blaðið - 20.01.2007, Blaðsíða 19
blaðið
LAUGARDAGUR 20. JANÚAR 2007 19
Möröur Árnason
Niðurstöður mínar (með góðri
aðstoð vina og félaga sem ég þakka
hér með fyrir), sem ég vil að um-
hverfisráðherra staðfesti, fara hér
á eftir. Tölurnar um losun koltví-
sýrings sem hér um ræðir eru allar
fengnar úr opinberum gögnum, en
upplýsingar um árlega álframleiðslu
eru almennar staðreyndir sem
meðal annars má sækja á vefsetur
fyrirtækjanna.
Norðurál á Grundartanga: 377
þúsund tonna árleg losun
I álveri Norðuráls á Grundar-
tanga nemur koltvísýringslosun um
377 þ.t. á ári þegar stækkun lýkur
þar seint á þessu ári. Þá verður fram-
leiðslugetan 260 þ.t. af áli (er nú 220
þ.t. eftir stækkun um 130).. Norðurál
hefur starfsleyfi fyrir 300 þ.t. af áli á
ári, sem nemur 435 þ.t. heildarlosun
koltvísýrings, og getur hvenær sem
er ráðist í þá stækkun en hyggst ekki
nýta þessa heimild að sinni.
Við fyrsta hanagal
Blaðinu er nú dreift eldsnemma á morgnana
í 100 þús eintökum um land allt
Stóriðjuákvæðið: Ekki pláss
fyrir stækkun í Straumsvík
Þegar lagðar eru saman tölur um
losun koltvísýrings frá verksmiðj-
unum tveimur á Grundartanga,
nýja álverinu á Reyðarfirði og
Straumsvíkurverinu stækkuðu og at-
hugað hvað af þessari mengun fellur
undir „íslenská' stóriðjuákvæðið
samkvæmt Kyoto-samningunum
- kemur í ljós að losun frá verksmiðj-
unum nemur 1642 þúsund tonnum á
ári, sem er 42 þúsund tonnum meira
en stóriðjuákvæðið leyfir.
Ég hef lagt fram fyrirspurn til
umhverfisráðherra þar sem beðið
er um að þessar tölur séu staðfestar
og aðra þar sem spurt er hvernig ráð-
herrann ætlar að bregðast við.
Samkvæmt tölum mínum er ekki
pláss fyrir stækkunina í Straums-
vík innan stóriðjuákvæðisins. Hvað
þá stækkun í Straumsvík plús
Helguvík eða Húsavík á tímabilinu
2008-2012, gildistíma Kyoto-bókun-
arinnar. Hinsvegar kæmist annað
þeirra álvera fyrir samkvæmt stór-
iðjuákvæðinu ef ekki yrði stækkað í
Straumsvík.
Samkvæmt
tölum mínum
er ekki pláss
fyrir stækkun-
ina í Straums-
vík innan stór-
^ iðjuákvæðisins.
UmrϚan
Ákveði Norðurálsmenn að stækka
sína verksmiðju verður heildarlosun
raunar 1700 þ.t. á ári. Kvótinn sam-
kvæmt „íslenská' stóriðjuákvæðinu
er hinsvegar 1.600 þ.t. á ári. Framúr-
keyrsla í báðum tilvikum
Hvaða kanínur birtast úr
hattinum?
Nú verður fróðlegt að vita hvað
umhverfisráðherra - og ekki síður
iðnaðarráðherra - vill taka til
bragðs. Stundum hafa ráðherrar
gælt við hugmyndir um að túlka
stóriðjuákvæðið sem heildartölu
fyrir árin fimm, þannig að ekki
þurfi að standa við 1600 þ.t. á hverju
ári heldur hægt að reikna þetta sem
meðaltal. Sá galli er á þessari lítt
siðlegu túlkun - jafnvel þótt hún
stæðist samkvæmt alþjóðaskuld-
bindingum - að enginn veit hvað
við tekur árið 2013. Samningsstaða
íslendinga yrði afar bágborin, að
ekki sé minnst á æruna.
Kannski eiga álverin að kaupa sjálf
kvóta frá útlöndum - sem rynni þá í
almennu heimildina? Um þetta virt-
ist Valgerður Sverrisdóttir vera að
tala um daginn án frekari skýringa.
Eða þá ráðherrarnir ætlast til að við
hleypum álverunum inn í almenna
kvótann með því að draga saman
mengun frá bílum, fiskiskipum
og öðrum iðnaði til að álverin geti
mengað meira?
Nú - svo er auðvitað gamla góða
ráðið frá Loðvíki 15., síðasta Frakka-
kóngi fyrir stjórnarbyltingu: Synda-
flóðið kemur ekki fyrr en eftir minn
dag. Meinið er bara það að Alcan í
Straumsvík er á dagskrá núna strax.
Höfundur er alþingismaður
Alcoa í Reyðarfirði: 504 þús-
und tonna árleg losun
í álveri Alcoa verður losunin
um 504 þús.t. á ári. Álframleiðslan
verður 346 þús.t., en verksmiðjan á
sem kunnugt er að komast í gagnið
fyrrihluta árs (apríl).
Járnblendiverksmiðjan á
Grundartanga: 184 þúsund
tonna árleg losun umfram
í járnblendiverksmiðjunni á
Grundartanga voru framleidd 72 þ.t.
af járnblendi árið 1990. Verksmiðjan
var stækkuð árið 1999 sem nemur 42
þ.t. árlegri framleiðslu, og er koltví-
sýringslosun vegna þeirra 184 þ.t. á
ári.
Alcan í Straumsvík: 577 þúsund
tonna árleg losun umfram 1990
Verði af stækkun álvers Alcans í
Straumsvik verður 577 þ.t. árleg losun
frá álframleiðslu umfram þá sem
komin var í gang 1990. Þá voru fram-
leidd 88 þ.t. af áli í verksmiðjunni en
með stækkun hefðu 372 þ.t. bæst við
árlega framleiðslu, samtals 460 þ.t.
Samtals eftir 1990: 1.642 þúsund
tonn á ári
Hefur svo margt að segja
blaði