blaðið - 05.01.2007, Page 27
blaðið
FÖSTUDAGUR 5. JANÚAR 2007 27
ástæða þess að fyrirtæki eru ekki
farin úr landi. Það eru þessi atriði
sem gera fyrirtækjum eins og okkar
yfirhöfuð kleift að starfa á Islandi,"
segir hann.
Skökk samkeppnissfaða
Víða erlendis hafa stjórnvöld og
borgaryfirvöld laðað til sín hátækni-
og nýsköpunarfyrirtæki með því að
bjóða þeim skattaívilnanir, niðurfell-
ingu eða lækkun ýmissa gjalda og
önnur fríðindi.
„Ég hef aldrei verið neitt sérstak-
lega hrifinn af svona sérlausnum
fyrir fyrirtæki og aldrei talað fyrir
því að eitthvað slíkt verði gert á Is-
landi þar sem það er ósanngjarnt
og skekkir samkeppnisstöðu milli
annarra fyrirtækja á svæðinu. Þetta
skekkir hins vegar samkeppnisstöðu
okkar gagnvart öðrum fyrirtækjum
í heiminum. Samkeppnisaðilar
okkar eru að byggja upp á þessum
svæðum þannig að þau njóta í raun
og veru óhagstæðra samkeppnisskil-
yrða. Þetta er svolítið erfiður leikur,“
segir Reynir og bætir við að þegar
heimurinn sé orðinn eitt samfélag
þá skipti engu máli hvar í heiminum
fyrirtæki í þessum geira séu með
útibú.
„Það skiptir bara máli að þau séu á
stað þar sem er gott aðgengi að góðu
fólki og skattaumhverfi og aðstæður
heppilegar. Sú er raunin þar sem við
erum í Bandaríkjunum. Atlanta er
mjög heppilegur staður og það sama
má segja um Sjanghæ. Reykjavík
er að mörgu leyti mjög heppilegur
staður. Það er margt gott í skattaum-
verfinu á íslandi. Skattar á fyrirtæki
eru lágir en það er mjög erfitt að
búa við svona miklar gengissveiflur,"
segir Reynir.
Vantar heildarsýn í atvinnumálum
Reynir hefur gagnrýnt atvinnu-
stefnu íslenskra stjórnvalda harðlega,
meðal annars á vettvangi Framtíðar-
landsins þar sem hann situr í stjórn,
Hann segir að metnað og heildarsýn
skorti og menn þurfi að hugsa hlut-
ina í víðara samhengi.
„Við þurfum að skoða stöðu íslands
í hnattrænu samhengi og átta okkur
á því hvar styrkleikar okkar og veik-
leikar liggja. Það er eitthvað stórkost-
legt að gerast hérna í þekkingariðn-
aði en það er eitthvað allt annað í
gangi hjá stjórnvöldum. Sem dæmi
má taka ákvörðunina um að hefja
hvalveiðar sem er alveg úr takti við
það sem er í gangi. Það eru allir sam-
mála um rétt íslendinga til að veiða
hvali og allt það en þetta snýst bara
ekki um það. Þetta snýst um ímynd
íslands og að troða ekki öðrum um
tær. Þetta hefur takmörkuð áhrif á
okkur en ég get ímyndað mér það að
margir séu tiltölulega frústreraðir
þegar það er verið að leggja í hættu
markaðsstarf þeirra erlendis.
Það er bara talað um að það sé
heilagur réttur Islendinga að stunda
hvalveiðar en áhrif þeirra eru ekkert
vegin og metin.
Það eru gríðarleg tækifæri til
dæmis í íslenskum landbúnaði og
sjávarútvegi og svo byrjum við bara
að veiða hval,“ segir Reynir sem telur
að íslendingar verði að leggja áherslu
á gæði á báðum þessum sviðum.
„Island mun aldrei verða stórt
framleiðsluland í landbúnaði út af
eðli landsins og legu. Aðstæður eru
gríðarlega slæmar hér á landi en
hitt kemur á móti að íslenskar land-
búnaðarvörur eru rosalega góðar
og hreinar. Við getum aldrei keppt
við Nýsjálendinga í kindakjötsfram-
leiðslu, Bandaríkin í nautakjöts-
framleiðslu eða Frakka í ostagerð.
En við getum keppt við þá á öðrum
sviðum sem þeir hafa eícki sem er í
hreinleika og meiri gæðum,“ segir
Reynir og bendir jafnframt á að það
sama gildi um íslenskar sjávaraf-
urðir sem hafa orð á sér fyrir gæði
og því fæst hátt verð fyrir þær.
Álver leysa ekki vandann
Reynir gagnrýnir jafnframt at-
vinnustefnu sem byggist upp á stór-
iðju og byggingu álvera og segir að
hún einkennist af metnaðarleysi.
„Það er ofboðslega metnaðarlaust
að nota náttúruauðlindir Islands
til rafmagnsframleiðslu til að fá
erlend stórfyrirtæki til að flytja
hingað þungaiðnað frá þriðja heims
ríkjum. Á sama tíma og orkuverð
í heiminum hækkar erum við að
gera samninga um orkusölu á und-
irverði. Það er ljóst að þeir eru á
undirverði því að annars væru fyrir-
tækin ekki að flytja frá þriðja heims
ríkjum hingað,“ segir Reynir.
„Ástæðan fyrir þessu er byggða-
stefna. Það er verið að reyna að búa
til störf úti á landi en þetta leysir
ekki vandamálið. 400 manna álver
á Reyðarfirði leysir ekki vandamál
Mið-Austurlands.
Ef þú ætlar að hafa byggð í land-
inu verðurðu líka að skoða hverjir
eru styrkleikar og veikleikar hverrar
byggðar. Styrkleiki þeirra hlýtur
alltaf að byggjast á því að þú sért
að vinna úr því sem staðsetningin
hefur upp á að bjóða hvort sem
það er sjávarútvegur, landbúnaður,
ferðaþjónusta eða eitthvað annað,“
segir Reynir.
„Þarna er verið að búa til eins
konar kolanámubæ, það er að segja
bæ sem reiðir sig algerlega á einn
iðnað. Þetta er eins og bílabæirnir
í Bandaríkjunum og kolanámubæ-
irnir í Bretlandi þar sem heilu byggð-
arlögin eru algerlega upp á eitt fyrir-
tæki komin. Þetta er ekki einu sinni
íslenskt fyrirtæki heldur banda-
rískt risafyrirtæki. Við höfum séð
þetta gerast víða, til dæmis í Noregi
þar sem álverum hefur verið lokað
og byggðarlögin leggjast nánast af,“
segir Reynir að lokum.
einar.jonsson@bladid.net
Gagnrýnir atvinnustefnu stjórnvalda Reynir Haröarson, stofnandi CCP, segirað
stjórnvöld veröi að skoða stöðu landsins íhnattrænu samhengi og átta sig á þvíhvar
styrkleikar þess og veikleikar liggja.
LLMá aA;J
Suðurlandsbraut 14, Rvk. Reykjavíkurvegur 45, Hfj
Einar s. 899-6005 Guðni s. 660-0560
Iðufell 14, Rvk. v/Bónus Smiðshöfði 19, Rvk.v/Guiiinbrú Grandagarður 9, Rvk,
Stefáns. 663-7686 Rúnar s. 660-0565 Emils. 694-4150
'&mmu íVERÐI
Margverðlaunaðir flugeldar
^jölsKylg upakkar
tM&S^isabombu^
Rakettur
VC\ ' Hvellir