blaðið - 20.01.2007, Qupperneq 38
42 LAUGARDAGUR 20. JANÚAR 2007
blaðið
Um ævina borð-
arðu mat sem
vegur á við 6 fila!
Það er bannað með lögum
að ropa eða hnerra í kirkjum
í Omaha, Nebraska!
Kanínur eru fallegar
og mjúkar en stund-
um agalega feimnar
við mannfólkið.
Hvernig hestur getur
synt neðansjávar?
Sæhestur!
Hvaða mus var
rómverskur keisari?
Júlíus Sesarostur
Hver er kóngur alira músa?
Mús Tse Tung!
Hvenær ætti mús að ganga
með regnhlíf?
Þegar það rignir köttum
og hundum!
Hvað er með 12 lappir,
sex augu, þrjá hala og getur
ekki séð?
Þrjár blindar mýs!
Hvernig veistu að uglur eru
klárari en kjúklingar?
Hefurðu einhvern tímann
heyrt um Kentucky-uglubita?
Af hverju eru mýs með
langa hala?
Þær litu skringilega
út með sitt hár!
Af hverju fór kjúklingurinn
yfir veginn?
777 að sanna fyrir pokabirn-
inum að það væri hægt!
Af hverju fór haninn
yfirveginn?
Afþví að hann er svo galinn!
Krakkarnir í Krakkakoti hugsa vel
um dýrin sín. I Krakkakoti búa nag-
grísir, kanínur, páfagaukar og froskar
Dýr þurfa mikla ást og umhyggju.
Það þarf að hugsa um að þau hafi
hollan og góðan mat að borða, vin-
skap, að þau fái hreyfingu og að leika
sér. Rétt eins og við. Krákkarnir í
Krakkakoti gefa dýrunum sínum
góðan mat og leika við þau.
ttawai
i *
V V.l
Krakkarnir á Krakkakoti með dýrunum sínum
Mus musculus
Að eiga mús fyrir gæludýr
alla daga
Auglýsingasíminn er
510 3744
Mus musculus er vísindaheitið
yfir mús. Mús er rúmlega 6 cm að
lengd, en þegar halanum er bætt við
er músin orðin yfir 12 cm löng.
Músaskýrsla:
Æviskeið músar:
Eitt til þrjú ár.
Útlit: Mýs eru alls kyns,
svartar, hvítar, svartar
og hvítar, bláleitar, fjólu-
bláar (jú víst) og ljósgráar.
Sumar hafa sléttan, gljá-
andi feld en aðrar þykkan
og krullaðan feld.
Mýs eru spendýr af nagdýraætt
og eru með framtennur sem hætta
aldrei að vaxa. Frændsystkini þeirra
eru til að mynda rottur, hamstrar og
naggrísir.
Félagsskapur: Ein mús í húsi er
víst ekki nóg. Eins og þú þarf mús
vini. Ef þú átt tvær músastelpur
verða þær bestu vinkonur. Ef þú átt
tvo músastráka er líklegt að þeir
verði alltaf að slást og rífast, sérstak-
lega eftir því sem þeir verða eldri.
Það er ekki sérlega góð hugmynd
að hafa saman músastelpu og músa-
strák nema foreldrum þínum sé
sama þótt húsið verði undirlagt af
músum.
Nammi namm: Mýs
eru algerir mathákar. Þær
vilja sífellt vera að naga og
borða. Þú þarft að kaupa
sérstakan músamat handa
mýslunum þínum. Þú
þarft líka að sjá mýslunum
fyrir fersku vatni á hverjum
degi. Best finnst
þeim að drekka
vatnið úr vatnspela sem
hangir í búrinu. Þá
kúka þær líka ekki óvart
í vatnið.
Mýs elska líka að
fá stundum ferska
ávexti og grænmeti
og þú ættir að gefa
þeim ferskmeti
á hverjum degi.
Baunir, gulrætur, gúrkur, epli og
banana. Þú þarft að skera græn-
metið í agnarsmáa bita.
Aldrei gefa þeim þetta: Súkku-
laði, kál, maís, lauk, rabarbara, salt-
hnetur, sælgæti, tyggjó eða gos.
Heima er best: Músahamingjan
er hámörkuð ef þú leyfir þeim að
búa í hreinu, stóru og góðu búri.
Hvort sem það er vírbúr eða gler-
búr (fiskabúr). Búrið þeirra þarf að
vera í herbergi sem er ekki of kalt
og ekki of hávaðasamt. Þær þurfa
að eiga skjól í búrinu, eitthvað sem
þær geta skriðið undir til að hvíla
taugarnar eða lúlla.
Músahirðir:
Nýja starfið þitt
sem sérlegur
músahirðir og músa-
vinur er mikilvægt
og músavinir þínir
treysta á þig. Þú þarft
að gefa þeim
hreint vatn og
þrífa búrið reglulega með sápu og
vatni. í botninum á búrinu er gott
að hafa sag sem þú skiptir um reglu-
lega (þær kúka og pissa í búrið!).
Músaleikfimi: Þú getur tamið
mýsnar þínar til að gera allskyns
skemmtilega hluti þegar þær eru
farnar að treysta þér. Þú ættir að
sleppa þeim úr búrinu einu sinni á
dag. Þú getur fundið upp á allskyns
sniðugum leikjum og búið til leikja-
svæði fyrir þær úr pappakassa sem
þú skerð göt í.