blaðið - 16.02.2007, Blaðsíða 21

blaðið - 16.02.2007, Blaðsíða 21
blaðiö FÖSTUDAGUR 16. FEBRÚAR 2007 21 Pourquoi Pas? Menningarveislan Pourquoi Pas? - Franskt vor á íslandi verður opnuð á Vetrarhátíð og í tilefni af því verður sýning franska lista- mannsins Pierre Huyghe opnuð þann 23. febrúar í Listasafni Reykjavíkur. Sýningin ber nafnið Fagnaðargarðurinn, eða Cele- bration Park, og er framhald af ný- afstöðnum sýningum hans í Tate Modern og Musée d’Art moderne de la Ville í París, en inniheldur einnig ný verk sem ekki hafa verið sýnd áður. Huyghe hefur vakið mikla eftirtekt síðastliðin ár og er í fremstu röð þeirrar kynslóðar ungra franskra listamanna sem komu fram á lista- sviðið á síðasta áratug 20. aldar. Hann vinnur með fjölbreytta miðla listanna, einkum kvikmyndir og myndbönd, en einnig veggspjöld, bæklinga og Ijósmyndir. Sinfónían á ferðalagi Sinfóníuhljómsveinslands er nú í níu daga tónleikaferð til Þýska- lands, Króatíu og Austurríkis. Tónleikagestum ytra er boðið upp á fjölbreytta efnisskrá sem er mis- munandi eftir tónleikastöðum en hún samanstendur af verkunum Galdra-Loftur og Trilogia piccola eftir Jón Leifs, píanókonserti Edvards Grieg og Tilbrigði um stef eftir Paganini eftir Sergej Rakhmanínov, sinfóníu númer 2 eftir Síbelíus og 5. sinfóníu Sjo- stakovitsj. Koma Sinfóníuhljómsveitar íslands til meginlandsins hefur vakið þó nokkra athygli og upp- selt hefur verið á suma tónleika sveitarinnar, sem snýr aftur heim til íslands þann 20. febrúar næst- komandi. heilsa börn konan ferðalög fólk tónlist m m m bio menning lifið íþróttir Auglýsingasfminn er 510 3744 blaðið— Íslensk-úkraínsk list í GEL Myndlistarmaðurinn Alexander Zaklynsky opnar í dag sýningu í GEL Galleríi við Hverfisgötu 37. Al- exander er hálfur Islendingur og hálfur Úkraínumaður sem hefur verið búsettur hér á landi í rúmt ár, en þar áður bjó hann í Bandaríkjun- um. „Ég var gestalistamaður í SÍM-hús- inu við Hverfisgötu 1 desember árið 2005 og hef verið með nokkrar sýn- ingar hér, meðal annars nokkrar í yfirgefnum húsum,” segir hann. Hann hefur því haft í nógu að snúast síðan hann flutti hingað til lands og hefur alfarið starfað sem myndlistarmaður. „Ég er á vinnu- stofunni minni öllum stundum á kafi í vinnu,“ segir hann eins og sönnum íslendingi sæmir. Sérstök opnunarhátíð verður þeg- ar sýningin verður opnuð klukkan 18 og eru allir velkomnir. „Þarna verða alls kyns málverk, bæði stór og smá auk teikninga og skúlptúra. Verkin verða til sölu og sýningin verður opin í þrjár vikur,” segir Al- exander að lokum. hilduredda@bladid.net F

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.