blaðið - 16.02.2007, Blaðsíða 1

blaðið - 16.02.2007, Blaðsíða 1
33. tolublaó 3. árgangur föstudagur 16. febrúar 2007 FRJÁLST, OHÁÐ & ÓKEYP/S! ■ FOLK „Ég hef reynt að horfa sem mest á Little Britain, mér finnst þeir alveg frábærir. Akkúrat minn húmor," segirLaddi |síðai6 ■ MATUR Gunnþórunn Einarsdóttir matvælafræð ingur segir áhuga sinn á mat ekki tengjast starfinu heldur liggi áhug- inn í ættinni | síða22 Fyrrum fréttaritari Vísis og DV: Falsaði viðtöl við ráðherra ■ Bara hægt með Steingrím ■ Mér þykja þetta fréttir, segir Steingrímur ■ Þetta er vont mái Eftir Trausta Hafsteinsson trausti@bladid.net „Ég gat búið til heilar fréttir innan gæsalappa án þess að hafa náð í hann en ég var samt ekki að búa til neitt bull. Ég var mjög viss í því hvað ég var að gera. Skemmtilegast í þessu er að hann gerði aldrei athugasemdir og hefur sennilega ekki einu sinni tekið eftir því,“ segir Herbert Guðmundsson, framkvæmdastjóri og ritstjóri. Hann staffaði um áratugaskeið á þeim níunda sem fréttaritari Vísis og DV. Herbert hefur lýst því yfir að hafa í einstaka tilvikum skrifað fréttir með beinum tilvísunum í orð þáverandi forsætisráðherra, Steingrím Her- mannsson, án þess að hafa náð tali af honum. Steingrímur undrast að blaðamaður leyfi sér að að viðhafa slík vinnubrögð. „Mér líst stórilla á ef aðrir hafa leyft sér að tala fyrir mig. Ég er mjög hissa á þessu og þetta er eitthvað sem eng- inn ætti að gera. Mér þykja þetta fréttir," segir Steingrímur. - Birgir Guðmundsson, blaðamaður og lektor við Háskólann á Akureyri, er hissa á slíkum vinnu- brögðum. Hann bendir á að Steingrímur hafi aldrei kvartað yfir orðum sem eftir honum voru höfð. „Ég hef aldrei heyrt þetta fyrr og þetta er vont mál. Ég vona að svona lagað þekkist ekki í dag og held að fagleg vitund komi í veg fyrir að nokkrum dytti slíkt í hug. I raun er ég mjög hissa á þessu," segir Birgir. „I fyrsta lagi undrast ég að nokkur hafi gert svona lagað. í öðru lagi að nokkur skuli segja frá því. í þriðja lagi að nokkrum skuli þykja þetta í lagi.“ Aðspurður ítrekar Herbert að slík vinnubrögð séu ekki eitthvað sem blaðamenn eigi að tileinka sér. Hann segir Steingrím hafa verið eina stjórn- málamanninn sem þessi aðferð virkaði á. „Þetta kom sjaldan fyrir en það er engu að síður merki- legt að ég hafi komist upp með þetta. Steingrímur var líklega eini maðurinn sem ég gat haft eitthvað eftir án þess að tala við hann,“ segir Herbert. „Al- mennt eru slík vinnubrögð alveg útilokuð og eitt- hvað sem maður gerir ekki.“ Rennsli íslenska dansflokksins (slenski dansflokkurinn stendur í ströngu þessa dagana viö aö leggja lokahönd á tvö dansverk sem veröa frumsýnd 23. febrúar næstkomandi, en sýningin ber titilinn „I okkar nafni". Um er aö ræöa frumsamin verk eftir tvo erlenda danshöfunda, hinn kanadíska André Gingras og Roberto Oliván frá Spáni, en þeir eru báöir þekktir og virtir danshöfundar víöa um heim. Blaðið ræðir við Roberto Oliván. Sjá nánar á blaðsíðu 20. Chrysler í vanda Til greina kemur að Daimler-Chrysler hætti aö framleiða bandaríska bíla með öllu. Ástæðan er stórtap á þeim hluta fyr- irtækisins sem sér um framleiðslu á þeim. ■ VEÐUR » siða 2 I ORÐLAUS » síðui' 34 Skútum eða éljum, un Gamlir snúa aftur Hver hefði trúað því að árið 2007 myndum við sjá auglýst tónleika- W ferðalög með hljómsveitunum Deep Purple, Duran Duran, The Jm Who og The Police? Þetta virð- ist ætla aö veröa raunin í ár. ■ ORÐLAUS Skoðanir Sigrúnar Sigrún Bender flugnemi og Haukur Heiðar Hauksson læknanemi viðra skoðanir sínar við Orð- laus. Skoð- anir þeirra stangast vart á nema þegar talið berst að fegurðar- samkeppnum. FRETTIR » siða 32 » síða 4 Sjúkraflutningar án leyfa „Ég veit að GT verktakar hafa ekki rekstrarleyfi til sjúkraflutninga," segir Vernharð Guðnason, framkvæmdastjóri Landssambands slökkviliðsmanna. Við upphaf virkjanaf ramkvæmda við Kárahnjúka fékk Impregilo rekstrarleyfi til sjúkraflutninga frá heilbrigðisráðuneyt- inu eftir tilmæli þess efnis frá embætti landlæknis. Sfðar framseldi fyrirtækið sjúkraflutningana til verktakafyrir- tækisins GT verktaka án þess að hið síðarnefnda hefði til þess löggilt leyfi frá heilbrigðisráðherra. eftir Prokofiev

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.