blaðið - 09.06.2007, Page 16
16 LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 2007
blaðið
mmm
MyndÆMi
fsliœfe ■■■
r'E.r jBS'Sa ■■■ LuL
Áfengislöggjöfin:
Þjónar ekki lengur
tilgangi sínum
B Auövelt að sniöganga auglýsingabann ■ Áfengiskaupaaldur veldur ósamræmi ■ Einokun á smásölu ákaflega umdeild
Islensku áfengislögin hafa verið
bitbein samfélagsins árum saman.
Tilgangur þeirra er að draga úr mis-
notkun á áfengi með ýmiss konar
takmörkunum á meðferð, auglýs-
ingu og neyslu hins löglega vímu-
gjafa og sitt sýnist hverjum um þær
takmarkanir. Á síðustu löggjafar-
þingum hafa fjölmargir þingmenn
lagt fram frumvörp sem miða að
breytingum á áfengislöggjöfinni,
ýmist til þrengingar eða rýmkunar.
Þau eiga það þó öll sameiginlegt að
boða ekki heildstæða endurskoðun
á lögunum sem eru af mörgum hags-
munaaðilum talin barn síns tíma,
þrátt fyrir að vera einungis níu ára
gömul.
Styrkur
til iðnnáms
eða vélfræði
(vélstjórnun)
Reykjavíkur
Orkuveita Reykjavíkur auglýsir styrk til konu sem stundar eða
hyggst hefja nám í einum af eftirfarandi greinum: Vélfræði
(vélstjórnun), rafvirkjun, vélvirkjun, múraraiðn eða pípu-
lögnum. Styrkurinn verður veittur um mánaðamótin
ágúst-september nk.
Umsóknum, með upplýsingum urn náms- og starfsferil
ásamt staðfestingu á skráningu í nám, ber að skila með
rafrænum hætti á vef Orkuveitu Reykjavíkur, www.or.is
fyrir 28. júní.
Orkuveita Reykjavíkur rekur stærstu jarðvarmaveitu í heimi.
www.or.is
= \ u | \ -"jpagfe
■
Oftar en ekki hefur verið hægt að
fara í kringum lögin, til dæmis í aug-
lýsingum á áfengi, og í síðustu viku
kallaði þingmaður Vinstri grænna
eftir harðari refsingum á hendur
þeim sem gerast ítrekað brotlegir við
þau með þeim hætti. Blaðið ákvað í
kjölfarið að kynna sér áfengislögin,
þær breytingartillögur sem hafa
komið fram á síðustu misserum
og velta upp þeirri spurningu hvort
ekki sé orðið tímabært að taka þau
til heildstæðrar endurskoðunar.
Áfengislögin
I upphaflegu frumvarpi áfengis-
laganna frá 1998 sagði í fyrstu máls-
grein að tilgangur laganna væri að
„miða að hófsemd í meðferð áfengis“.
I meðförum þirigsins breyttist text-
inn og í endanlegri útgáfu laganna
segir orðrétt að það sé „tilgangur
laga þessara að vinna gegn mis-
notkun á áfengi“. Fyrra orða-
lagið hefði þó átt betur við því
lögin ganga mun lengra í tak-
mörkunum sínum á meðferð
áfengis en að „vinna gegn mis-
notkun á áfengi“.
Lögin ganga út á það að takmarka
meðferð, auglýsingar og neyslu á
áfengi. Þau njóta allnokkurrar sér-
stöðu í íslensku lagaumhverfi því
það eru ekki mörg lög sem miða að
því að stjórna aðkomu borgaranna
að vöru á markaði. Það sem veitir
þeim enn meiri sérstöðu er að þau
einskorða alla smásölu á áfengi
við einn aðila, Áfengis- og tóbaks-
verslun ríkisins (ÁTVR).
Samkvæmt lögunum telst áfengi
vera hver sá neysluhæfur vökvi
sem er í rúmmáli með meira en
2,25 prósent af vínanda. Leyfi til
innflutnings, heildsölu, veitingar
eða framleiðslu áfengis eru bundin
samþykki yfirvalda. Auk þess þurfa
innflytjendur og framleiðendur
áfengis að greiða sérstakt áfengis-
gjald ásamt venjubundnum tollum
og gjöldum sem fylgja almennt
innflutningi og/eða framleiðslu.
Áfengisgjaldið er föst krónutala og
Kassavín
blaöiö
LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 2007 17
reiknast á hvern sentilítra af áfengi.
Samkvæmt reglugerð dóms- og
kirkjumálaráðneytisins er það á bil-
inu 52,8 krónur til 58,7 krónur eftir
því hversu sterkt áfengið er. Auk
þess leggur smásalinn, ÁTVR, og
aðrir veitendur áfengis á vöruna.
Fyrir vikið er áfengisverð á Islandi
eitt það hæsta á byggðu bóli.
Aldur og auglýsingar
Samkvæmt íslenskum lögum
verða ríkisborgarar íslenska lýðveld-
isins sjálfráða við átján ára aldur.
Eftir þann tíma bera þeir sjálfir
ábyrgð á fjármálum sínum, mega
gifta sig, keyra bifreiðar, bjóða sig
fram til Alþingis íslendinga og
kaupa sér tóbak. Áfengislögin segja
hins vegar að óheimilt sé að selja,
veita eða afhenda þeim sem eru
yngri en 20 ára áfengi. Því er áfeng-
isneysla sjálfráða og fullnuma borg-
ara á aldrinum átján til tuttugu ára
áfram á forræði ríkisins.
I lögunum er einnig ákvæði um
bann við auglýsingum á áfengi og
einstökum tegundum áfengis. Aug-
lýsingar í erlendum miðlum sem
eru aðgengilegir á íslandi eru þó
undanþegnar því banni. Þó virðist
það ljóst að þetta bann er sniðgengið
af aðilum hins íslenska áfengismark-
aðar. Auglýsingar þar sem vara sem
er í öllum aðaltriðum og útliti alveg
eins og hin áfenga vara er auglýst
sem óáfeng eða undir hatti kynn-
ingar. Því virðist þessi hluti laganna
ekki þjóna tilgangi sínum óbreyttur
og auðvelt að dansa í kringum þau.
Jón Erling Ragnarsson, fram-
kvæmdastjóri Mekka Wine&Spirits,
sagði í samtali við Blaðið í vikunni
að lögin skertu ótvírætt samkeppnis-
stöðu síns fyrirtækis vegna þessarar
undanþágu. „Það þarf ekki annað
en að skoða annars vegar blað sem
er prentað á íslandi og hins vegar
blað sem er prentað á ensku en eiga
að höfða til sama markhóps. Þar er
ljóst að við sitjum ekki við sama
borð og aðrir.“ Hann vill láta end-
urskoða þennan hluta laganna og
undir það tók Árni Einarsson, fram-
kvæmdastjóri Fræðslumiðstöðvar
í fíknivörnum. „Mér finnst fullt til-
efni til að menn setjist yfir þau og
skilgreini lögin á skýrari hátt. Það
þarf ekkert að vera ágreiningur um
að gera slíkt með það að markmiði
að það sé farið að lögunum “
Tilraun til breytinga
Á síðustu löggjafarþingum hafa
verið lögð fram fjölmörg frumvörp
með breytingartillögum við áfengis-
lögin. Þau hafa ýmist miðað að því
að þrengja aðgengi almennings að
áfengi eða auka frelsi hans til að um-
gangast hinn löglegá vímugjafa sem
hverja aðra vöru, að minnsta kosti
að einhverju leyti.
Þingmenn þriggja flokka; Sjálf-
stæðisflokks, Samfylkingar og
Framsóknarflokks
flutt
breytingartillögu á fjórum síðustu
löggjafarþingum sem miðar að því
að leyfilegt verði að selja bjór og
léttvín í matvöruverslunum. Áfengi
með meiri vínanda en 22 prósent á
þó enn að vera á forræði ÁTVR sam-
kvæmt tillögunni. Á meðal flutn-
ingsmanna þess voru Guðlaugur
Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra
og Ágúst Ólafur Ágústsson, varafor-
maður Samfylkingarinnar. Frum-
varpið fór til meðferðar í allsherjar-
nefnd og skilaði hún áliti þess efnis
að það ætti að samþykkja þann 15.
mars síðastliðinn.
Þörf á endurskoðun
Það virðist ljóst að áfengislög-
gjöfin þarfnast endurskoðunar.
Hvort sú endurskoðun leiðir til auk-
ins frelsis í meðhöndlun áfengis eða
til frekari hafta skiptir ekki máli í
því samhengi, því fyrst og fremst
þarf að taka á ósamræmi laganna.
Áfengisheildsalar og forvarnarsam-
tök finna sér meira að segja flöt til að
vera sammála varðandi ákvæðið um
auglýsingabann á áfengi. Þar virðast
lögin vera allt of óskýr og fjarri því að
þjóna nokkrum vitrænum tilgangi.
Það sama má segja um ákvæðið um
áfengiskaupaaldurinn því það hlýtur
að teljast þversagnarkennt að veita
borgurunum sjálfstæði að öllu leyti
nema einu við átján ára aldurinn,
það er að þeim er enn meinað að
kaupa eða neyta áfengis.
Aðgengið að hinum löglega
vímugjafa er svo eilífðardeilumál
sem verður að taka til pólitískrar
umræðu með reglulegu millibili.
Áratugum saman þótti sjálfsagt að
banna bjór hér á landi í nafni lýð-
heilsu en á endanum kom að því
að bjórbannið var dæmt sem barn
síns tíma. Það er því fullt tilefni til
að velta þeirri spurningu fyrir sér
hvort einokun ríkisins á smásölu
áfengis sé ekki orðið það líka. Það er
svo þingmanna okkar að svara því.
Ögmundur Jónasson
alþingismaður:
Aukiö aögengi skref
í afturhaldsátt
„Mér finnst alveg
sjálfsagt að hafa
alla löggjöf til end-
urskoðunar og
það gildir líka um
þessa,“ segir Ög-
mundur Jónasson,
þingmaður Vinstri
grænna, þegar hann
er spurður um áfeng-
islöggjöfina. Hann
varar þó við óheftu
aðgengi að áfengi.
„Boðberar óheftrar
markaðsvæðingar
á brennivíni og tób-
aki láta í veðri vaka að þeir séu merkisberar framfara.
Það er mjög mikill miskilningur því þeir eru að stefna
í afturhaldsátt. Þróunin alls staðar í heiminum er í
gagnstæða átt og við erum að taka þátt í þeirri alþjóð-
legu þróun. Hún gengur öll út á að reyna að takmarka
auglýsingamennsku í tengslum við áfengi, tóbak og
annað sem veldur heilsutjóni. Þess vegna eigum við
að reyna að snúa þessu dæmi við og reyna frekar að
taka þátt í þessari baráttu á heimsvísu sem miðar að
því að þrengja möguleika seljenda til að koma þessum
vörum á markað.“
Ögmundur var einn þeirra sem lögðu fram frum-
varp á síðasta þingi sem miðaði að því að koma í veg
fyrir að hægt væri að fara í kringum áfengisauglýsinga-
bannið. Hann segir það hafa verið gert til að löggjöfin
gæti náð fram markmiði sínu. „Það er alveg skýrt
samkvæmt íslenskri löggjöf að áfengisauglýsingar
eru ekki heimilar. Það er farið framhjá þessari löggjöf
vegna þess að hún er gölluð að því leyti að það er hægt
að auglýsa til dæmis bjór með því að láta þess getið
neðanmáls að um óáfengan drykk sé að ræða. Hann er
engu að siður óþekkjanlegur frá áfengum bjór. Það er
á þennan hátt sem menn eru að fara framhjá löggjöf-
inni og það er þetta sem við vildum girða fyrir.“
Björgvin G. Sigurðsson
viðskiptaráðherra:
Þarf aö endurskoða
áfengislögin
„Löggjöfin er í
sjálfu sér gölluð
og það þarf að end-
urskoða margt í
henni," segir Björg-
vin G. Sigurðsson
viðskiptaráðherra
um áfengislögin.
„En það er sjálfsagt
að við þá endur-
skoðun sé annars
vegar stuðst við sjón-
armið samkeppni
og frjálsrar versl-
unar og hins vegar
við sjónarmið for-
varna og þeirra sem vilja vernda börn og unglinga
fyrir vímugjöfum.“
Hann varar þó við því að fólk líti á áfengi sem hverja
aðra vöru. „Áfengi er ekki matur heldur vímugjafi.
Neysla þess hefur afleiðingar og það er aldrei sjálf-
sagt að aðgengi að og auglýsingar á áfengi sé eins og á
annarri matvöru. En auðvitað flæða hér um erlendir
fjölmiðlar og Internetið þannig að það er kannski
svolítið hæpið að ætla að vernda íslendinga fyrir aug-
lýsingum með slíku banni og sjálfsagt að endurskoða
það. Aðalmálið er að það séu lög í gildi sem eru virt.
Það er miklu heiðarlegra en að það sé hlegið að lög-
unum á meðan menn eru að auglýsa áfengi með neð-
anmálstexta sem segir að það sé núll prósent. Það er
heiðarlegra að hafa gegnsæja og skýra löggjöf."
Björgvin segir sjálfsagt að samræma áfengiskaupa-
aldurinn við önnur réttindi og skyldur á ýmsum
sviðum. Hann segir það þó pólitíska ákvörðun hverju
sinni hvernig aðgengið að áfenginu eigi að vera. „Við
erum náttúrlega sjálfstætt ríki og vegum allar slíkar
ákvarðanir í samræmi við heilbrigðis- og lýðheilsu-
markmið. Áfengi er löglegur vímugjafi og það er sátt
um það á meðan það er ekki sátt um að ýmsir aðrir
vímugjafar séu það.“
Þarftu að fá nýtt skattkort eða fá gamla kortinu skipt?
Nú getur þú sótt um
Nýjung!
skattkort
á skattur.is
og fengið það sent
Á
jj 1 - Umsækjandi sækir um skattkort
á skattur.is
2 - Skattstjóri fer yfir umsóknina
3 - Skattkortið berst í pósti
Sótt er um skattkort á:
www.skattur.is
RSK
RÍKISSKATTSTJÓRI