blaðið - 05.01.2007, Page 26
26 FÖSTUDAGUR 5. JANÚAR 2007
blaðið
Fyrirtækið CCP sem framleiðir og heldur úti nettölvu-
leiknum Eve Online hefur stækkað og dafnað á þeim
tæpu tíu ártim sem liðin erufrá stofnun þess. Leiknum
var hleypt af stokkunum árið 2003 og eru áskrifendur
að honum nú um 155.000. Starfsmenn fyrirtækisins
hér á landi eru 155 auk þess sem 20 manns vinna í
útihúi CCP í Atlanta t Bandaríkjunum og aðrir 20 í
Sjanghæ í Kína. Á síðustu árum hefttr vöxturinn verið
mikill og hefur bæðifjöldi áskrifenda og starfsmanna
um það bil tvöfaldast milli ára. Reynir Harðarson,
einn af stofnendum CCP, segir að uppbygging fyrirtæk
isins hafi í byrjun tekið lengri tíma en stefnt var að en
nú sé það orðið stærra en gert var ráðfyrir.
Útflutningsfyrirtæki í spennitreyju
Við erum löngu búin að ná upp-
haflega markmiðinu um að
ná 100.000 áskrifendum. Það
töldum við raunhæft.
Leikurinn fór hægar af stað upp-
haflega en við vildum en hann
hefur verið i alveg stöðugum vexti
síðan og hefur í raun og veru aldrei
verið meiri en einmitt í dag,“ segir
Reynir.
Frá því að Eve Online kom fyrst út
í maí árið 2003 hefur leikurinn verið
í stöðugri þróun að sögn Reynis.
„Leikurinn hefur verið að þróast
gríðarlega og þetta er allt annar
leikur en hann var fyrir þremur
árum. Hann er alltaf ferskur og
við höfum verið að gera hann betri
og skemmtilegrisegir Reynir og
bætir við að á þessu ári standi til
að skipta út grafík og þrívíddarum-
hverfi leiksins.
Stærri en við gerðum ráð fyrir
„Þá verður hann aftur orðinn í
fremstu röð eins og hann var þegar
hann kom út. Hann er náttúrlega
orðinn þriggja ára gamall og þó að
hann sé enn flottur er hann ekki al-
veg „cutting edge“segir Reynir.
Hann segir að markaðurinn hafi
jafnframt vaxið gríðarlega á þeim
tíma sem liðinn er frá því að leikur-
inn var fyrst gefinn út.
„Markaðurinn hefur í raun og veru
orðið miklu stærri en við gerðum
ráð fyrir þegar við fórum af stað. Ég
held að það sé líka að hjálpa okkur.
Þegar við fórum af stað var stærsti
leikurinn á markaðnum með rétt
rúmlega 100.000 þátttakendur sem
er minna en Eve er með núna,“ segir
Reynir og bætir við að vöxtur á
þessu sviði hafi almennt orðið meiri
en sérfræðingar spáðu.
„Það gerir líka plön fyrir framtíð-
ina miklu áhugaverðari og gerir
það að verkum að það er gríðar-
legur áhugi á CCP. Fólk fylgist mjög
grannt með okkur og er mjög spennt
fyrir næstu leikjum sem við ætlum
að gera,“ segir Reynir.
Hingað til hefur Eve Online verið
meginverkefni CCP en fyrirtækið
hefur i hyggju að setja fleiri leiki
á markað í framtíðinni sem verða
mun stærri. Síðastliðið haust keypti
CCP bandaríska fyrirtækið Whitew-
olf sem er eitt þekktasta fyrirtæki
heims í framleiðslu hlutverkaleikja
og vinna fyrirtækin nú saman að
þróun nýs leiks.
Hlusta á viðskiptavinina
„Þeir eru sérfræðingar í því að búa
til sögur, heima og ævintýri og við
erum sérfræðingar í því að búa til
tækni og leikjakerfi,“ segir Reynir
og bætir við að bæði fyrirtækin hafi
mjög gott orðspor hvort á sínu sviði.
„CCP er þekkt fyrir góða notenda-
þjónustu og fyrir að hafa þróað
leikinn stanslaust. Við leggjum ro-
salega mikið upp úr því að hlusta á
viðskiptavinina og það gefur okkur
ákveðna sérstöðu á markaðnum,“
segir Reynir sem telur að það kunni
að skýra þá tryggð sem leikendur
Eve Online sýna leiknum.
„Þetta er ekki okkar leikur lengur
eftir að við erum búin að gefa hann
út. Þetta er leikur fólksins sem spilar
hann. Það er fólk sem spilar þennan
leik miklu meira en við gerum. Við
vinnum bara með hann og sjálfur er
ég eins og byrjandi í leiknum miðað
við þá. Ætli það sé ekki svipað og
með þann sem fann upp skákina. Ég
efast um að hann sé á sama stigi og
Kasparov,“ segir Reynir.
Þó að vöxtur CCP hafi verið stöð-
ugur á undanförnum árum segir
Reynir erfitt að spá fyrir um hver
stækkun fyrirtækisins verði á næstu
misserum.
„Það skiptir ofboðslega miklu
máli þegar við stækkum að gera
það rétt. Það er ekki markmið okkar
að stækka. Við stækkum þegar við
þurfum að stækka. Sú stækkun sem
hefur átt sér stað hefur í raun verið
miklu betri en við þorðum að vona.
Við lentum í svipaðri stöðu þegar
við unnum hjá Oz. Þá vorum við að
tvöfaldast milli ára og það urðu alls
konar vaxtarverkir sem við erum
ekki að finna eins mikið fyrir hérna,
kannski út afþessari reynslu,“ segir
Reynir en kjarninn sem stofnaði
CCP hafði áður unnið hjá Oz.
Gengissveiflur erfiðar
Haustið 2005 bárust fréttir af
því að stjórnendur CCP íhuguðu
að flytja starfsemi fyrirtækisins
að hluta til eða í heild til útlanda
vegna tekjutaps sem rekja mætti til
gengismála.
Reynir bendir á að fyrirtækið hafi
þegar komið sér upp skrifstofum í
Bandaríkjunum og Kína og því hafi
þetta að vissu leyti gengið eftir.
„Árið 2005 átti sér stað gríðarÍeg
styrking á krónunni auk þess sem
dollarinn var að veikjast á móti. Það
sem var svo erfitt fyrir útflutnings-
fyrirtæki þá var að samhliða því að
viðskiptin voru að aukast minnkuðu
tekjurnar. Þetta var alveg að fara
með ‘okkur. Við vorum með miklu
fleiri viðskiptavini 2005 en 2004
en samt kom árið nánast eins út.
Við sjáum allan hagnaðinn okkar
verða að engu og við rétt skriðum
yfir núllið 2005. Okkur fannst þetta
vera mjög erfiðir tímar og mjög
ósanngjörn staða gagnvart útflutn-
ingsfyrirtækjum vegna þess að það
sem var að gerast á þessum tíma
var alveg fyrirséð," segir Reynir og
vísar þar til þenslu í efnahagskerf-
inu sem má öðrum þræði rekja til
stóriðjuframkvæmda.
„Ég get ekki séð að þetta sé rétt-
lætanlegt, að setja allar útflutn-
ingsgreinar íslands í spennitreyju
í svona langan tíma fyrir svona
vanhugsaðar framkvæmdir," segir
hann.
„Krónan hefur verið að sveiflast
rosalega og það er ofboðslega erfitt
fyrir fyrirtæki sem eru með allar
sínar tekjur í erlendri mynt. Það er
erfiðast fyrir fyrirtæki sem eru að
sveiflast í kringum núllið í sínum
rekstri. I svona kringumstæðum
getur tíu prósenta sveifla skilið á
milli feigs og ófeigs, hvort fyrirtækin
lifa af eða ekki. Þetta er spurning
hvort við erum með hundrað millj-
ónir í hagnað eða hundrað milljónir
í tap. Það getur bara munað öllu, sér-
staklega ef þú ert með skuldsett fyr-
irtæki,“ segir Reynir.
„ísland er eins konar Raufarhöfn
heimsins. Þess vegna er mjög mikil-
vægt að hér sé gott skattaumhverfi
og einfalt reglugerðarumhverfi. Það
myndi ég segja að væri ein helsta