blaðið - 23.02.2007, Qupperneq 1
ORÐLAUS
» síða 36
38. tolublað 3. árgangur
föstudagur
23. febrúar 2007
FRJÁLST, ÓHÁÐ & ÓKEYPIS!
■ FÓLK
Ragnhildur og Helena Efemía eru
stjórnendur Sirkus Reykjavík með
Ásgeiri Kolbeins og segjast ráða
jafnmiklu og hann | síða ie
■ MATUR
Práinn, yfirkokkur á Domo, *
segir að Food and Fun sé góð
auglýsing fyrir landið og ;v-
íslenska matargerð | síða22 ,,
m Landbúnaöarráðherra um ísland í hópi viljugra og staðfastra þjóða:
Akvörðun Bandaríkjanna
■ Bandaríkjamenn misnotuðu íslendinga ■ Ekki lýðræðisleg ákvörðun ■ Nýtur ekki blessunar
Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur ingibjorg@bladid.net
Guðni Ágústsson, landbúnaðarráðherra og vara-
formaður Framsóknarflokksins, sagði á þingi í
gær að Bandaríkjamenn hefðu misnotað vilja ís-
lendinga með því að lýsa því yfir að Islendingar
væru í hópi viljugra og staðfastra þjóða. Það hefði
verið þeirra einhliða ákvörðun.
„Mér finnst þetta styrkja enn frekar þær raddir
sem segja að ekki hafi verið haft nægilegt samráð
hér heima. Ef Guðni sem ráðherra hefur ekki vitað
hvaða ákvörðun var tekin sýnir það að hún var á
engan hátt lýðræðisleg," segir Silja Bára Ómars-
dóttir, forstöðumaður Alþjóðamálastofnunar Há-
skóla íslands.
Silja Bára telur að með orðumSínum sé landbún-
aðarráðherra mögulega að opna á samstarf við
stjórnarandstöðuflokkana. „Jón er búinn að segja
að það hafi verið mistök að veita þennan stuðning.
Ef Sjálfstæðisflokkurinn bakkar ekki er þarna
ágreiningur sem þarf að leysa. Mér finnst að Guðni
sé að biðla til stjórnarandstöðunnar með því að
segja að Framsóknarflokkurinn standi ekki fast á
þessari ákvörðun fyrrum formanns flokksins."
Guðni benti á að formaður Framsóknarflokks-
ins, Jón Sigurðsson, hefði lýst því yfir að ákvörð-
unin um stuðning við innrásina í írak hefði verið
tekin á grundvelli rangra upplýsinga og að það
lægi fyrir að fyrrverandi forsætisráðherra og utan-
ríkisráðherra hefðu tekið hana.
Aðspurður kveðst Guðni aldrei hafa haft trú á
að Bandaríkjamenn hefðu haft leyfi þeirra sem
ákvörðunina tóku til að nota nafn íslands í því
skyni sem þeir gerðu. Silja Bára segir þessi orð
landbúnaðarráðherrans sýna enn frekar að Davíð
Oddsson og Halldór Ásgrímsson hafi ekki rætt
ákvörðunina við þingflokka sína.
Sigurður Kári Kristjánsson, þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins, segir um algeran misskilning
hjá Guðna að ræða haldi hann að Bandaríkja-
menn hafi með einhverjum hætti misnotað vilja
Islendinga. Þó megi deila um síðar hvort upplýs-
ingarnar sem lágu fyrir hafi verið réttar.
Að mati Silju Báru skiptir það máli hvort Island
er á svokölluðum lista viljugra og staðfastra þjóða.
.Ákvörðunin um innrásina var ekki tekin á réttan
hátt. Hún var ekki tekin inni í Sameinuðu þjóð-
unum þar sem ákvarðanir alþjóðasamfélagsins
eiga heima.“
Sjá einnig síðu 4
Mótmæli í Frakklandi Grænmetisætur mótmæltu í gær í París, höfuðborg Frakklands, aðbúnaði dýra við fjöldaframleiðslu á kjötvörum. Þær pökkuðu sér í neytendapakkningar. Sem
fyrr sannast að ekkert er nýtt undir sólinni. Stígamót auglýstu á svipaðan hátt og röðuðu nöktum konum sem kjúklingalærum í neytendapakkningar þegar þau mótmæltu mansali. Auglýs-
ingin sú var þó mun hreinlegri.
m
» síða 32
Mér finnst!
Bríet Sunna Valdemars-
dóttir söngkona og Ólafur
S. K. Þorvaldsson leikari
viðra skoðanir sínar á
mönnum og málefnum og
því sem efst er á baugi.
VEÐUR
» sída 2
VIÐTAL
» síður 24-25
Viö frostmark
Austan- og norðaustan-
átt, víða 10-15 metrar á
sekúndu, en 15-20 við
suðausturströndina. Skýjað
á austanverðu landinu og
víða dálítil él, en bjartviðri
Fékk verðlaun
Sigurður Atlason, framkvæmdastjóri
Strandagaldurs, hlaut Eyrarrósina
árið 2007. Markmið hennar er m.a.
að stuðla að auknu menningarlífi á
landsbyggðinni og skapa sóknar-
færi á sviði ferðaþjónustu
Ástfangin
Hjónaleysin Ashton Kutcher og Demi
Moore fá greinilega ekki leiða á því
að vera stöðugt fyrir framan myndavél-
arnar. Þau mættu á tískusýningu Gm
Ten og var ekki annaö að sjá en að
þau væru einstaklega hamingjusöm.
Prinsinn Harry til íraks
Breska varnarmálaráðuneytið staðfesti
í gær að Harry, yngri sonur Karls Breta-
prins, verði sendur til Iraks með herdeild
sinni á næstu mánuðum.
Harry verður fyrsti meðlimur bresku
konungsfjölskyldunnar sem sendur er
á stríðssvæði frá því að Andrew, bróðir
Karls Bretaprins, var þyrluflugmaður í
Falklandseyjastríðinu árið 1982.
Ódýrt ódýrt Ódýrt ó'
og gott ofl gott ofl gott
oMarcð
Afgreiðslutimi virka daga: 10-18 og lau.: 11-16
Reykjavík sími: 533 3500 - Akureyri simi: 462 3504
Egilsstaðir: sími: 471 2954
Heilsurúm - dýnur - gjafavara - svefnsófar - stólar - sófar - grjónapúðar