blaðið - 09.06.2007, Síða 14
14 LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 2007
blaðiö
dreng og seldu líffæri
Lögregla á Indlandi hefur handtekiö og ákært tvo
bræður á þrítugsaldri fyrir ólöglega líffærasölu og
morð á Parvez Alam, níu ára dreng í Bihar-héraði.
Mennirnir viðurkenndu að hafa selt lækni nýru, lifur og
skjaldkirtil drengsins, sem fannst látinn á maísekru.
GRÆNLAND
Heimastjórnin og Alcoa í viðræðum
Heimastjórn Grænlands hefur ákveðið að hefja við-
ræður við bandaríska álfyrirtækið Alcoa um bygg-
ingu 340 þúsund tonna álvers í landinu. N Norsk
Hydro hefur staðfest að það væri hætt við öll
áform um að reisa þar álver og vatnsaflsvirkjanir.
AUSTURRÍKI
Stolin Stradivarius-fiðla fundin
Stradivarius-fiðla sem var stolið í síðasta mánuði í Vín, höfuðborg
Austurríkis, er komin í leitirnar og hefur verið skilað aftur til eig-
anda síns. Fiðlan er metin á rúmlega 200 milljónir króna og fannst
þegar lögregan gerði áhlaup inn í íbúð nokkra í höfuðborginni fyrr í
vikunni. Sex Georgíumenn hafa verið handteknir vegna málsins.
Styrkur til náms
í verkfræði
eða
tæknifræði
Orkuveita Reykjavíkur auglýsir styrk til konu sem stundar eða hyggst hefja nám í verkfræði eða
tæknifræði. Einungis nám til fyrstu prófgráðu (greininni er styrkhæft. Styrkurinn verður veittur um
mánaðamótin ágúst-september nk.
Umsóknum, með upplýsingum um náms- og starfsferil ásamt
staðfestingu á skráningu í nám, ber að skila með rafrænum hætti
á vef Orkuveitu Reykjavíkur, www.or.is fyrir 28. júní.
GEFA/ÞfGGJA
5103737 sí^áauglýsíngáír blaöiömm
SMAAUGLYSINGAR8iBLADlD.NET
Múrsteinaverksmiðja í Kína:
Leysti þræla
úr ánauð
■ Pólitísk tengsl ■ Berfættir í brennsluofninum
Eftir Atla isleifsson
atlii@bladid.net
Rúmlega þrjátíu verkamönnum í
múrsteinaverksmiðju í hinu fátæka
Shanxi-héraði í Kína var bjargað úr
ánauð á fimmtudaginn, eftir að hafa
verið haldið sem þrælum af stjórn-
endum fyrirtækisins. Wang Binbin,
eigandi verksmiðjunnar, er einn
þeirra sem hafa verið handteknir
vegna málsins, en hann er sonur rit-
ara Kommúnistaflokksins í Shanxi-
héraði. Verkamennirnir voru allir
skítugir, illa á sig komnir og gátu
einungis átta verkamannanna gefið
upp nöfn sín við yfirheyrslur. Verka-
mennirnir höfðu unnið ólaunaða
vinnu tuttugu tíma á sólarhring og
fengu einungis brauð og vatn frá
vinnuveitendum sínum.
Verkamennirnir hafa greint lög-
reglu frá því að einn þeirra hafi
verið barinn til dauða með hamri
fyrir að hafa ekki unnið nægilega
hratt. Þeir sem var bjargað voru
með ör, brunasár og annars konar
meiðsl á öllum líkamanum eftir
að hafa verið neyddir til að flytja
ókælda múrsteina og ganga ber-
fættir í brennsluofninum.
Wang Dongji, faðir eiganda
verksmiðjunnar, er grunaður um
aðild að málinu, en talið er að verk-
smiðjan hefði aldrei getað starfað
með þessum hætti án pólitískrar
íhlutunar hans. Þegar lögregla réðst
inn í verksmiðjuna fundust illa lykt-
andi verkamennirnir sem höfðu
klæðst ssömu fötunum í eitt ár. í
verksmiðjunni höfðu þeir engan að-
gang að þvottaaðstöðu og höfðu til
að mynda ekki getað burstað tenn-
urnar í sér.
Lögregla vinnur nú í því að koma
verkamönnunum aftur til síns
heima og að þeir fái laun borguð
fyrir vinnu sína í verksmiðjunni.
Verð frá 2.790 þús.
Kíktu á suzukibilar.is
SUZUKI BÍLAR HF.
Skeifunni 17. Sími 568 5100
er lífsstilí!