blaðið - 16.02.2007, Qupperneq 6
6 FÖSTUDAGUR 16. FEBRÚAR 2007
blaöiö
Cheerios er treíjaríkt
og sykurlítið og fer vel
í litla og stóra maga
Mikilvægasta máltíð dagsins
HÆSTIRETTUR:
12 mánaða fangelsi fyrir kynferðisbrot
Hæstiréttur staðfesti í gær dóm Héraðsdóms Reykjavíkur um að karl-
maður skyldi sæta 12 mánaða fangelsi óskilorðsbundið fyrir kynferð-
isbrot gegn systurdóttur sinni. Einnig var hann dæmdur til að greiða
henni 600 þúsund krónur í bætur. Atvikið átti sér stað sumarið 2003
þegar stúlkan var 10 ára gömul.
Miklabraut 18 Skjólstæðingar stuön
ingsheimilis Samhjálpar kvörtuðu ,
yfir starféemi þess í úttekt
sem gerð var síðasta
sumar.
og lítið viðhald
Ekki boðlegt Menntunin skiptir máli Skorumst ekki undan ábyrgð
Eftir Trausta Hafsteinsson
trausti@bladid.net
.Hópurinn sem sækir heimilið
hefur í raun fallið á botninn og á
alls staðar undir högg að sækja. Þar
með er ekki í lagi að bjóða upp á
hvað sem er. Fyrir hundrað árum
neyddist fólk kannski til að láta sér
slíkt nægja en í allsnægtaþjóðfélagi
nútímans er þetta óboðlegt,“ segir
Sigrún Júlíusdóttir, prófessor í fé-
lagsráðgjöf við Háskóla Islands.
I sumar var gerð úttekt á stuðn-
ingsheimili Samhjálpar fyrir heim-
ilislausa við Miklubraut 18. Niður-
stöðurnar voru ekki birtar fyrr en
fimm mánuðum síðar. í skýrslunni
er meðal annars kvartað yfir slöku
eftirliti með starfseminni, lítilli við-
veru starfsfólks, lélegu viðhaldi og
að boðið sé upp á skemmdan mat.
Mjög ósanngjarnt
Heiðar Guðnason, forstöðumaður
Samhjálpar, segir ljóst að samtökin
skorist ekki undan ábyrgð varðandi
niðurstöður skýrslunnar. Hann
leggur áherslu á að atriði hennar
séu skoðuð málefnalega. „Að okkar
mati hefur umfjöllunin hingað til
verið ómálefnaleg og ekki rétt að
við berum ábyrgð á öllu því sem
fram kemur. Allt viðhald heimilis-
ins er til dæmis á ábyrgð Reykjavík-
urborgar,“ segir Heiðar.
„Allur matur sem eldaður er á
heimilinu er keyptur um morgun-
inn hvern dag. Það er ekki boðið upp
á neinn mat sem við treystum okkur
ekki sjálf til að þiggja. Matráðs-
konan okkar hefur staðið sig gríðar-
lega vel og hvað hana varðar finnst
okkur þetta mjög ósanngjarnt.”
Hafa ekkert val
Aðspurð segir Sigrún mikilvægt
af hálfu yfirvalda að allt eftirlit
sé bæði gott og faglegt. Það sé ein-
faldlega gæðakrafa svo að hægt sé
að beina starfsemi inn á faglegar
brautir.
„Það sem er alvarlegast í þessu
er að einstaklingarnir sem þarna
um ræðir hafa ekkert val. Því verr
sem fólkið er statt þeim mun mikil-
vægari er góð menntun starfsfólks-
ins. Færnin til að höndla erfiðar
aðstæður verður sífellt meiri eftir
menntun," segir Sigrún.
„Faglært fólk, eins og félagsráð-
gjafar, er menntað í því að þekkja
kerfið og getur leiðbeint skjólstæð-
ingum um réttar leiðir. Þjónustan
verður að vera við hæfi og viðun-
andi fyrir þá sem þurfa á henni að
halda.“
Vilji til að bæta
Heiðar segir rétt að á þeim tíma
sem úttektin var framkvæmd hafi
verið um að ræða litla viðveru starfs-
fólks og takmarkað eftirlit frá vel-
ferðarsviði. Hann ítrekar að farið
verði yfir niðurstöður úttektarinnar
og bætt úr því sem bæta þurfi.
„Á þessum tímapunkti voru
margir starfsmenn í sumarleyfum
/ allsnægtaþjóðfé-
lagl nútímans er
þetta óboðlegt
Sigrún Júlíusdóttir,
prófessor í
félagsráögjöf
\ Að okkar mati
| hefur umfjöllunin
| w V .J hingað til verið
I ömáiefnaieg
i Heiðar Guðnason,
JflL l ,ors1öðumaður
Samhjálpar
og að hluta til má skýra þetta út
þannig. Síðan var sambandið við vel-
ferðarsvið borgarinnar ekki nægjan-
legt á þessum tímapunkti því mikil
uppstokkun var í félagsþjónustunni
rétt á undan. 1 kjölfarið voru allir í
aðlögun að nýju kerfi og að læra inn
á það,“ segir Heiðar. „Eg vil að það
sé á hreinu að við munum skoða
skýrsluna vel og bætum það sem
við getum bætt. Við víkjum okkur
ekki undan ábyrgð en viljum líka að
það komi fram hver ber á ábyrgð á
hverjum lið.“
MEÐAL
UMKVÖRTUNAREFNA:
Takmarkað eftirlit
Skemmdur og útrunninn matur
Lítil viðvera starfsfólks
Ekkert viðhald
Ómenntað starfsfólk
Alls lést 191 í hryðjuverkunum á Spáni árið 2004:
Réttað yfir 29 í Madríd
Réttarhöld hófust yfir 29 grun-
uðum hryðjuverkamönnum i
Madríd, höfuðborg Spánar, í gær.
Mennirnir hafa verið ákærðir fyrir
aðild að hryðjuverkum í borginni í
marsmánuði 2004, þar sem 191 lést
og rúmlega 1.700 manns særðust. Sjö
sakborninganna eru ákærðir fyrir
morð og að tilheyra hryðjuverkasam-
tökum, en hinir fyrir að starfa með
hryðjuverkasamtökum og hafa haft
sprengiefni undir höndum.
Sprengjur sprungu með stuttu milli-
bili á fjórum lestarstöðvum í miðborg
Madrídar að morgni 11. mars 2004.
Sjö menn, sem taldir voru meðal
höfuðpaura árásanna, fyrirfóru sér í
íbúð i Madríd nokkrum vikum eftir
árásirnar þegar lögregla var í þann
mund að ráðast til atlögu gegn þeim.
GUARDIA
Sakborningar mæta Mikil
öryggisgæsla var við dómhúsið
þegar sakborningar voru fluttir
þangað.
Réttarhöldin eru þau umfangs-
mestu yfir grunuðum hryðjuverka-
mönnum í Evrópu til þessa. Af
sakborningunum 29 eru sextán
Marokkómenn, níu Spánverjar, tveir
Sýrlendingar auk Alsírbúa og Líbana.
Spænska lögreglan segir íslamskan
hóp öfgamanna, undir áhrifum
hryðjuverkasamtakanna al-Qaeda,
hafa staðið á bak við árásirnar. Talið
er að réttarhöldin muni standa í
nokkra mánuði.