blaðið - 20.01.2007, Síða 30
34 LAUGARDAGUR 20. JANÚAR 2007
blaðið
MIÐAEIGANDI HJA HAPPDRÆTTI HASKOLANS VAR IVANDRÆÐUM
MEÐ ENDURNÝJUN EN TALDI SIG HAFA FUNDIÐ LAUSN Á VANDANUM
Gaf happdrættismiða
Unnur Sigurðardóttir, sem bjó
á Smiðjuhóli í Borgarfirði 'wið
1938, var í vandræðum með end-
urnýjun miða í Happdrætti Há-
skólans, en allt í einu taldi hún
sig hafa fundið lausn á þessum
vanda sínum. Hún hafði sam-
band við kunningja sinn sem bjó
í Reykjavík, Alfreð Björnsson, og
úr varð að hún sendi honum mið-
ann og fimm krónur sem áttu að
duga til endurnýjunar í nokkra
mánúði.
Alfreð endurnýjaði miðann
í tvö eða þrjú skipti en um sum-
arið fór hann til dvalar að Stóra-
Hofi í Gnúpverjahreppi.
Vinningur kemur á miðann
í ágústmánuði kom að Stóra-
Hofi Sigurborg Sigurðardóttir
frá Hafnarfirði ásamt syni sínum
Birni en Alfreð var faðir drengs-
ins.
Sigurborg hafði verið skamm-
an tíma að Stóra-Hofi þegar hún
sá happdrættismiðann hjá Alfreð
og spurði hann hver ætti miðann.
Hann sagði að Bjarni ætti hann.
Nafnið Bjarni nefndi Alfreð út í
bláinn. Alfreð bætti við að hann
gæti ekki endurnýjað miðann. Sig-
urborg spurði þá hvort hún mætti
eiga miðann og samþykkti Alfreð
það. Þá þótti Sigurborgu best að
Alfreð gæfi Birni syni þeirra mið-
ann og varð það úr. Sigurborg
endurnýjaði miðann næstu mán-
uði og í október kom 125 króna
vinningur á hann. Sigurborg end-
urnýjaði miðann til áramóta og
notaði afganginn af vinningnum
til heimilis síns.
Alfreð kærður
í þessum sama mánuði kom
Unnur Sigurðardóttir til Reykja-
víkur og frétti fljótlega að vinn-
ingur hefði komið á miðann. Hún
ætlaði að hafa tal af Alfreð vegna
þessa. Hann var ekki í bænum
og sneri Unnur sér þá til frænku
hans, Önnu Jónsdóttur, og sagði
henni frá því sem henni og Alfreð
hafði farið á milli.
Eftir að Alfreð kom aftur til
Reykjavíkur innti Anna hann eft-
ir miðanum. Hann neitaði að hafa
tekið við honum. Eftir að Unnur
kærði Alfreð til lögreglu játaði
hann að hafa fengið miðann send-
an, en neitaði að peningar til end-
urgreiðslu hefðu fylgt með.
Unnur gerði ekki kröfu um end-
urgreiðslu á vinningnum og var
henni hvorki greiddur hann né
hluti hans. í Aukarétti Reykjavík-
ur var Alfreð dæmdur í tuttugu
daga fangelsi.
Hæstarétti þótti refsingin full-
þung og mildaði dóminn í 200
króna sekt.
Sigurborg endurnýjaöi
miðann næstu mánuði og
í október kom 125 króna
vinningur á hann.
Gróska
él*
w
Ráðstefnustjórar eru
Hólmfríður Sveinsdóttir
stjórnmálafræðingur og
Steinunn Valdís Óskarsdóttir
borgarfulltrúi.
Aðgangurá
ráðstefnuna er
ókeypis
og eru allir
velkomnir
í íslenskum stjórnmálum
Ráðstefna um jafnaðarstefnuna í tilefni 10 ára afmælis Grósku.
Verður haldin að Hallveigarstíg 1 laugardaginn 20. janúar klukkan 13.30 - 18.00.
Gróska - In memorium
Aðdragandi að stofnun Grósku.
Björgvin G. Sigurðsson, alþingismaður
Hreinn Hreinsson, vefstjóri.
Lýðræði og flokkakerfið
Aukið lýðræði og aukin áhrif kjósenda.
Össur Skarphéðinsson, form. þingflokks
Samfylkingarinnar.
Jafnaðarstefnan og réttlætið
Hrafnkell Tjörvi Stefánsson, framkvæmdastjóri
Samtakanna 78.
Höfum við gengið til góðs?
Gildi menntunar í samfélaginu og staða íslands.
Bryndís Hlöðversdóttir, aðstoðarrektor á Háskólanum á
Bifröst.
Opið land
Samband íslands við umheiminn, staðan gagnvart ESB.
Eiríkur Bergmann Einarsson, dósent í stjórnmálafræði
við Háskólann á Bifröst
Hugmyndafræði jafnaðastefnunnar í
kapítalískum heimi
Kristrún Heimisdóttir, lögfræðingur.
Feminisminn og jafnaðarstefnan
Hvernig hefur hugmyndum Kvennalistans reitt af í
Samfylkingunni.
Oddný Sturludóttir, borgarfulltrúi.
Draumaland jafnaðarmanna
Jafnaðarstefnan og umhverfisvernd.
Dofri Hermannsson, framkvæmdastjóri þingflokks
Samfylkingarinnar.
Almannaheill og frjáls vilji
Tilbrigði við heilbrigði
Héðinn Unnsteinsson, sérfræðingur í
geðheilbrigðismálum.
Efnahagskerfið og jafnaðarstefnan
Áherslur jafnaðarmanna og efnahagskerfið.
Guðný Hrund Karlsdóttir, viðskiptafræðingur og
frambjóðandi Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi.
Úr stjórnmálum í fjölmiðla og aftur til baka
Hvernig líta fjölmiðlamenn á stjórnmál, eru fjölmiðlar
hlutdrægir?
Róbert Marshall, blaðamaður og frambjóðandi
Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi.
Framtíð flokkakerfisins - framtíð
samfylkingarinnar
Katrín Júlíusdóttir, alþingismaður, leiðir umræður meðal
framsögumanna og gesta.
Lokaorð - Ný stjórn jafnaðarmanna
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar.
Gróskugleði kl. 18 -20
Baráttusöngvar - Róbert Marshall.
Veislustjóri - Helgi Hjörvar.