blaðið - 20.01.2007, Síða 2
2 LAUGARDAGUR 20. JANÚAR 2007
blaöiö
VEÐRiÐ í DAG
Frostið minnkar
Noröaustan 8-13 metrar á sek-
úndu og dálítil snjókoma eða él
en hægari vindur og léttskýjað
syðra. Minnkandi frost.
Á MORGUN
Frostið minnkar
Norðan 5 til 10 metrar á
sekúndu, hægari vindur norð-
vestantil. Léttskýjað sunnantil.
Frost um allt land.
VÍÐA UM HEIM 1
Algarve 10
Amsterdam 8
Barcelona 10
Berlín 6
Chicago ■10
Dublin 9
Frankfurt 12
Glasgow
Hamborg
Helsinki
Kaupmannahöfn
London
Madrid
Montreal
7 New York
6 Orlando
4 Osló
6 Palma
13 París
7 Stokkhólmur
-12 Þórshöfn
-3
17
2
18
13
3
2
Rochom P’ngieng (t.v.) ásamt
móður sinni Rochom gengur
um mjög bogin i baki og talar
ekki skiljanlegt tungumál.
„Móglísa" fannst í frumskóginum:
19 ár með dýrum
Kambódísk kona sem hvarf
átta ára gömul fannst aftur fyrr
í vikunni eftir að hafa lifað ein í
frumskóginum í nítján ár. Talið er
að konan sem fannst sé Rochom
P’ngieng, sem hvarf eftir að hafa
farið ein út til að gæta vísunda
fjölskyldunnar í hinu afskekkta
Rattanakiri-héraði í norðurhluta
Kambóbíu árið 1988. Faðir hennar
segist þekkja dóttur sína á því að
hún sé með ör á hægri handlegg
sem hún á að hafa fengið í æsku.
Enn er beðið eftir niðurstöðu úr
DNA-prófi til að sannreyna hvort
um dóttur mannsins sé að ræða.
Lögregla í héraðinu segir að
konan sé í raun að hálfu kona og
að hálfu dýr, en hún er augljóslega
vannærð, talar ekki skiljanlegt
tungumál og gengur um mjög
bogin í baki. Konan fannst eftir
að bóndi á svæðinu hafði tekið
eftir því að einhver hafði stolið
hrísgrjónum af jörð hans. Hann
náði konunni og tilkynnti lög-
reglu eftir að hafa beðið í launsátri
eftir að hrísgrjónaþjófurinn léti
til skarar skríða á nýjan leik. Lög-
regla gætir þess nú vel að konan
haldi ekki aftur inn í frumskóg-
inn eftir að hafa farið úr fötunum
sem henni voru útveguð og gert
sig líklega til að hverfa á brott.
100% náttúrulegur ávaxta- og grænmetisdrykkur
• Enginn viðbættur sykur
• Engin viðbætt vítamín
• Engin rotvarnarefni
Gefst ekki upp
Haraldur Hannes Guð-
mundsson Ijósmyndari
Mynd/Þorkell
Haraldur Hannes í aðgerð vegna gats á höfuðkúpunni:
Hefur fengið
aukinn mátt
■ Handarstórt gat ■ Lamaöur og sjónskertur ■ Daglegar framfarir
Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur
ingibjorg@bladid.net
Haraldur HanneS Guðmundsson,
sem ráðist var á í London þann
19. nóvember síðastliðinn, er með
handarstórt gat á höfuðkúpunni
sem setja á akrýlplötu fyrir í að-
gerð væntanlega upp úr mánaða-
mótunum. Árásarmennirnir brutu
höfuðkúpuna með barefli úr járni
og fóru brotin inn í heila. Haraldur,
sem lamaðist vinstra megin, er nú í
endurhæfingu og hefur hann fengið
svolítinn mátt í fótlegginn.
„Það þurfti að tína brotin úr heil-
anum og vegna þess hversu vanda-
samt verk það var tók aðgerðin sex
klukkustundir," greinir Helga Þórð-
ardóttir, móðir Haraldar, frá.
„Hann er að þjálfa sig í að ganga
og læra þessa hluti sem eru svo
sjálfsagðir. Maður sér daglega ein-
hverjar framfarir og þótt þær séu
litlar gleðst maður yfir því sem
gerist frá degi til dags. Hann finnur
styrkinn aukast og hefur fengið
töluverðan mátt í fótlegginn. Hann
er einnig bjartsýnn á að fá aukinn
handarstyrk. Þetta verður margra
mánaða ferli og jafnvel ára,“ segir
Helga sem telur jákvætt viðhorf Har-
aldar skipta afar miklu máli.
Haraldur er með talsvert skerta
sjón á vinstra auga. Hann ræður ekki
við lestur enn sem komið er en getur
unnið svolítið á tölvu. „Hann er skýr
í kollinum og málstöðvarnar eru
óskertar. Bati hans hefur verið ótrú-
legur miðað við þá áverka sem honum
voru veittir,“ tekur Helga fram.
Ráðist var á Harald, sem er 36
ára, er hann var á ferð á reiðhjóli
skammt frá heimili sínu í austur-
hluta London sunnudagsmorgun-
inn 19. nóvember. Haraldi tókst að
flýja frá árásarmönnunum, sem
voru þrír og hettuklæddir, en þeir
veittu honum eftirför og réðust að
honum að nýju og börðu hann í
höfuðið með barefli úr járni. Har-
aldur, sem hafði verið á leið í bakarí,
var ekki rændur. Enn er ekki vitað
hverjir árásarmennirnir voru.
„Andlit árásarmannanna sjást
ekki á myndbandi sem lögreglan
hefur undir höndum og þess vegna
hefur ekki verið hægt að staðfesta
hverjir þeir eru þótt ákveðnir menn
liggi undir grun,“ segir Helga.
Hún gerir ráð fyrir því að Har-
aldur, sem starfaði sem tísku- og
auglýsingaljósmyndari og við ýmiss
konar tölvuvinnu, fái örorkubætur
á meðan hann er í endurhæfingu.
„Hann er rosalega áhugasamur um
að ná árangri og það skilar sér. Hann
býr hérna heima hjá okkur ásamt eig-
inkonu sinni. Honum finnst hann fá
andlegan styrk við það að geta verið
með fjölskyldunni í baráttunni við
að ná bata. Hann er ákveðinn í því
að láta þetta ekki eyðileggja Hfið.“
• Engin litarefni
• Engin bragðefni
Úr hverri flösku af Knorr Vie fást 200 g af því besta og
hollasta úr ávöxtum og grænmeti
Eiturefnanotkun við Fljótsdalsvirkjun:
Efnið meðhöndlað af virðingu
„Eftir að við höfðum samband
við framkvæmdaraðila fóru þeir í
að sækja um tilskilin leyfi. Ég veit
ekki betur en að leyfi fyrir notkun
efnisins liggi núna fyrir. Að því
leytinu til að engin kæra hefur bor-
ist til okkar þá er málið úr sögunni
hvað okkur snertir,“ segir Lárus
Bjarnason, sýslumaður á Seyðisfirði.
Blaðið hefur fjallað um notkun Ep-
oxy koltjöruefnis við stálfóðrun fall-
gangna við Fljótsdalsvirkjun. Efnið
er talið hættulegt heilsu manna og
Leyfi veitt Búið er að veita leyfi fyrir
eiturefnanotkun við stálfóðrun fall-
ganganna við Fljótsdalsvirkjun.
ýmsir sérfræðingar mæltu gegn
notkun þess. Síðar kom í ljós að
engin leyfi lágu fyrir um notkun
eiturefnisins og ákvað Lárus því
að kanna málið. Oddur Friðriks-
son, trúnaðarmaður starfsmanna,
segir engin vandkvæði hafa komið
upp vegna notkunarinnar. „Menn
eru að verða búnir með að koma
efninu á og ekkert komið fyrir, Það
voru gerðar sérstakar ráðstafanir
og efnið meðhöndlað af virðingu,“
segir Oddur.