blaðið

Ulloq

blaðið - 23.02.2007, Qupperneq 12

blaðið - 23.02.2007, Qupperneq 12
blaði Útgáfufélag: Stjórnarformaður: Ritstjóri: Fréttastjóri: Ritstjórnarf ulltrúi: Ár og dagurehf. SigurðurG.Guðjónsson Trausti Hafliðason Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir Elín Albertsdóttir Klám í Reykjavík Mikil umræða hefur orðið um alþjóðlega viðskiptaráðstefnu sem halda átti hér á landi dagana 7. til 11. mars. Ástæðan fyrir þessari um- ræðu var að hingað til lands hugðist koma hópur fólks sem vinnur í klámiðnaðinum. Fólkið hafði hugsað sér að hittast í Reykjavík til að ræða viðskipti, strauma og stefnur í klámi. Það átti sem sagt að halda klámráðstefnu í höfuðborginni. í gær bár- ust þær fregnir að eigendur Hótel Sögu hefðu hætt við að bjóða ráð- stefnugestum gistingu en alls höfðu þeir pantað um fimmtíu herbergi. I kjölfarið tilkynntu skipuleggjendur ráðstefnunnar að hætt hefði verið við að halda hana hérlendis. Það er vissulega fagnaðarefni að ráðstefnan verði ekki haldin hér. Hugsanlega eru einhverjir sem myndu vilja kalla það mannréttinda- brot að hamla þessu fólki að halda ráðstefnu hér og líklega geta þeir hinir sömu fært nokkuð sterk lagaleg rök máli sínu til stuðnings. Þetta er hins vegar miklu frekar spurning um grundvallarsiðferði en laganna bókstaf. Það er erfitt, ef það er þá mögulegt, að finna eitthvað jákvætt sem tengist klámi. Klám er iðulega tengt einhvers konar misnotkun á mönnum, konum og börnum svo ekki sé nú talað um tengingu kláms og mansals, sem er einhver viðbjóðslegasti glæpur sem hægt er að fremja. Það er hrein og bein móðgun við hugsandi fólk að ætla að færa rök fyrir því að það sé í lagi að láta svona nokkuð viðgangast. Að það sé óþarfi að brýna raustina þegar til landsins stefna talsmenn klámiðnaðarins í hópum. Það var því engin tilviljun að fulltrúar allra stjórnmálaflokka landsins, borgarstjórn Reykjavíkur og fjöldinn allur af samtökum og félögum, skyldu lýsa andúð á og andstöðu við þessa ráðstefnu. Það er auðvitað ekki hægt að banna fólki, sem ekkert hefur til saka unnið og hefur ekki í huga að fremja lögbrot, að koma til landsins. Það er aftur á móti hægt að ræða málin opinskátt, láta sjónarmið sín í ljós og þess vegna ber það miklu frekar vott um samstöðu þjóðarinnar en yfirgang að þessi ráðstefna skuli ekki vera haldin hér. Þetta eru skýr skilaboð frá íslensku þjóðinni. Skilaboð sem vonandi munu óma sem víðast. Það ber samt að hafa í huga að þetta er bara lítið hænuskref í bar- áttunni gegn klámi. Hugsanlega verður þessi ráðstefna haldin í annarri borg í öðru landi. Klámiðnaðurinn veltir hundruðum milljarða króna á hverju ári og með tilkomu Netsins hefur orðið of auðvelt að nálgast klámfengið efni. Það er erfitt að berjast gegn þessu en það hefur nú sannast að mögulegt er að vinna litlar orrustur í stríðinu gegn klám- væðingunni, sem eins og borgarstjórn Reykjavíkur orðaði svo ágætlega ,hefur afar óæskileg áhrif á samfélagsþróun og sjálfsmynd ungmenná'. Trausti Hafliðason Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson Ritstjórn & auglýsingar: Hádegismóum 2,110 Reykjavík Aðalsími: 510 3700 Símbréf á fréttadeild: 510 3701 Simbréf éauglýsingadeild: 510 3711 Netföng: bladid@bladid.net, frettir@bladid.net, auglysingar@bladid.net Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins Fræðsluganga á safnanótt föstudaginn 23. febrúar Gengið frá Hlemmi að Þvottalaugunum í Laugardal og þaðan inn í Grasagarð Reykjavíkur. Fræðst um líf og störf þvottakvenna ásamt öðru því sem fyrir augu ber. Lagt af stað frá Hlemmi kl. 20:00 Lúðrasveit blæs til göngu Boðið upp á heitt kakó í göngulok Garðskáli Grasagarðsins opinn frá 19-24 Orkuveita Reykjavíkur Minjaafn Reykjavíkur OkASAOAkÐUK ■■VKiAVfKUB 12 FÖSTUDAGUR 23. FEBRÚAR 2007 blaAiA Nýmæli í heilbrigðismálum Vinstri-græn halda fimmta landsfund sinn nú um helgina og blása i lúðra fyrir komandi kosn- ingabaráttu. Meðal þess sem verður rætt á fundinum er ný heilbrigðis- stefna Vinstri-grænna sem hefur verið í mótun undanfarin tvö ár. Heilbrigðismál eru einn viðamesti málaflokkur samneyslunnar og stjórnvöld hér á landi hafa stært sig af þvi að þau verji mjög háu hlut- falli af vergri landsframleiðslu til heilbrigðismála. Mikið misrétti Þessi mælistika er þó mjög tak- mörkuð eins og sést á því að það ríki sem ver hæstu hlutfalli vergrar landsframleiðslu til heilbrigðis- mála er Bandaríkin. Þar ríkir hins vegar mikið misrétti, þeir sem ekki hafa efni á almannatryggingum eða starfa ekki hjá fyrirtækjum sem bjóða upp á slíkar tryggingar sitja eftir með sárt ennið. Þannig að útgjöld til heilbrigðismála segja ekki mikið um hvernig því fé er varið og hvort það nýtist öllum. Mikilvægustu réttindin Jafnrétti til heilbrigðisþjónustu eru grundvallarmannréttindi en samkvæmt hugmyndafræði nor- ræna velferðarkerfisins eru heil- brigðiskerfi og menntakerfi án gjaldtöku grunnstoðir velferðar sem skapar öllum tækifæri til að lifa með reisn og njóta hæfileika sinna. Um leið og heilsusamlegt umhverfi og góður aðgangur að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu eru meðal mikilvægustu réttinda Katrín Jakobsdóttir einstaklinga er það hagur hvers samfélags að stuðla að góðri heilsu almennings og hlúa vel að þeim ef heilsan brestur. Ókeypis til tannlæknis Meðal nýmæla í tillögum Vinstri- grænna er að tannlækningar verði börnum og lífeyrisþegum að kostn- aðarlausu og kostnaðarhlutdeild fullorðinna verði endurskoðuð, að sálfræðiþjónusta verði aðgengi- legur hluti grunnheilsugæslunnar og greidd af TR og sérstök áhersla verði lögð á að efla geðheilbrigðis- þjónustu úti í samfélaginu. Þetta eru lykilatriði í að efla heilbrigði landsmanna enda hefur komið á daginn að tannheilsu barna og unglinga hefur hrakað mjög eftir að skólatannlækningar lögðust af. Þess vegna viljum við Vinstri-græn bregðast við með því að tannlækningar barna og lífeyris- þega verði ókeypis og þannig lagt inn til framtíðar. Vandi í geðheilbrigðismálum Sama má segja um geðheilbrigð- ismál en mikil notkun geðlyfja og fjölgun þeirra sem eiga við geðræn vandamál að stríða er vandi sem þarf að bregðast við á annan hátt en gert hefur verið. Þess vegna skiptir máli að sálfræðiþjónusta og geðheilbrigðisþjónusta verði öllum aðgengileg, biðtími styttist og fólk geti leitað til sálfræðings án þess að borga háar fjárhæðir í hvert sinn. Velferðarstefna VG I heilbrigðisstefnunni eru auð- vitað fjöldamörg fleiri nýmæli en lykilhugmyndafræði hennar er í anda velferðarstefnu VG: Jafn að- gangur að heilbrigðisþjónustu, sam- félagsgerð sem stuðlar að heilsu- samlegra líferni og góð þjónusta við alla. Höfundur er varaformaður Vinstri-grænna. Klippt & skorið Hingað til hefur Blaðamannafélag íslands lagt til hverjir ættu að sitja ( sérfræðingaráði Norræna blaða- mannaskólans í Árósum þangað sem margir íslenskir blaðamenn hafa sótt námskeið á und- anförnum árum. Mörgum finnst Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra hafa tekiö sér einræðisvald með því að skipa ,sína menn" og hunsa þar með tillögu Blaða- mannafélags íslands. Mörður Árnason lagði fram fyrirspurn á Alþingi vegna þessa og segir á heimasíðu sinni: ,f dag svaraði menntamálaráðherra fyrirspurn frá mér um skipunina í sérfræðingaráð (eins- konar ráðgjafarstjórn) Norræna blaðamanna- skólans í Árósum. Svarið var í rauninni bara: Ég ræð - og geri það sem mér sýnist." Og Mörður heldur áfram: „Eina efnislega skýringin sem hefur komið fram frá ráðherranum er að með því að skipa þann sem Blaðamanna- félagið tilnefndi, Birgi Guðmundsson, hefði verið hætt við hagsmuna- árekstri af því í nefndinni verði hugsanlega fjallað um samstarf skólans við háskóla og endurmenntunarstofnanir. Þessi skýring stenst illa. Birgir er vissulega lektor í fjölmiðlafræði við Háskólann á Akureyri en það er nokkuð snúið að sjá hvaða máli það skiptir nema í algerum undantekningartilvikum - þar sem varamaðurinn, Svanborg Sigmarsdóttir blaðamaður, hefði auðveldlega getað hlaupið í skarðiö. Þess utan sitja þegar tveir fulltrúar nor- rænna endurmenntunarstofnana í ráðinu auk fulltrúanna fimm frá norrænu ríkjunum." w frétt á www.visir.is var sagt frá því að Þor- gerður Katrín hefði svarað Merði og öðrum þeim sem tóku þátt í umræðunum á þingi með þeim orðum að ráðuneytið væri ekki sjálfvirkur stimpilpúði fyrir hagsmunasamtök. Það verður að teljast undarlegt að ráðherrar sem beðnir eru að svara um ákveðin málefni sem varða heila stétt manna skuli leyfa sér slikan hroka i svörum. Þetta minnir á þegar unglingar eru að reyna að verja slæmar gjörðir sínar með skítkasti. Ráð- herrar sem aðrir eru meiri menn svari þeir fyrir sig á kurteisan hátt. Ef ráðherranum finnst „sínir menn" betur til þess fallnir að sitja í þessu ráði á hann einfaldlega að segja það. Punktur! elin@bladid.net

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.