blaðið - 16.02.2007, Side 11
blaðið
FÖSTUDAGUR 16. FEBRÚAR 2007 11
Sovésk minnismerki bönnuð
Eistneska þingið samþykkti í gær að banna minnismerki sem
sýna hálfrar aldar hersetu Sovétríkjanna í landinu í jákvæðu Ijósi.
Lögunum er sérstaklega beint að tveggja metra hárri bronsstyttu
í höfuðborginni Tallinn. Styttan var reist árið 1947 til heiðurs her-
mönnum Rauða hersins sem féllu í síðari heimsstyrjöldinni.
Hótar að þjóðnýta matvöruverslanir
Hugo Chavez, forseti Venesúela, hótaði í gær að þjóðnýta
allar þær einkareknu matvöruverslanir sem seldu kjötvörur
á verði sem er hærra en það verð sem ríkisstjórnin hefur fyrir-
skipað. Fjölmargar verslanir hafa hætt sölu á sykri, kjöt- og
mjólkurvörum eftir að verslun með of háu verði var lokað.
TSJAD
Nýtt „Darfúr-ástand“ í uppsiglingu
Bresku hjálparsamtökin Oxfam hafa varað við því að annað mannúð-
legt stórslys, líkt og í Darfúr-héraði í Súdan, kunni að vera í uppsiglingu
í Afríkuríkinu Tsjad, takist ekki að ná tökum á stöðugum erjum milli
þjóðernishópa í landinu. Tugþúsundir Tsjadbúa eru á f lótta í kjölfar stöð-
ugra átaka milli þjóðernishóþa við landamæri landsins að Súdan.
sáttir við rekstur Jóns Geralds á
bátnum.
Þegar Baugur hafi ákveðið að slíta
viðskiptum við Nordica hafi Jón Ger-
ald tekið það óstinnt upp og miklar
deilur upphafist. Var vísað í tölvusam-
skipti milli Jóns Geralds og Tryggva
annars vegar og Jóns Geralds og Jóns
Ásgeirs hins vegar. Þar komi fram
greinileg kergja Jóns Geralds út í
Baugsmenn, ekki sist Jón Ásgeir sem
hann sakaði um svik og lygar. Þá
kom einnig fram að Jón Gerald hafi
í samtali við Jóhannes Jónsson hótað
Jóni Ásgeiri lífláti sem vörnin segir
sýna ástæður ásakana Jóns Geralds
á hendur Baugsmönnum.
Enn fremur var vísað til greinar
í Fréttablaðinu er varðar tölvusam-
skipti Jónínu Benediktsdóttur og
Styrmis Gunnarssonar þar sem
fram komi að Jón Gerald hafi verið
svo öskuillur út í Baugsfeðga
að hann væri tilbúinn til
að kála þeim. Hafi Jón-
ína beðið Styrmi um að
hringja í Davíð nokkurn
til að róa hann niður.
Þessi tölvupóstur
áafi verið skrif-
aður sama dag og
Jón Gerald sendi
Trýggva póst þar
sem hann tjáir
honum að hann
sitji uppi með
tvær hendur
tómar eftir við-
skipti Baugs og
Nordica.
Hvort er það?
Saksóknara og sakborningi ber ekki saman
um hvernig skilgreina skuli bátinn fræga sem
deilt er um í 18. ákærulið eins og þessi um-
mæli Jóns Ásgeirs gefa til kynna. „Þetta var
nú ekki lystisnekkja heldur meira skemmti-
bátur.“ Ekki er Ijóst hvaða áhrif þessi ágrein-
ingur hefur á niðurstöðu málsins.
Jón Ásgeir vill flettara
Mikill fjöldi gagna í málinu gerir máisaðilum
oft erfitt fyrir og þurfa þeir stanslaust að
fletta í blaðamöppum til að finna þau gögn
sem um ræðir í málinu. Skýrslutökur af Jóni
Ásgeiri höfðu staðið yfir í fjóra daga og var
hann orðinn nokkuð þreyttur í höndunum ef
marka má ummæli hans í gær rétt eins og
fyrradag: „Ég þarf að fá mér flettara, það er
augljóst." Svo er spurningin, hvað er flettari
og erslíkurtil?
Útrætt mál
Enn og aftur var þrefað um dagskrá aðal-
meðferðarinnar í gær en að þessu sinni voru
málsaðilar ekki á léttu nótunum. Ljúka átti
skýrslutöku af Jóni Ásgeiri klukkan sex í gær
en um miðjan dag sagði saksóknari að Ijóst
yrði að hans máli lyki ekki fyrr en í fyrsta lagi
sex og áttu þá verjendur eftir að hefja sitt
mál. Arngrímur Isberg ákvað þá að ákæru-
valdið lyki máli sínu korter yfir fjögur og
tækju þá verjendur viö. Settur ríkissaksókn-
ari, Sigurður Tómas, sagöi að þessi ákvörðun
stefndi málflutningi ákæruvaldsins í hættu
og fór fram á lengri tíma. Við þetta reiddist
dómsformaður nokkuð og sagði að ákæru-
valdið gæti sjálfu sér um kennt þar sem það
hefði sjálft sett fram tímaáætlun og bæri
þar að auki ábyrgð á þeim töfum sem orðið
hefðu. Ákvörðun hans væri því útrætt mál.
Ég veit best
Jón Ásgeirvill meina að hann viti meira um
sína hagi en saksóknari. „Ég hlýt að vera
bestur í að skýra það sem ég er að segja. Þú
getur hins vegar haft þínar skoðanir á því.“
Ferðatölvur
Einnig deildu saksóknari og ákærði um eðli
tölva.
Jón Ásgeir: „ Var hann ekki i Miami á þessum
tíma?“
Sigurður Tómas: „Þetta er tekið úr tölvu Tryg-
gva Jónssonar
Jón Ásgeir: „Tölvur geta nú ferðast..."
Flugfreyjur Icelandair:
Ánægðari með matinn
„Það hafa orðið á þessu bætur. Ég
get ekki greint annaðSigrún Jóns-
dóttir, formaður Flugfreyjufélags fs-
lands, er þeirrar skoðunar að matur-
inn sem flugfreyjum er ætlaður hafi
batnað frá því að hún lýsti því yfir í
sjónvarpsviðtali nú í febrúar að flug-
freyjur fengju ekki sama mat og flug-
menn og flugstjórar og að þær vildu
betri mat.
„Maturinn hefur verið upp og ofan
í gegnum tíðina. Við töldum það
leysa málið að fá þá bara mat eins og
strákarnir fá. Sumt af því sem þeir fá
er betra,“ segir Sigrún.
Guðjón Arngrímsson, upplýsinga-
fulltrúi Icelandair, segir vinnuhóp,
sem í sitji fulltrúi flugfreyja, koma
með tillögur um hvernig maturinn
eigi að vera. „Flugfreyjur hafa lýst því
yfir að þær vilji ekki þennan
TTIIögur frá
vinnuhópi
Guðjón Arngrímsson,
upplýsingafulltrúi
lcelandair.
Máliðað
leysast
Sigrún Jónsdóttir, for-
maður Flugfreyjufélags
íslands.
Sigrún kveðst sjálf hafa setið
í svona vinnuhópi oftar en einu
sinni. „Við vildum sannarlega ekki
fá þungan mat því það er ekki gott
að borða slíkan mat þegar maður
vinnur um borð í flugvél. En við
vorum ekki sérstaklega að taka fram
þunga mat sem flugstjórarnir vilja.
Þess vegna hefur orðið til munur.
Þetta snýst ekki um að þeir eigi að fá
betri mat og þær verri.“
að við vildum ekki sama mat og þeir.
Nú virðist hins vegar sem málið sé að
leysast. Þetta hefur samt ekki snúist
um áhugaleysi hjá fyrirtækinu."
40% AFSLÁTTUR AF VÖLDUM LJÓSUM
EIN GLÆSILEGASTA LJÓSAVERSLUN LANDSINS
MIKIÐ OG FJÖLBREYTT ÚRVAL LJÓSA
FJÖLDI LJÓSAÁTILBOÐSVERÐI