blaðið - 03.02.2007, Side 8

blaðið - 03.02.2007, Side 8
8 LAUGARDAGUR 3. FEBRUAR 2007 m I 1 ^ r Mh’ Þ ' UTAN ÚR HEIMI Fjórtán deyja í fárviðri Fjórtán létust og fjöldi slasaðist í fárviðri sem gekk yfir Flór- ída-ríki í Bandaríkjunum í gærmorgun. Fjöldi húsa eyðilagðist, tré rifnuðu upp með rótum og rafmagn fór af víða, auk þess sem samgöngur röskuðust víða. Skemmdirnar urðu mestar í Lake-sýslu og hafa stjórnvöld varað við frekara óveðri. Lögregla gagnrýnd Tyrkneskir fjölmiðlar hafa gagnrýnt tyrknesku lögregluna harðlega eftir að myndir náðust af Ogun Samast, meintum morðingja tyrknesk-arm- enska blaðamannsins Hrant Dink, í fylgd lögreglu þar sem virðist sem farið sé með Samast eins og hetju. Búið er að reka fjóra lögreglumenn vegna málsins og hafa fjórir aðrir verið færðir til í starfi. blaöiö Umdeildur dómur Hæstiréttur mildaði dóm yfir karimanni sem var fundinn sekur um kynferðis- brot gegn fimm stúlkubörnum. Hæstiréttur mildar dóm yfir kynferðisbrotamanni: Taktlaus dómur Hæstiréttur mildaði í fyrradag dóm yfir karlmanni sem dæmdur hafði verið í tveggja ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir kynferðisbrot gegn fimm stúlku- börnum. Var maðurinn dæmdur til að sitja í fangelsi í 18 mánuði auk þess að greiða fórnarlömbunum 2,4 milljónir í miskabætur. RagnheiðurHarðardóttirvararik- issaksóknari sem flutti málið fyrir hönd ákæruvaldsins, segir að nið- urstaða Hæstaréttar sé ekki í takt við þá dóma sem fallið hafa í sam- bærilegum málum að undanförnu. „Á síðari árum hafa þessir dómir verið að þyngjast. Þróunin er hæg og það er eðlilegt þegar breytingar verða á refsiákvörðun í einhverjum brotaflokki. En það er ekki hægt að segja að þessi dómur sé í samræmi við þá þróun.“ ■ Myrti konu sína og tvö börn ■ Vann sjötíu tíma á viku síðasta árið ■ DEBET MEÐ KREDIT * \ ^ »é**w***'‘' Til 1 rnai's nk. fá nýir viðskiptavi nir í DMK Sjafabréffyrirtvo, Borgarieikhúsinu. Kreditheimild með 0% vöxtum og engum kostnaði í DMK! Stundum geta komið upp þær aðstæður að þörf er á láni til skamms tíma. Þá kemur sér vel að eiga DMK Debetkort með kreditheimild* á 0% vöxtum. Nýttu þér þessi einstöku kjör. Sæktu um DMK á spron.is Aðrir þættir DMK þjónustunnar eru: • DMK Yfirdráttarheimild • DMK Tiltektarlán • DMK Létt/án • DMK 90% ibúðalán • DMK Ráðgjöf • DMK Reglulegur sparnaður • DMK Tilboð Nánari upplýsingar fást í næsta útíbúi SPRON, í þjónustuveri í síma 550 1400 eða á spron.is * skv. útlánareglum SPRON spron Eftir Atla isleifsson atlii@bladid.net Norska lögreglan telur að ör- vænting og mikið vinnuálag hafi orsakað það að fjölskyldufaðir í Stavangri myrti konu sína og tvö börn áður en hann tók eigið líf síðastliðinn miðvikudag. Heimilis- hjálp fjölskyldunnar kom að húsi fjölskyldunnar á fimmtudaginn þar sem hún fann miða þar sem á stóð „Við erum inni á baðherberg- inu. Hringdu á lögregluna." Atle Thomas Johansen var 46 ára gamall háttsettur starfsmaður ol- íufyrirtækisins British Petroleum (BP) og var ábyrgur fyrir margmillj- arðaverkefni á vegum fyrirtækis- ins. Johansen fékk þau skilaboð á föstudaginn að verkefninu yrði seinkað og kostnaður myndi fara langt fram úr áætlun. Samkvæmt norskum fjölmiðlum á Johansen að hafa verið undir miklu álagi og unnið rúmlega sjötíu klukku- stundir að meðaltali undanfarið ár. Lögregla telur að Johansen hafi kæft Hilde, eiginkonu sína, Ari- anne, tólf ára dóttur sína, og Victor, átta ára son sinn, áður en hann tók sitt eigið líf. „Við teljum að þau hafi verið myrt í svefni," segir Karsen Monsen, talsmaður lögreglunnar. íbúð fjölskyldunnar er ein þriggja í fjölbýlishúsi í rólegu íbúðahverfi í Stavangri á suðvesturströnd Noregs. Johansen sendi vinnufélaga sínum tölvupóst skömmu áður en hann á að hafa myrt fjölskyldu sína þar sem hann sagðist ekki hafa orku í að halda áfram og benti á að eitt- hvað kynni að koma fyrir fjölskyld- Heimili fjölskyldunnar Heimilis- hjálpin kom að fjölskyldunni látinni inni á baðherberginu. una. Sálfræðingurinn Kjell Noreik segir í samtali við Aftenbladet að svo virðist sem Johansen hafi verið mjög metnaðarfullur maður og að hann hafi gert mjög miklar kröfur til sjálfs sín. „Hann hlýtur einfald- lega að hafa náð þeim mörkum að hann gat ekki rneira." Nágrannar og vinir fjölskyld- unnar lýsa henni sem vel settri fjölskyldu þar með hjónin voru bæði í vel launuðum störfum, en Hilde starfaði í banka í borginni. Fjölskyldan hafði í hyggju að flytja inn í nýtt hús á næstunni með út- sýni yfir hafið. Johansen heimsótti verkamennina sem voru að störfum daginn áður en hann myrti fjöl- skylduna og segir einn verkamað- urinn að hann hafi hegðað sér eins og vanalega. Syrgjandi vinir og bekkjarfé- lagar barnanna söfnuðust saman við heimili fjölskyldunnar á fimmtudaginn þar sem þau skildu eftir blómvendi og skilaboð á tröpp- unum. Flaggað var í hálfa stöng viða í Stavangri á fimmtudaginn, meðal annars í Madlamark grunn- skólanum, skóla barnanna tveggja. Arianne og Victor Faöirþeirra kæfði sofandi börnin.

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.