blaðið - 20.01.2007, Síða 44
4 8 LAUGARDAGUR 20. JANÚAR 2007
blaðiö
í
Matarást á
laugardögum
í NAUTI ERUM VIÐ BESTIR
GRENSÁSVEGI 48 • SÍMI 553 1600
Heróín er kallað ýmsum nöfnum eins og big H, blacktar, brown sugar, dope, horse,
junk, mud, skag og smack. Efnið er mjög ávanabindandi vegna þess hve hratt
áhrifin koma fram. Að meðaltali eyðir heróínfíkill um 15.000 krónum á dag í efnið.
Ofneysla fíkniefna er fjórða algengasta orsök dauðsfalla fólks á aldrinum 25 til 49
ára í RRndaríkiiiniim
hefur fólk látist af völdum of stórra
skammta, þarna hefur konum ver-
ið nauðgað og menn myrtir.
degi hverjum sem sjá hag sinn i
því að fá hreint heróín langt undir
markaðsverði.
Neyslan fjarmögnuð
Glæpatíðnin er engu að síður
frekar lág í bænum vegna þess
að aðgengi að efninu er auðvelt
og verðið lágt og þær konur sem
neyðast til þess að selja sig til þess
að fjármagna neysluna eru örugg-
ari hér en á götum stórborganna.
Vændi er stundað dag og nótt í Wil-
limantic og virðist mönnum sama
þó að eiginkonur þeirra og kærust-
ur stundi vændi enda er það eina
leið margra til þess að eiga fyrir
neyslunni.
Willimantic er smábær í Banda-
ríkjunum með um 16.000 íbúa. I
fljótu bragði virðist bærinn ekki
frábrugðinn öðrum smábæjum þar
sem lífið gengur sinn vanagang og
bæjarbúar njóta lífsins íjarri stór-
borginni. Bærinn á sér hins vegar
dökka hlið sem fáir þekkja en stór
hluti bæjarbúa á við vandamál að
stríða og það er vandamál sem ekki
er við að búast að finna í hefðbund-
um úthverfum eins og þessu. Stóra
vandamálið snýst um heróín en efn-
ið hefur haft tangarhald á íbúunum
í nokkra áratugi og nú er bærinn
betur þekktur sem Heroin town.
Willimantic-áin rennur í gegn-
um bæinn en hún var einu sinni
virkjuð fyrir verksmiðju bæjarins.
Nú fara fíklar að bökkum árinnar
til þess að svala fíkninni og nálar
og plastpokar menga bakka henn-
ar.
Jessica Canwell er heróínfíkill
og hefur verið það síðan hún var
aðeins 10 ára gömul. „Þetta lítur
til að byrja með út fyrir að vera ró-
legur, hefðbundinn bær enda bæj-
arbragurinn slíkur. En það er ekki
allt sem sýnist. Flestir halda að efni
eins og heróín séu aðeins vandamál
í stórborgunum en svo er alls ekki,“
segir Canwell.
Willimantic hefur verið í uppá-
haldi eiturlyfjasala í nokkra ára-
tugi enda fá þeir að stunda iðju sína
þar nánast óáreittir og viðskiptin
blómstra, enda eftirspurnin næg.
Það eru ekki aðeins bæjarbúar sem
eru traustir viðskiptavinir heldur
kemur til bæjarins fjöldi fíkla á
Bæjarbúar kynnast efninu
Árið 1965 fór fyrst að bera á efn-
inu í Willimantic en það barst lík-
lega með verkamönnum frá Púertó
Ríkó. Efnið var ódýrt og fljótlega
beið fólk í röðum eftir að verða sér
úti um skammt á aðeins um 500
krónur.
Lögreglan áttaði sig ekki á vanda-
málinu fyrr en of seint var að grípa
í taumana og í kringum 1980 var
ekki nokkur leið fyrir lögregluna
að takast á við vandann og bærinn
varð fljótlega þekktur fyrir að vera
gróðrarstía eiturlyfjaneyslu og -
sölu og margir fíÚar hafa séð sér
færi og sest þarna að.
1 Willimantic er hægt að verða
sér úti um efni allan sólarhringinn.
Bæði framboð og eftirspurn er svo
mikil að efnið er ódýrt og hefur
verðið á gramminu ekki hækkað
í mörg ár og er auðveldara fyrir
unga fólkið að verða sér úti um her-
óín heldur en bjórkippu.
Hooker Hotel
Fíklarnir eiga sér aðsetur á hót-
eli sem kallast Hooker Hotel en
einu sinni var það meðal dýrari
gististaða á svæðinu. Núna er það í
niðurníðslu og þarna koma saman
þeir sem eiga hvergi höfði sínu að
halla, bæði fíklar og fólk sem á við
geðræn vandamál að stríða.
Hvert herbergi á sér sorgarsögu
um mannlegan harmleik, en þarna
Vandamái kynslóða
Heróínneyslan berst á milli kyn-
slóða og nú eru það börn fíkla sem
voru handteknir fyrir 20 árum
sem eru að lenda í vanda vegna
neyslu sinnar. Jessica Canwell seg-
ist eiga áfengis- og eiturlyfjasjúka
móður sem varpaði henni á dyr
þegar hún var aðeins 10 ára göm-
ul.
„Ég ráfaði um göturnar og átti
mér engan samastað og endaði að
lokum á Hooker Hotel. Þar kynnt-
ist ég manni sem var eldri en ég.
Ég vissi að hann var heróínfíkill en
ég átti engan að hvort sem var og
byrjaði að nota efnið líka. Það var
gaman til að byrja með en ég varð
fljótlega háð því og myndi gera allt
til þess að losna undan þvi.“
hilda@bladid.net
Heróín