blaðið - 16.02.2007, Side 14
14
FÖSTUDAGUR 16. FEBRUAR 2007
blaöiö
í NAUTI ERUM VIÐ BESTIR
GRENSÁSVEGI 48 • SÍMI 553 1600
Hættuleg
„Hvað er lífið?” spurði Gunnar
Þorsteinsson í Krossinum. En hann
hafði ekki svarið, en kom með leið-
beiningar til þeirra, sem veltu spurn-
ingunni fyrir sér. Já, eðli hennar
er flókið og fólk fær henni aldrei
svarað endanlega; það upplifir eitt
og eitt brot af tilgangi lífsins með
endurgjaldi fyrir góða háttsemi sína
og óendanlega fegurð lífsins.
En eitt er nokkuð víst; lífið er
saltfiskur eins og skáldið sagði, en
Gunnar minntist ekki á það. En
segja má að efnafræðin sé það líka.
Við skiljum hana illa, flest okkar,
en við finnum stöðugt fyrir henni
með hungrinu eða þurrkinum og
þorstanum. Við vitum að næringin
heldur okkur gangandi því með
henni fáum þá orku sem gerir okkur
kleift að hreyfa okkur og viðhalda
hita líkamans sem og byggja upp
vefi og græða sár.
Við erum eiginlega litlar vélar
sem þarfnast sífellt eldsneytis og ef
þær fá það ekki, þá verðum við að
moldu, en þaðan erum við komin.
Við höfum fengið frumefnin að
láni í ríki náttúrunnar og með
eðlisbundnu athæfi og þekkingu
tökum við næringu af nægtabrunni
náttúrunnar eða lærum að beyta
lögmálum hennar til að framleiða
matvæli. En svo kemur að því, einn
góðan veðurdag, að við förum
sum hver að tapa viðvarandi meiri
orku en við fáum með mat og ef
því verður ekki breytt, þá er bara
dauðinn framundan. - Öll þau efni
líkamans, sem innihalda kolefni,
eru brennanleg efni. Kannski man
einhver eftir því að hafa séð í sjón-
varpi þegar Bretar börðust við naut-
ariðuna fyrir nokkrum árum, að
þúsundir nautgripa voru felldir og
þeim hrúgað upp og þeir brenndir.
Já, og þeir brunnu glatt þar til bara
askan ein var eftir. Kannast nokkur
við að hafa séð að kjöt brenni í steik-
ingu eða getum við kveikt í pylsum
eins og vindlum? Nei, en kannski að
fiturönd á kótelettu brenni ef hún er
ofsteikt á grilli, en sá eldur slokknar
brátt. En hvernig stendur á því, að
fita eða prótín í líkama okkar geta
brunnið við hita líkamans, sem er
stöðugt undir 40 gráðum?
Líkami okkar er eins og blautt
púður; ef við þurrkum hann, þá
getur hann brunnið eins og kyndill.
hormón
- Þetta er einn galdurinn við lífið,
hvorki meira né minna, það efnis-
lega vel að merkja. Þessi galdur er
alveg eins merkilegur og sá sem við
upplifum þegar barn fæðist. Líkami
okkar er útbúinn efnum, sem geta
stjórnað bruna við lágt hitastig, en
þau heita ensim og hormón, en þau
geta orðið hættuleg.
„Við Evrópumenn
I höfum víst lítid
f, tilefnitilað
Wk kenna öðrum jarð-
M/gf*/ arbúum um frið í
ijósi fortiðar,"
Umrœðan
Jónas Bjarnason
Herskáar pungrottur
Já, karlhormónin geta verið hættu-
leg þótt þau séu nauðsynleg. „Þau
eru eins og slíðruð sverð.” - Ellen
Johnson-Sirleaf er merkileg kona,
sem var fyrir ári síðan útnefnd for-
seti Líberíu; hún er hvorki meira né
minna fyrsti kvenforsetinn í sögu
Afríku, sem hefur lifað við mikinn
ófrið, sunnan Sahara vel að merkja.
Það er eins og ófriðurinn sé þeim
mun skelfilegri, sem löndin líkjast
meira paradís. Ógnvænlegur ófriður
hefur verið viðvarandi í mörgum
löndum og byssubófar, sumir bara
börn, aka um lendur með stóra og
öfluga hríðskotariffla og lifa eins
og sjóræningjarnir gerðu forðum.
Nú finnst Johnson-Sirleaf að karlar
hafi nógu lengi rústað Líberíu og höf-
uðborginni Monróvíu, sem er eins
og borgir Evrópu í seinna stríðinu.
- Já, og Maruyah Fyneah, formaður
kvenfélagasambands Líberíu, segir
að ekkert betra hefði nú getað gerst
fyrir landið en tilkoma forsetans
Johnson-Sirleaf. „Karlmenn hafa full-
komlega rústað efnahag landsins og
mannvirkjum; lítið bara i kring um
ykkur gott fólk,” sagði Fyneah, sem
er með skrifstofu sína í hálfhrundu
húsi í miðjum rústum í höfuðborg-
inni Monróvíu. Og þetta er að ger-
ast i landinu, sem einmitt var kennt
við friðinn eða frelsið öllu heldur,
Líbería. Ríkið var stofnað 1847 af
blökkumönnum frá Bandaríkjunum
sem sneru frá þrældómnum og landi
þrælakaupmannanna til þess að
byggja upp ríki friðarins og frelsis-
ins í fyrirheitna landinu, sem þeir
sjálfir komu frá eða réttar sagt voru
fluttir nauðugir frá. Nú hefur geisað
borgarastyrjöld þar á annan áratug
og landið er talið meðal þriggja fátæk-
ustu landa heims og allt er í rúst. í
þinginu sitja stríðsherrar og ráðgast
um framtíð landsins, eins gáfulegt
og það er nú. Það verður erfið glíma
fyrir Johnson-Sirleaf þótt ekki sé
meira en að hreinsa upp allan sóða-
skapinn í landinu og mannlífinu og
þeir, sem meira mega sín, eru margir
bara ótíndir glæpamenn. Já, það
verður spennandi að fylgjast með
þessari tilraun.
Og svona er þetta víðar. I Sómalíu
og ekki er ástandið ögn skárra í Dar-
furhéraði í Súdan þótt karlmenn ríði
þar bara á úlföldum með hríðskota-
riffla mundaða og byssubelti um öxl.
Þótt ekki séu það aðallega eða bara
karlhormón, sem þar eru að verki,
er trúabragðaofsi lítið skárri. Og Afg-
anistan virðist smám saman vera á
sömu leið og áður, Múdsjahidinliðar
eru farnir að stofna vígaflokka. Ann-
ars er Afganistan land sem er verð-
ugt til umhugsunar. Hvað eiga menn,
karlmenn og konur, að gera í því
landi, þ.e. starfa? Efnahagurinn þar
er farinn að byggjast að stærstum
hluta á ópíumframleiðslu og sölu á
því til kaupmanna, eins og áður fyrr,
sem koma því til efnaverksmiðja,
sem umbreyta morfíni í heróín. Óg
framhaldið þekkja allir. Auðvitað
er matvælaframleiðsla mikilvæg og
undirstaða alls lífs í því landi, en
borga þarf allan innflutning í gjald-
gengri vaiútu og hún fæst bara fyrir
hráópíum og fjárhagsaðstoð frá
Bandaríkjunum og öðrum þjóðum;
það er bara ekki til frambúðar. Þótt
ríkisstjórn Karzais í Kabúl fari með
formlegt vald, þá er eins og það fúni
á útjöðrunum og fortíðin breiðist
smám saman út. Við Evrópumenn
höfum víst lítið tilefni til að kenna
öðrum jarðarbúum um frið í Ijósi
fortíðar, ógnvænlegar styrjaldir í
margar aldir. Spyrja má Gunnar í
Krossinum hvort kristin trú sé til
orðin til að temja karlhormón eða
herskáa karlmenn öllu heldur? Og
hvað með íslam?
Höfundur er efnaverkfræðingur
040507
Þann 4. maí kemur í Ijós hvað þér og samstarfsfólki þínu finnst um vinnustaðinn.
Fyrirtæki ársins er árleg könnun VR á aðbúnaði og ánægju starfsfólks íslenskra fyrirtækja.
Við hvetjum þig til að taka þátt, því þannig fæst skýrari mynd af stöðu vinnustaðar þíns í
samanburði við aðra.
Niðurstöður verða kynntar 4. maí.