blaðið

Ulloq

blaðið - 23.02.2007, Qupperneq 34

blaðið - 23.02.2007, Qupperneq 34
Úr ösku hinnar sálugu XFM er ný útvarpsstöð að rísa. Stöðin hefur hlotið nafnið Reykjavfk FM og er væntanleg í loftið um næstu mánaðamót. Á bak við stöðina standa hinir dagfarsprúðu Capone-bræðui og Omar Bon- ham sem sá áður um síðdegist- þátt á XFM. Á bak við þá standa svo ónafngreindir peningamenn sem borga búsann. Útvarpsstöðin er staðsett í Skipholtinu þar sem XFM var til húsa. Snorri Sturluson, fyrrverandi útvarpsstjóri XFM, ku ekki vera með í för en ástæðan er talin vera sú að hljómsveitir á borð við Toto og Genesis voru of fyrir- ferðarmiklar á spilunarlistum XFM þegar hann réði ríkjum. ókvæða við tapinu og skoraði á Valda í bassaeinvígi. Hann tók að sjálfsögðu áskoruninni en staður og stund einvígisins er enn á huldu. Umfjöllun um tónleika Hafnfirð- inganna í Jakobfnurfnu birtist í breska tónlistartímaritinu NME í síðustu viku. Vel var látið af tón- leikunum og Gunnar, söngvari sveitarinnar, var sagður minna á gamla pönkarann Mark E. Smith. Jakobínarína lauk nýverið við þrettán tónleika túr um Bret- land en sveitin hefur dvalið þar það sem af er ári við upptökur á sinni fyrstu breiðskífu sem er vænt- anleg með vorinu. Ultra Mega Teknóbandið Stefán (UMTBS) var í Noregi á dögunum ásamt hljómsveitinni Reykjavík og Lay Low. Tróðu þau upp á tónlistarhátíðinni by: Larm og slógu í gegn samkvæmt fjölmiðlum ytra. Siggl, söngvari UMTBS, þótti slá sjálfum Sid Vicous við á sviðinu, en hegðun hans baksviðs var lítið prúðari. Týndist hann kvöldið fyrir heim- ferð. öryggisverðir hátfðarinnar höfðu þá haft afskipti af honum vegna brota á reglum hátíðarinnar, en allt ku vera bannað í Noregi. Fyrr á árinu voru meðlimir Reykja- víkur! staddir á tónlistarráðstefnu í Frakklandi ásamt títtnefndri Lay Low. Valdl, bassaleikari Reykja- víkurl, skoraði á hana í sjómann og tókst að sögn viðstaddra rétt að merja sigur. Lay Low brást Trúbadorinn Helgi Valur stefnir á að hefja upptökur á nýrri breið- skífu um miðjan mars. Hljóðg- úrúinn og hljómborðasafnarinn Magnús öder sér um upptökur en hann hefur starfað með fjölmörgum sveitum og stjórn- aði meðal annars upptökum á breiðskífunni Please Don’t Hate Me með Lay Low. Helgi Valur á eina breiðskífu að baki, Demise of Faith, sem kom út árið 2005. Nú styttist í fyrstu breiðskífu hljóm- sveitarinnar Benny Crespo’s Gang. Skífan ku vera tilbúin fyrir utan eitt lag sem tekið verður upp um helgina. Mikil eftirvænting ríkir um útgáfu plötunnar en sveitin hefur getið sér gríðarlega gott orð fyrir frábæra frammistöðu á tón- leikum undanfarna mánuði. Metallica á Hróarskeldu? Orðrómur er uppi um að hljóm- sveitirnar Metallica og Korn komi fram á næstu Hróarskeldu-hátíð. Fram kemur á vefsíðu Metall- ica að sveitin sé að skipuleggja Evróputúr í sumar og að hún komi jafnvel við heima hjá einum með- limi sveitarinnar. Eins og flestir vita er trommari Metallica, Lars Ulrich, frá Danmörku en hinir koma frá Ameríku. Danska tónlistartímaritið Gaffa slúðrar því að Korn spili á Hróar- skeldu og vísar í aðdáendavefsíðu sveitarinnar. Vefsíðan vísar hins vegar í Gaffa í sinni frétt um málið svo enginn veit hvort eitthvað er til í sögusögnunum. Nokkrar sveitir eru þegar stað- festar á Hróarskeldu, svo sem Red Hot Chili Peppers, My Chemical Romance og gamlingjarnir í The Who. Þá hefur Björk Guðmunds- dóttir einnig staðfest komu sína á hátíðina. Olöf Arnalds fjallar um nánd milli fólks á sinni fyrstu plötu Eftir Atla Fannar Bjarkason atli@bladid.net „Þetta eru sungin lög sem ég spila undir á gítar. Textarnir eru á íslensku og eftir mig,“ segir Ólöf Arnalds um sína fyrstu sólóplötu, Við og við, sem kemur út í dag. „Textarnir fjalla svolítið um nánd milli fólks, þeir eru allir um fólk sem er nálægt mér. Fjölskyldan er alltaf með mér og er í aðalhlutverki." Ólöf hefur fengist við ýmislegt síðan hún útskrifaðist úr Listaháskóla íslands á síðasta ári. Hún hefur til dæmis starfað með hljómsveitinni Múm, sem vinnur að nýrri plötu. Þá söng hún inn á plötu Skúla Sverrissonar, Sería, sem kom út fyrir síðustu jól. Skúli er sérlegur listrænn ráðgjafi á plötu Ólafar. „Hann er guðfaðir plötunnar,” segir Ólöf. „Ég ráðfærði mig við hann um allt sem ég var í einhverjum vafa um. Hann og Kjartan Sveinsson." Þrátt fyrir að tveir ráðgjafar hafi komið að plötunni segir Ólöf enga afbrýðisemi hafa komið upp á milli þeirra. „Þeir höfðu báðir heilmikið að segja um hvernig útsetningarnar ættu að vera. Ég þurfti bara að fá einhverja staðfestingu, af því ég er ekki í hljómsveit, ég var bara ein. Við vorum held ég bara öll alltaf frekar sammála, en á endanum þá réði ég. Við skulum ekki gleyma því,“ bætir Ólöf við og hlær. Platan er tekin upp í Sundlauginni, sem er hljóðver hljómsveitarinnar Sigur Rósar í Álafosskvosinni, en hluti plötunnar var tekinn upp í Víðistaðakirkju. Ólöf segir áherslu hafa verið lagða á að grunnupptökur á söng og gítar yrðu lifandi. „Ef ég hefði tekið upp gítar og söng sitt í hvoru lagi hefði ég getað neglt ákveðna hluti betur,“ segir Ólöf. „En það er eitthvað annað sem gerist í augnablikinu sem er áhugavert að heyra eftir á. Maður reynir að velja góðar tökur sem eru með réttu „fíli“. Svo reyndi ég að hafa fólk hjá mér i hljóðverinu eins mikið ég gat til að hafa einhvern að hlusta. Maður verður að spila fyrir einhvern og segja sögu frekar en að vera á einhvern klínískan máta að taka upp eitthvað sem maður er að búa til.“ Umslag plötunnar prýðir tvíhöfða svanur sem æskuvinkona Ólafar, Sara Riel, teiknaði. Sara þessi teiknaði einnigumslagsmyndplötunnarLabof Love með Skakkamanage. „Það kom ekki til greina að neinn annar myndi hanna umslagið nema hún,“ segir Ólöf. „Þegar við vorum fimmtán ára í gagnfræðaskóla lét ég mig dreyma um að gera plötu og sagði við hana: „Einhvern tíma ætla ég að gera plötu og þá gerir þú .coverið’" af því að hún var í myndlistinni og ég í tónlistinni. Gaman að þetta sé búið að gerast. Þetta er gamall draumur að rætast.“ Væri gaman að spila í líatar „Þetta er fimmta vikan á listanum oglagið er ekki á niðurleið ennþá,“ seg- ir Skúli Gestsson, bassaleikari hljóm- sveitarinnar Dikta. Eins og fram ícom í Blaðinu í gær situr lag sveitarinnar, Breaking the Waves, í þriðja sæti vin- sældarlista útvarpsstöðvarinnar QBS í Katar. „Við kynntumst plötusnúði frá Katar á ferðum okkar um Bret- land. Hann sér um listann." Skúli segir Katar frekar frjálslynt land miðað við löndin í kring, en landið liggur að Sádi-Arabíu. „Það er mikið af bandarískum hermönnum þarna og enska er mikið töluð.“ Að- spurður segir Skúli að gaman væri að spila á tónleikum í landinu. „En ég veit nú ekki hvernig það verður, þetta er náttúrlega bara smáríki, það búa þarna um 800.000 manns.“ Dikta stendur í ströngu þessa dag- ana en Breaking the Waves kemur út á Bretlandi á vegum Smekkleysu á næstunni. Skúli segist vona að breið- skífa fylgi í kjölfarið. „Við ætlum að sjá hvernig þetta gengur. Við höfum farið áður út að spila og ætlum að gera það aftur þegar platan kemur út.“ atli@bladid.net

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.