blaðið - 16.02.2007, Síða 8
8 FÖSTUDAGUR 16. FEBRÚAR 2007
blaðið
Taka við íröskum flóttamönnum
Sameinuðu þjóöirnar fagna áætlunum bandarískra
stjórnvalda um að veita allt að sjö þúsund íröskum flótta-
mönnum hæli í landinu á næstu tólf mánuðum. Antonio
Guterres, yfirmaður flóttamannahjálpar Sameinuðu þjóð-
anna, segir áætlanirnar vera „mjög gott skref í rétta átt“.
JAPAN
Mafíósi finnst dauður
Kazuyoshi Kudo, háttsettur liðsmaður hinnar
japönsku Yamaguchi-gumi-mafíu, fannst látinn á
heimili sínu í gær. Lögregla segir að allt bendi til
þess að hinn sjötugi Kudo hafi skotið sig í höfuðið
þó að hún útiloki ekki morð.
jp .n
Dómar í Stavangursráni mildaðir
Áfrýjunardómstóll I Noregi mildaði dóma héraðsdóms yfir £m
öllum tólf sem höfðu verið fundnir sekir um rán í Nokas-fyrir-
tækinu í Stavangri árið 2004. Höfuðpaurinn David Toska fékk ■ ■
dóm sinn mildaðan I fimmtán ár, en saksóknari hafði krafist í ð *? ,M8w—
það minnsta 21 árs dóms.
írak:
Landamærum
var lokað
írak lokaði landamærum
sínum að íran og Sýrlandi á
miðvikudagskvöldið, en reiknað
er með að þau verði lokuð í
þrjá sólarhringa. Aðgerðin
er liður í baráttunni gegn
hryðjuverkum og er ædað að
koma í veg fyrir flæði vopna og
hryðjuverkamanna inn í landið.
Hnetusmjör innkallað vegna salmonellu:
Hætta á sýkingu
„Við vitum ekki hve mikið magn
er á markaðnum eins og er þar
sem þetta mál var bara að koma
upp. En það er ljóst að það verður
allt tekið frá. Við erum búnir að
senda viðskiptavinum tilkynningu
um það,“ segir Sigurður Björgvins-
son, markaðsstjóri hjá heildversl-
Skoða þarf framleiðslunúmerið
Hnetusmjörið frá Peter Pan
uninni Innnes ehf., sem stöðvað
hefur sölu á hnetusmjöri vegna
salmonellusýkingar.
Allt Peter Pan-hnetusmjör með
framleiðslunúmeri sem hefst á töl-
unum 2in hefur verið innkallað í
kjölfar tilkynningar frá bandaríska
matvæla- og lyfjaeftirlitinu um
að fundist hafi fylgni milli salm-
onellusýkingar og neyslu á hnetu-
smjöri með þessu framleiðslunúm-
eri. Númerið er á loki krukkunnar.
Þótt ekki hafi fundist salmon-
ella í hnetusmjörinu eru neytendur
sem eiga krukkur af því með fyrr-
nefndu framleiðslunúmeri sem
keyptar hafa verið í maí 2006 eða
síðar, beðnir um að farga annað-
hvort vörunni hið fyrsta eða skila
henni í viðkomandi verslun.
mánudaginn 19. febrúar
Gríms fískibollur
eru hollar og góður kostur fyrir þá sem
hugsa um heilsuna. þær eru fulleldaðar og
þarf aðeins að hita upp í ofni eða á pönnu
og innihalda aðeins um 1% fitu.
Gríinur lcokkur chf | sítni 481 2665 | grttmtrkokkur@grimurkokkur.is | www.gritnurkokkur.is
Álafosskvos:
Tengibraut mótmælt
Við Álafosskvos.
Vegavinnan
var stöðvuð
■ Maðkur í mysunni ■ Vafi á lögmæti
■ Ekki krafist að legu vegarins verði breytt
Eftír Ingibjörgu B. Sveinsdóttur
ingibjorg@bladid.net
„Við erum náttúrlega gríðarlega
ánægð með þennan úrskurð vegna
þess að þetta sýnir líka að það er
maðkur í mysunni,“ segir Sigrún
Pálsdóttir, talsmaður Varmársam-
takanna, um þá ákvörðun úrskurð-
arnefndar skipulags- og byggingar-
mála að stöðva eigi framkvæmdir í
Álafosskvos.
íbúar og eigendur fasteigna við
Brekkuland og Álafossveg í Mos-
fellsbæ höfðu kært ákvarðanir bæj-
arstjórnarinnar um framkvæmdir
við tengibraut milli Helgafellslands
og Álafossvegar.
f úrskurðinum um stöðvun fram-
kvæmdanna segir að talsverður vafi
leiki á um lögmæti hinna kærðu
ákvarðana. Þess vegna, og með til-
liti til staðhátta, sé rétt að stöðva
framkvæmdir við umrædda tengi-
braut meðan málið sé til meðferðar
hjá úrskurðarnefndinni, jafnvel
þótt einungis sé um jarðvegsfram-
kvæmdir að ræða.
Bent er á í úrskurðinum að með
deiliskipulaginu sem deilt er um
hafi verið lagður grunnur að fram-
kvæmd sem falli undir viðauka við
lög um mat á umhverfisáhrifum. Or-
skurðarnefndin telur að taka þurfi
til úrlausnar hvort vinna hefði þurft
umhverfisskýrslu vegna deiliskipu-
lagstillögu og kynna hana.
„Það er greinilegt að úrskurð-
arnefndin telur mikilvægt að
umhverfisáhrifin verði metin og
það er sérstaklega tekið fram að
engin grein hafi verið gerð fyrir
því hvaða ráðstafana eigi að grípa
til vegna hugsanlegrar mengunar
ofanvatns sem getur haft mikil og
skaðleg áhrif á lífríkið í Varmá,“
segir Sigrún.
Stefán Ómar Jónsson, bæjarrritari
Mosfellsbæjar, segir bæjaryfirvöld
hafa farið yfir úrskurðinn. í tilkyn-
ningu frá bæjaryfirvöldum stendur
að aðeins sé um bráðabirgðaúrskurð
að ræða. Ekki skuli skilja hann sem
svo að krafist sé að legu vegarins
verði breytt.
Orskurðarnefndin vísar frá kröfu
kærenda um að framkvæmdir verði
stöðvaðar meðan rekið er fyrir dóm-
stólum fyrirhugað mál til ógildingar
á niðurstöðu umhverfisráðherra um
matsskyldu framkvæmdarinnar.
Tekið er fram að nefndina bresti
vald til þess að kveða á um stöðvun
framkvæmda vegna meðferðar
máls fyrir dómi.
Það gerist hjá okkur
Grunn- og framhaldsnám við Háskóla (slands er kynnt í Háskólabíói við Hagatorg
Nýtt grunn- og framhaidsnám er kynnt í Kennaraháskóla fslands við Stakkahlíð
ít
KENNARAHÁSKÓLI
ÍSLANDS
www.khi.is
Stúdentar og kennarar Háskóla Islands og Kennaraháskóla Islands
taka vel á móti þér á Háskóladeginum laugardaginn 17. febrúar kl. 11 -16