blaðið - 05.01.2007, Qupperneq 30
30 FÖSTUDAGUR 5. JANÚAR 2007
blaðið
íþróttir
ithrottir@bladid.net
Stjóri Rangers rekinn
Paul Le Guen hefur verið rekinn sem knattpyrnustjóri Glasgow Rangers eftir
aðeins sex mánuði i starfi. Rangers, sem er í öðru sæti skosku úrvalsdeildar-
innar, er heilum 17 stigum á eftir erkifjendunum i Celtic, sem þykir óviðunandi.
Kornið sem fyllti mælinn var þegar Le Guen setti helstu hetju liðsins, Barry
Ferguson, út úr iiðinu og sagðist aldrei ætla að nota hann aftur.
Skeytin
Javier Mascher-
ano, arg-
entínsld
miðvallarleik-
maðurinn
hjáWest
Ham, hefur
beðið um
að vera
settur á sölulistann hjá liðinu.
„Ég get ekki verið hérna án þess
að spila. Á mínum aldri er hætt
við stöðnun ef maður fær ekki
að spila. Ég hafði ætlað mér að
standa mig vel í Englandi en
ég fékk ekki næg tækifæri til
að sýna hvað í mér bjó,“ sagði
Mascherano. Leikmaðurinn hefur
verið orðaður við Juventus og
Liverpool að undanförnu en engin
formleg tilboð hafa borist enn.
Framtíð Milans Baros hjá
Aston Villa er í óvissu, segir
stjóri liðsins Martin
0 'NeiÚ. Baros hefur
aðeins skorað eitt mark
í 15 leikjum og ekki
náð sínu fyrra
formi síðan
hann varð
marka-
kóngur
áEM
2004. „Hann
skoraði gegi
Sheffield Unit-
ed um daginn sem mun efla sjálfs-
traustið. Hvort ég næ því besta
út úr honum er hinsvegar annað
mál. Það er nú aðallega á valdi
leikmannanna sjálfra að standa
sig en það er ljóst að ég vel aðeins
þá sem ég tel hæfa fyrir hvern
leik. Hvort Baros vill svo vera
áfram veit ég ekki,“ sagði 0 'Neill.
Leggjalangi Norðmaðurinn
Tore Andre Flo hefur
gengið til hðs við Leeds frá
Válerenga. Þar hittir hann
fyrir fyrrum félaga sinn
hjá Chelsea, Dennis Wise,
sem nú er knatt-
spyrnustjóri Leeds.
Flo fór til Rangers
árið2000 0gþað-
an til Sunderland
tveimur árum
síðar.Þáfór
hann til ítakka
liðsins Siena 2003 og
lokstilVálerenga,en
þeir leystu hann und-
an samningi í haust.
Flovarhvaðþekkt-
astur fyrir að vera
óvenjuleikinn með
knöttinn miðað
við hæð sína en
hann er nú 33 ára gamall.
Hinn margreyndi Vincenzo
Montella hjá Roma hefur
hafið æfingar hjá Fulham
en hann var lánaður í sex mánuði
frá italska stórliðinu Roma. Aðdá-
endur kvöddu Montella með tár-
um þegar hann gekk út af æfinga-
svæði Roma en hann hefur lengi
verið uppáhald Rómveija eftir að
hafa unnið einn Scudetto með
liðinu, árið 2001. Montella er reynd-
ur landsliðsmaður og fróðlegt að
vita hvernig honum reiðir
af í enska boltanum, en
líklegt þykir að hann
fái að spreyta sig gegn
Manchester City í bikar-
leiknum á laugardag.
Erlendum fjárfestum í úrvalsdeild fjölgar:
Brask í boltanum
■ Hefðbundinn rekstur ekki gróðavænn ■ Lóðabrask og gæluverkefni ástæðan
Eftir Trausta Salvar Kristjánsson
traustis@bladid.net
Yfirtökur vellauðugra viðskipta-
manna hafa tröllriðið enskum
knattspyrnuklúbbum upp á síð-
kastið. Allir þekkja sögu Romans
Abramovich og Chelsea en þau
kaup virðast hafa hrundið af stað
bylgju yfirtaka um allt England
þar sem hinn fornfrægi klúbbur
West Ham er nýjasta dæmið.
Þegar hafa Aston Villa, Chelsea,
Manchester United, Portsmouth
og West Ham orðið fyrir barðinu
á yfirtökum og staðfestar eru við-
ræður um verðandi yfirtökur hjá
Liverpool, Newcastle, Manchester
City og Leicester. Margir hafa lýst
yfir áhyggjum af þessari þróun,
þar á meðal framkvæmdastjóri
enska knattspyrnusambandsins,
Brian Barwick: „Þetta er afar
viðkvæmt mál. Knattspyrnusam-
bandið mun fara eftir lögum, ekki
tilfinningum. Við getum ekki mis-
munað eigendum á forsendum
þjóðernis, heldur getum við aðeins
stuðst við ströng lög um eignarrétt
og verðbréfaviðskipti."
Samkvæmt Birki Kristinssyni,
sérfræðingi hjá Einkabanka
Glitnis, eru hagnaðarsjónarmið
afar langsótt með slíkum fjárfest-
ingum: „Afar fáir klúbbar skila
hagnaði í úrvalsdeildinni. Það
hefur til dæmis verið bullandi tap
á rekstri Chelsea sem rekja má til
leikmannakaupa. Þetta virðist
vera tískubóla hjá milljarðamær-
ingum en það er hugsanlega önnur
og stærri ástæða fyrir slíkum
fjárfestingum en það er lóðabrask.
Þessir klúbbar sitja á einhverjum
dýrustu lóðum í Lundúnum sem
eru afar verðmætar. Til dæmis
hefur West Ham verið í viðræðum
um að fá Ólympíuleikvanginn
fyrir leikana 2012 sem tekur hátt í
80.000 manns og gefur möguleika
á aukningu miðasölu. Þeir gætu
selt núverandi leikvang og æfinga-
svæði fyrir stórfé sökum staðsetn-
ingar og komið út í stórum plús.
Auðvitað fylgja síðan góðum ár-
angri meiri tekjur, bæði frá Evrópu-
keppni og síðan sölu á sjónvarps-
rétti. Síðan er bara spurningin
hvort menn í slíkum bransa séu í
raun að taka áhættu, líkt og það
horfir við almenningi, eða hvort
þeir séu búnir að reikna dæmið út
til fulls varðandi sölu lóða og sjá
fram á gróða.“
Nokkrir knattspyrnustjórar hafa
einnig lýst yfir áhyggjum sínum
af þróuninni. Þeir eru, merkilegt
nokk, allir stjórar hjá klúbbum
sem ekki hafa verið yfirteknir
af forríkum auðjöfrum. Þeirra á
meðal er Mark Hughes hjá Black-
burn Rovers: „Þetta er áhyggjuefni
því það er ljóst að fylgni er á milli
fjármagns og árangurs. Klúbbar í
okkar stærðarflokki eru að fá mun
meiri peninga til leikmannakaupa
en við og því sitjum við eftir með
sárt ennið, ófærir um samkeppni
á leikmannamarkaðinum. Þar að
auki hækkar þetta verðið á leik-
mönnum almennt, sem fyrir var
orðið fáránlega hátt og ljóst að þró-
unin er ekki til góðs.“ Af þessum
orðum að dæma er því aðeins um
öfund að ræða því allir stjórar
vilja hafa nægilegt fjármagn til
að styrkja lið sín og bæta þannig
árangurinn.
Eggert Magnússon hjá West Ham:
Baðst afsökunar og bauð fría rútuferð
Eggert Magnússon, stjórnarfor-
maður West Ham, hefur beðið alla
aðdáendur West Ham afsökunar
á 6-0 tapi liðsins gegn Reading á
dögunum.
„Eg skil mætavel að aðdáendum
sé mikið niðri fyrir eftir þessa óá-
sættanlegu frammstöðu liðsins.
Ég get ekki annað en beðið þá sem
sáu leikinn afsökunar fyrir hönd
klúbbsins,“ sagði hann og bætti við:
„Við munum bjóða öllum þeim sem
vilja upp á fría rútuferð til Birming-
ham á leikinn gegn Aston Villa og
líta á það sem sáttargjörð við þá
sem leggja hart að sér að styðja liðið.
Ég vil að áhangendur viti að stuðn-
ingur þeirra er afar mikilvægur og
vel þeginn, sérstaklega á erfiðum
tímum sem þessum."
West Ham hefur tryggt sér um
4.000 miða á leikinn og því óskandi
að nóg sé til af rútum fyrir Eggert.
Reiði aðdáenda virðist þó aðallega
beinast að leikmönnum liðsins
því hópur aðdáenda sem safnaðist
saman fyrir framan leikvang liðsins
krafðist þess að leikmenn borguðu
rúturnar úr eigin vasa. Annar aðdá-
andi sagði að Eggert hefði gert sitt
fyrir stuðningsmennina, nú væri
komið að liðinu að sanna sig inni á
vellinum. Leikur liðanna fer fram
þann 3. febrúar.
Afsakar West Ham Eggert Magn-
ússon býður fríar rútuferðir