blaðið - 20.01.2007, Síða 15
blaðið
LAUGARDAGUR 20. JANÚAR 2007 15
Alþýðusamband íslands um könnun Ragnars Árnasonar:
Segir ekki alla söguna
„Rannsóknin er það skammt á
veg komin að hún segir aðeins til
um tekjuskiptingu heildartekna
en ekkert um það hvort ójöfnuður
ráðstöfunartekna hefur aukist eða
minnkað," segir Sigríður Ingibjörg
Ingadóttir, hagfræðingur hjá ASI,
um niðurstöður rannsóknar Ragn-
ars Árnasonar, prófessors við við-
skipta- og hagfræðideild Háskóla
íslands. Þegar tekið er tillit til fjár-
magnstekna er ljóst að ójöfnuður
í tekjuskiptingu fer vaxandi. ASÍ
gagnrýnir rannsóknina á heima-
síðu sinni þar sem segir að fráleitt
sé að sleppa tekjuhæsta hópnum
í samanburði á tekjum þar sem
tekjuskiptingarrannsókn hljóti að
ná til allra tekjuhópa.
ASÍ bendir einnig á að þörf sé á
umræðu um mismuninn á skatt-
lagningu stjórnvalda á tekjum eftir
eðli þeirra. Er þá einkum átt við fjár-
magnstekjur sem á tólf árum hafa
aukist úr 2-3% af heildartekjum
landsmanna í 16-17%. Sigríður segir
að ASÍ hafi áhyggjur af misskipting-
aráhrifum fjármagnsteknanna þar
sem helmingur þeirra falli í hlut
þess fólks sem er í hæsta 1% tekju-
hópnum. „Þeir sem hafa hæstu fjár-
magnstekjurnar hafa meiri mögu-
leika á að afla enn frekari tekna og
við bendum á að þetta er að valda
auknum ójöfnuði samfara því sem
verið er að fella niður eigna- og há-
tekjuskatta. Þannig er skattlagning
að minnka á þann hóp sem er að
auka við sig tekjurnar hvað mest.
Skatta- og bótakerfið er aftur á
móti ekki að umbuna lágtekju- og
meðaltekjufólki," segir Sigríður.
Tekjuháir njóta skattalækkana
Sigríður segir að tekjuskipting heildar-
tekna gefi ekki rétta mynd afjöfnuði í
samfélaginu.
Almenningssamgöngur:
Jónína vitl
skoða strætó
Mbl.is Jónína Bjartmarz um-
hverfisráðherra segir í skriflegu
svari á Alþingi að mikilvægt sé að
ríki og sveitarfélög fari í samein-
ingu yfir almenningssamgöngur
með það að markmiði að bæta
rekstrarskilyrði þeirra. Umhverf-
isráðuneytið hefur nú þegar átt
fund með fulltrúum Strætó bs.
um þessi mál að þeirra ósk.
1 svarinu, sem er við fyrir-
spurn Björns Inga Hrafnssonar,
varaþingmanns Framsóknar-
flokks, segir að verkaskipting
ríkis og sveitarfélaga sé stöðugt
til skoðunar og muni umhverf-
isráðuneytið beita sér fyrir því
að málefni almenningssam-
gangna verði tekin þar upp.
Þýskaland:
Barist um
tölvuleik
Þrír voru fluttir á sjúkrahús
effir að slagsmál brutust út í
verslun í Köln í Þýskalandi vegna
tölvuleiks. Verslunin bauð nýja
World of Warcraft-leikinn til sölu
á sérstöku tilboðsverði og brutust
slagsmálin út þegar ljóst var að
ekki voru til nægilega margir
leikir fyrir allan þann fjölda sem
sóttist effir eintaki. Lögregla
var kölluð á staðinn, en rúður
brotnuðu og urðu talsverðar
skemmdir á innanstokksmunum.
Hálslón:
Hækkar jafnt
og þétt
Mbl.is Vatnsborð Hálslóns hefur
hækkað um tíu sentimetra á sól-
arhring að meðaltali undanfarnar
tvær vikur. Lónið er nú komið
í 567,8 metra yfir sjávarmáli.
Byrjað var að safna í Hálslón í
septemberlok þegar hjáveitugöng-
um Kárahnjúkastíflu var lokað.
Utsala
Utsala
20-80% afsláttur
af öllum vörum
Sófaborð með skúffu
Natur Eik eða Amerísk Hnota, Stærð; 120x60x46
verð áður: 49.900,- verð nú: 37.900,-
Sófasett Gossip - 3+1+1 - Hamrað leður hvítt
verð áður: 289.000,- verð nú: 169.000,-
Stofuskenkur - Natur Eik eða Amerísk Hnota
stærð: 200x46x85 - verð áður: 112.970,-
verð nú: 69.000,-
stærð: 150x46x85 - verð áður: 92.950,- 36°/o
verð nú: 59.000,-
Bohemia Vöruhús - Askalind 2 - Kópavogur
Opið virka daga 10-18 og laugardaga 10-16
220/0 Verðdæmi:
Stækkanlegt borðstofuborð
Natur Eik eða Amerísk Hnota 40%
(stærð: 160/240x100x76 cm)
verð áður: 112.970,- verð nú: 69.000,-
Tungusófi - 6 manna - tauáklæði 60°/o
verð áður: 141.570,- verð nú: 59.000,-
Stofustóll - PU 80%
svartur, hvítur eða rauður
verð áður: 24.500,- verð nú: 4900,-
Svefnsófi - microfiber - þrír litir 30°/o
verð áður: 69.900,- verð nú: 49.000,-
Baðinnrétting með blöndunartækjum 57%
verð áður: 70.070,- verð nú: 29.900,-
Legubekkur - tauáklæði 52%
litir: grænn, hvítur eða rauður
verð áður: 42.185,- verð nú: 19.900,-
Borðstofustóll - PU - svartur eða hvítur
verð áður: 14.157,- verð nú: 8900,- 370/0
Mikið úrval af Eikar- og
Hnotuhúsgögnum á
útsöluverði.
Sjón er sögu ríkari
40%
BOHEMIA
vöruhús