blaðið - 16.02.2007, Blaðsíða 24

blaðið - 16.02.2007, Blaðsíða 24
24 FÖSTUDAGUR 16. FEBRÚAR 2007 blaöiö yrir rúmum áratug þótti Eddu Jónsdóttur myndlistarmanni íslenskt myndlistar- líf hafa heldur litla möguleika til að utvíkla sig, heldur fá- breytt flóran í galleríum og vildi hún gera eitthvað í málunum. Sérstaklega vildi hún geta selt og kynnt verk íslenskra listamanna erlendis og komast í tæri við góða safnara, söfn og gallerí. í nóvember árið 1995 stofnaði hún Gallerí i8 sem dró nafn sitt af heimilisfangi þess í Ingólfsstræti 8. Þó að galler- íið sé nú til húsa á Klapparstíg 33 ber það enn sama nafn og þar hafa verið haldnar yfir 80 sýningar frá upphafi. Gallerí i8 hefur jafnframt unnið ötullega að því að kynna ís- lenska og erlenda samtímamynd- listarmenn bæði hér heima og erlendis. Edda segir að þróun gallerísins hafi verið betri en hún hafi séð fyrir þegar hún hóf reksturinn á sínum tíma. „Þetta var mjög mikið átak en reksturinn hefur verið mjög já- kvæður undanfarin þrjú til fjögur ár og meiri bjartsýni ríkir. Maður hefur þorað að ráða fólk og fara út í hluti sem mann dreymdi ekki um. Það var auðvitað mikil áhætta fyrir eina manneskju að fara út í þetta eins og ég gerði á þeim tíma. Nú er ég orðin miklu vissari um að þetta gangi allt upp til lengri tíma,“ segir Edda. „Þetta er orðið mun meira spenn- andi enda erum við jafnvel farin að líta til útlanda og höfum verið að tala um að kíkja eftir húsnæði í Berlín. Það getur vel verið að það verði af því. Við erum að kanna þau mál í rólegheitunum en það er mikil gróska í Berlín og myndlistar- menn safnast þangað í stórum stíl segir Edda. Veglegt afmælisrit fnóvember síðastliðnum fagnaði galleríið 11 ára afmæli sínu og af því tilefni kom út veglegt afmælis- rit sem heitir einfaldlega 11 ár. í bók- inni sem er bæði á ensku og íslensku eru myndir af verkum valinna lista- manna sem sýnt hafa í galleríinu frá upphafi og saga þess þannig rakin í myndum. Þá er einnig að finna í bókinni greinar eftir Sigurð Guðmundsson myndlistarmann, Guðberg Bergsson rithöfund og list- fræðingana Evu Heisler og Halldór Björn Runólfsson. Auður Jörundsdóttir, ritstjóri bók- arinnar og starfsmaður Gallerís i8, segir að þau hafi viljað koma með innlegg í umræðuna um myndlist en ekki aðeins vera með sögulegt yfirlit um það sem hefði verið gert í galleríinu. Edda Jónsdóttir tekur undir það og bendir á að bókin komi einnig til með að nýtast þeim vel erlendis. „Við sjáum að það auðveldar okkur mjög við að kynna okkur að vera með bók sem hægt er að fletta í gegnum og sjá hverjir hafa sýnt hérna auk greina um listalífið,“ segir Edda. Auður segist samt vona að ritið sé annað og meira en aðeins kynning- arefni. „Við vildum líka gæta þess að það hefði eitthvert menningar- legt gildi. Þetta átti ekki aðeins að vera fínn auglýsingabæklingur," segir hún enda bókin gefin út í sam- vinnu við Háskólaútgáfuna sem menningarleg viðbót um myndlist og myndlistarmenn. „Við höfum verið heppin að því leyti til að við höfum fengið til liðs við okkur frábæra listamenn og það er mikill fengur fyrir galleríið að þeir treysti okkur. Ef maður fer í gegnum bókina sér maður að það hafa að minnsta kosti fimm af þessum myndlistar- mönnum verið valdir á Feneyjabí- enalinn og allir eiga verk í söfnum þannig að það er hægt að treysta því að listamennirnir sem við sýnum eru mjög vandaðir listamenn. Við veljum og bjóðum lista- mönnum að sýna hjá okkur og það hefur aldrei nokkur maður sagt að hann vildi ekki sýna hérna,“ segir hún. Þó að íslenskir myndlistarmenn séu í meirihluta þeirra listamanna sem Gallerí i8 hefur umboð fyrir hefur það einnig nokkra erlenda myndlistarmenn á sínum snærum. .,Við viljum halda galleríinu áfram alþjóðlegu þannig að hluti af þeim listamönnum sem við sýnum komi annars staðar frá. Ef við værum bara með íslenskar sýningar kæm- umst við ekki heldur inn á almenni- lega sýningarstaði erlendis," segir Edda. Lítill markaður á fslandi Einnig verður að taka tillit til þess að markaður með íslenska og erlenda samtímalist hér á landi hefur ekki verið mjög stór. „Það hefur verið mjög Htill mark- aður og í byrjun voru þær tekjur sem við fengum inn meira og minna í gegnum erlenda myndlist sem var seld erlendis. Svo hefur það náttúr- lega breyst og það er orðið miklu eðlilegra ástand. Þegar maður er að reka svona gallerí er auðvitað eðlilegast að það sé verslað hérna „Þegar fólk sér að myndlist kostar peninga og getur hækkað í verði. Þá gæti komið að því að íslend- ingar færu að sækjast eftir að vita meira og mennta sig betur á þessu sviði þó ekki væri til annars en að kunna að kaupa myndlist sem hækkar í verði." með myndlist. Við höfum aldrei haft áhuga á að vera í einhverju styrkjakerfi en aðstæður á íslandi hafa verið þannig þangað til núna að það hefur verið þörf á því,“ segir Edda og bendir á að á móti komi að galleríið hefur veitt ýmsa þjónustu, til dæmis við skóla og nemendur í listfræði og fleiri sem sambærileg gallerí erlendis myndu ekki gera. Myndlistarmarkaðurinnálslandi hefur breyst á þeim tíma sem Edda hefur rekið galleríið. Fyrirtæki fjár- festa í auknum mæli í myndlist og einnig hefur myndast kjarni fólks sem safnar samtímamyndlist. „Það er afskaplega gaman að geta sýnt fólki sem hefur til dæmis keypt verk hjá okkur sem gerð hafa verið í nokkrum eintökum, til dæmis eftir Ólaf Elíasson, Roni Horn og Lawr- ence Weiner, að þau hafi nýlega verið seld á uppboði hjá Christies á fjórföldu því verði sem það borg- aði fyrir þau. Þá fyrst áttar fólk sig á að þetta er góð fjárfesting," segir Edda og bendir jafnframt á að viss skekkja hafi verið á markaði með verk íslenskra myndlistarmanna. „Það eru svo fáir listamenn á íslandi sem hafa eitthvert mark- aðsverð en það má segja að hérna á íslandi hafi ungir og óreyndir listamenn verðlagt sig mjög óraun- hæft, meir en eðlilegt getur talist, en þekktari og betri listamenn hafa í rauninni verið á alltof góðu verði,“ segir Edda en bætir við að þetta sé að breytast hægt og rólega. „Nú er tími fyrir fólk að fjárfesta áður en nokkrir af okkar íslensku lista- mönnum snarhækka í verði sem gerist um leið og þeir fara að seljast betur erlendis,“ segir hún. Kynning á íslenskri list erlendis Gallerí i8 hefur unnið ötullega að kynningu á íslenskum myndlistar- mönnum erlendis á undanförnum árum. Edda Jónsdóttir segir að vel hafi gengið að koma íslenskri samtímalist á framfæri erlendis og það fari aðallega fram á þeim listakaupstefnum sem galleríið tekur þátt í. Hægt er að koma list á framfæri með ýmsum leiðum svo sem kaupstefnum, sýningum og persónulegum samböndum lista- manna og galleríeigenda og segir Edda að þessar leiðir styðji vel hver við aðra. „Að selja list er mjög persónulegt og gott traust á milli manna skiptir aðalmáli," segir hún. „Það hefur eiginlega verið regla að ef erlendir safnarar hafa keypt einu sinni af okkur þá eru þeir áfram í samskiptum við okkur. Þeir vilja hafa viðskipti áfram við galleríið. Þeir vilja fylgjast með hvað okkar listamenn sem þeir keyptu af eru að gera. Er eitthvað væntanlegt frá þeim? Hvar eru þeir búnir að sýna? Eftir hverja einustu listkaupstefnu sem við höfum farið á erum við komin i samskipti við nýjan hóp. Það er ótrúlega mikið um að fólk hafi ferðast hingað eftir að hafa kynnst okkur úti þannig að við erum tengiliður við menningarlega

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.