðar í Félagsheimili Kópavogs, Fannborg 2. Allir félagar í Leikfélagi Kópavogs, fyrr-
verandi og núverandi, eru velkomnir ásamt öðrum velunnurum félagsins. Dagskráin hefst
klukkan 20 og verður boðið upp á léttar veitingar.
ITefritið Panama opnað í dag
Fer ótroðnar slóðir
í netheimum
íðustu vikur hafa verið
annasamar hjá Birni
Braga Arnarssyni en
hann hefur staðið í
ströngu við að koma á
fót vefritinu Panama sem verður að-
gengilegt á slóðinni www.panama.
is í dag. „Mér hafði lengi fundist
vanta vandað, íslenskt nettímarit
fyrir ungt fólk á öllum aldri og það
var fyrst fyrir tveimur árum sem
ég fór að velta fyrir mér að bæta
úr því. Ég fór á stúfana og bar hug-
myndina undir menn sem þekkja
vel til í þessum geira og fékk ým-
is góð ráð. Við veltum þessu fyrir
okkur nokkuð lengi enda að mörgu
að hyggja þegar farið er út í svona
viðamikið verkefni. Það var svo fyr-
ir nokkrum mánuðum að hjólin
fóru að snúast fyrir alvöru og við
fórum i það af krafti að hanna útlit
og innihald tímaritsins. Ég er ákaf-
lega ánægður með útkomuna og er
mjög spenntur að svipta hulunni
af verkinu," útskýrir Björn Bragi,
ritstjóri Panama sem er í eigu Föð-
urhúsanna ehf.
Ferskt á hverjum degi
Panama ætlar sér að fjalla á
ferskan og frumlegan hátt um
áhugavert fólk og málefni líðandi
stundar. Auk frétta um hvers kyns
dægurmál verða þar greinar, pistl-
ar og viðtöl ásamt ítarlegri umfjöll-
un um tónlist og kvikmyndir. „Við
leggjum mikla áherslu á að birta
nýtt efni á hverjum degi og fólk
þarf ekki að hafa neinar áhyggjur
af því að finna hjá okkur fréttir
sem farnar eru að súrna,“ segir
Björn Bragi sposkur. „Við munum
líka skapa ákveðinn takt í uppfærsl-
unum og til dæmis birta alltaf stór
viðtöl og efnismiklar greinar um til-
tekin efni á ákveðnum dögum vik-
unnar.“ Það er freistandi að spyrja
ritstjórann knáa hvort ekki sé verið
að bera í bakkafullan lækinn með
því að stofna enn eitt vefritið enda
finnst mörgum að ekki sé þverfót-
að fyrir slíkum efni í netheimum.
„Það er vissulega til heilmikið af all-
skyns netsíðum sem uppfærðar eru
reglulega og við höfum fréttamiðla
á borð við mbl og Visi. Það er hins-
vegar ekkert alvöru rafrænt tímarit
til á íslandi sem lýtur ritstjórn og
birtir vandað, unnið efni á hverjum
einasta degi. Allt efnið er unnið af
okkur sem störfum á ritstjórninni
og markmiðið er að vanda til verks
og bjóða upp á spennandi efni fyrir
fólk á öllum aldri.“
Ljósmyndir í stóru hlutverki
Að útgáfu Panama koma um tutt-
ugu einstaklingar sem skrifa um
hin ýmsu efni. „Flest er þetta fólk á
aldrinum 20-25 ára sem hefur mik-
inn áhuga á ýmsum hliðum tónlist-
ar, kvikmynda og dægurmenningar
af ýmsu tagi. Þetta er frábær hópur
sem hefur gott lag á því að finna
nýja vinkla og áhugaverðar hliðar á
málunum," segir Björn Bragi og bæt-
ir við að ætlunin sé að leggja mikið
upp úr ljósmyndum. „Tímarit verð-
ur að geyma flottar ljósmyndir og
við erum svo heppin að hafa feng-
ið til liðs við okkur Árna Torfason
ljósmyndara sem áður starfaði á
Morgunblaðinu. Hann mun taka
flestar myndir fyrir okkur og við
erum stolt af þvi að geta boðið upp
á svo vandaðar myndir.“ Panama
verður opnað á hádegi í dag og þar
er meðal annars að finna viðtal við
fyrirsætuna Tinnu Bergsdóttur, tón-
listarkonuna Lay Low og leikarann
Gunnar Hansson.
Leitin að tilgangi
Bókin Leitin að tilgangi lífsins
eftir austurriska geðlækninn Vikt-
or Frankl hefur verið uppseld hjá
útgefanda um nokkurt skeið. Hún
hefur nú verið endurútgefin og af
því tilefni verður efnt til stuttrar
dagskrár um bókina og höfund
hennar í Norræna húsinu í dag,
föstudaginn 5. janúar. Þar mun Ró-
bert H. Haraldsson, dósent í heim-
speki, halda erindi um bókina
sem hann nefnir Leitin að tilgangi
lífsins andspænis hinu illa. Að fyr-
irlestri loknum verður afhentur
styrkur í minningu höfundarins
en í útgáfusamningi óskaði hann
eftir því að höfundarlaun sín fyr-
ir bókina rynnu til málefnis sem
snertir börn. Leitin að tilgangi lífs-
ins kom út á vegum Siðfræðistofn-
unar og Háskólaútgáfunnar í þýð-
ingu Hólmfríðar Gunnarsdóttur
árið 1997. Viktor E. Frankl (1905-
1997) var upphafsmaður kenning-
ar í sálarfræði sem nefnd er lógó-
þerapia eða tilgangsmeðferð. Þar
er lögð áhersla á að í lífi sérhvers
manns sé ein-stakur tilgangur
lífsins
sem hver og einn verði að finna fyr-
ir sjálfan sig. Frankl sjálfur reyndi
margt í lífinu en hann sat meðal
annars í fangabúðum nasista í
seinni heimsstyrjöldinni og not-
ar reynslu sína þaðan sem undir-
stöður kenninga sinna. Frásögnin
úr fangabúðunum hefur fyrst og
fremst þann tilgang að sýna fram
á gildi kenningarinnar en ekki að
rekja hörmungar fangabúðalífsins.
Fyrir þá sem vilja kynnast Frankl
nánar er rétt að benda á kvik-
myndina The Choice is Yours frá
árinu 2003. Myndin samfléttar líf
og kenningar Viktors Frankls við
líf sjúklinga með langvinna sjúk-
dóma. Nokkrir sjúklingar koma
fram, meðal annars þrír læknar,
sem allir eiga það sammerkt að
hafa fengið krabbamein og lifað
það af.
Dagskráin í Norræna húsinu
hefst klukkan 15:30 í dag.