blaðið - 16.02.2007, Blaðsíða 20

blaðið - 16.02.2007, Blaðsíða 20
20 FÖSTUDAGUR 16. FEBRÚAR 2007 blaöiö menning@bladid.net Á hátíöinni koma fram margir helstu blústónlistarmenn Islands ásamt sænsku hljómsveitinni Jump 4 Joy. Aðgangur verður ókeypis. Bók Yrsu á eistnesku Eistneska bókaforlagið Varrak, sem er eitt stærsta útgáfufélag Eistlands, hyggst gefa út glæpasög- una Þriðja táknið eftir Yrsu Sigurðar- dóttur á eistnesku. Þar með er Ijóst að Þriðja táknið kemur út á 27 tungumálum í öllum byggðum heimsálfum ver- aldar, auk þess sem þýskir aðilar undirbúa gerð kvikmyndar eftir sögunni. Önnur glæþasaga Yrsu, Sér grefur gröf, sem kom út hér á landi fyrir síðustu jól, er væntan- leg á þrettán tungumálum víða um heim. °9 Auour Listir, menning fötlun our Ólafsdóttir rithöfundur og Ingólfur Margeirsson, rithöfundur og sagnfræðingur, halda erindi um listir, menningu og fötlun í Norræna húsinu frá klukkan 12 til 13 í dag. Þar fjallar Auður um sköpun og þýðingu fótalausra og mállausra ofurhetja í skáldsögum sínum Upphækkuð jörð og Rign- ing í nóvember. Ingólfur hyggst fjalla um hinn huglæga þátt fötlunar, hugann, daglega menningu, sjálfstæði og þrá öryrkja eftir því að taka þátt í daglegri menningu auk mikilvægis menningar og menntunar í lífi öryrkja. Fyrirlestrarnir eru hluti fyrirlestra- raðar sem haldin verður í febrúar, mars og maí á vegum Rannsókna- seturs í fötlunarfræðum og er hluti af menningarhátíð fatlaðra, List án landamæra. Kraftur lands og náttúru Eftir Hildi Eddu Einarsdóttur hilduredda@bladid.net Þessa dagana er Islenski dansflokk- urinn að leggja lokahönd á tvö frumsamin verk sem verða frum- sýnd þann 23. febrúar næstkom- andi. Sýningin ber titilinn „I okkar nafni“ og í henni eru tvö verk eftir erlenda danshöfunda, þá André Gingras frá Kanada og Roberto Oli- ván frá Spáni, en báðir hafa getið sér mjög gott orð. Blaðið náði tali af þeim síðarnefnda, en verk hans ber enska heitið In the name of the land. „The land í þessu tilfelli hefur tvöfalda merkingu. Annars vegar þýðir það land í eiginlegum skiln- ingi þess orðs, það er að segja land sem einhverjir menn hafa slegið eign sinni á, og hins vegar vísar það til allrar jarðarinnar, án skipt- ingar,“ útskýrir Roberto. (slensk náttúra í öndvegl Roberto er nú staddur í þriðja skipti á íslandi og segist mjög hrif- inn af íslenskri náttúru, enda sæki hann innblástur í hana í verkinu. „Þemað er reyndar alþjóðlegt þar sem fjallað er á gagnrýninn hátt um umgengni mannsins við náttúruna. Menn hafa slegið eign sína á jörðina og skipt henni í eignir og lönd. En það er mjög mikilvægt að fólk átti sig á því að jörðin er eign okkar allra og við verðum að hugsa á hnattræn- an hátt og koma fram við náttúruna af virðingu“ segir hann. Ádeiluverk Myndirðu segja að verkið vœri pólitískt? „Ég er ekki frá því að það sé það. Þetta er þema sem á mjög vel við á íslandi nú í dag þar sem Islendingar standa á hálfgerðum krossgötum. Annaðhvort getið þið valið að byggja þjóðfélagið upp í fullkominni sátt og virðingu við náttúruna, eða þið getið farið þá leið að eyðileggja hana frekar. Auk þess má segja að hægt sé að sjá út úr verkinu annað hvort ádeilu eða spegilmynd af þjóðfélaginu og því sem er að gerast í heiminum.“ Náttúran er Roberto afar hug- leikin, bæði í þessu verki og öðrum sem hann hefur gert. „Það er ein- mitt svo mikilvægt að allir fari að hugsa á hnattrænan hátt og samein- ast um að bera virðingu fyrir nátt- úrunni til þess að sporna við hlýn- un jarðar,“ segir hann ákveðinn. Séríslensk tónlist Tónlistin í verkinu er úr hinum mögnuðu tónverkum Heklu og Ele- gíu eftir Jón Leifs. „Það er í raun táknrænt að við notum verkið Heklu, þar sem það er mjög sérís- lenskt aukþess sem eldfjallið Hekla sýnir okkur hvað náttúran býr yfir miklum krafti og lætur ekki buga sig. Auk þess leikum við okkur dá- lítið með hugmyndir um álfa og huldufólk úr íslenskum þjóðsög- « um. Meðvitaðir dansarar Roberto segir að samstarf sitt með íslensku dönsurunum hafi verið einstaklega gott. „Þessi hópur sem ég hef verið að vinna með sam- anstendur af fullorðnum einstak- lingum með sterkar skoðanir. Þeir hafa ákveðnar skoðanir á umfjöll- unarefninu og eru afar meðvitaðir. Af þeim sökum skildu þau strax mínar hugmyndir í verkinu og gera þeim góð skil.“ Hann kann almennt vel að meta land og þjóð. „Mér finnst það vera mikill kostur hvað íslendingar eru opnir fyrir hugmyndum sem ef til vill skarast að einhverju leyti við hinn efnislega heim. Evrópubú- ar eru gjarnir á að trúa einungis því sem hægt er að útskýra með vísindalegum hætti og hafna öllu öðru. Mér finnst sem Islendingar séu opnari og áhugasamari um hið dulræna og séu tilbúnari til að við- urkenna að ef til vill er ýmsu hrein- lega ætlað að vera ofar okkar skiln- ingi. Því sjónarmiði er ég alveg sammála,“ segir þessi virti spænski danshöfundur að lokum. 'f. sffxipy SETTU ÞAÐ SAMAN NYTT 2007 PRIR iNGARSAUR: SMÁRALIND AKUREYRI SELFOSS ORMSSON LÁN: MánaBarleg jöfn afborgun (48 mánuöi: Kr. S.858.- FALLEGT, VANDAÐ, ÓDÝRT ogTlLÁ LAGER-NÚNA AEG HEIMILISTÆKI ÁTILBOÐSVERÐI ÞEGAR KEYPTAR ERU „SETTUÞAÐ SAMAN" INNRÉTTINGAR ORMSSON ORMSSON ÁRVIRKINN, SELFOSSI • Sími 480 1160 AKUREYRI • Sími 461 5003 SMÁRALIND • Sími 530 2907 / 530 2908 Ljótu hálfvitarnir snúa aftur Hljómsveit sem ber hið frumlega nafn „Ljótu hálfvitarnir" ætlar að stíga á stokk á skemmtistaðnum Rósenberg í Lækjargötu í kvöld og annað kvöld. Hljómsveitina skipa nokkrir Þingeyingar og er sveitinni lýst sem treggáfaðri, meiðandi fyrir fegurðarskynið og alltof fjölmennri. Aðgangseyrir á tónleika Ljótu hálf- vitanna er fúsund krónur sem jafn- gilda þúsund krónum íslenskum og er ætlun hljómsveitarmeðlima að leika frumsamda tónlist þar til síðasti hálfvitinn liggur í valnum. Áhugasömum er bent á að ekkert gerir til að mæta bæði kvöldin þar sem hálfvitarnir koma örugglega ekki til með að muna eftir þeim frá kvöldinu áður.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.