blaðið - 09.06.2007, Page 18
blaði
Útgáfufélag:
Ritstjórar:
Fréttastjórar:
Ritstjórnarfulltrúi:
Árogdagurehf.
Ólafur Þ. Stephensen
Trausti Hafliðason
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
Þröstur Emilsson
Elín Albertsdóttir
Þrekvirki á jökli
Ung kona, Marta Guðmundsdóttir, hefur lagt það á sig að ganga y fir Grænlands-
jökul í kulda og vonskuverði til að styrkja baráttuna gegn brjóstakrabbameini.
Ferðin hófst 20. maí og lýkur þann 13. júni. Marta greindist með brjóstakrabba-
mein árið 2005 og hefur gengið í gegnum erfiða lyfjameðferð. Gönguleiðin yfir
jökulinn er um 600 kílómetrar og er farið eftir 66. breiddargráðu, þvert yfir jök-
ulinn, frá vestri til austurs. Marta er eini íslendingurinn í sjö manna hópi sem
lagði á jökulinn. Á bloggsíðu Mörtu má lesa að veðrið hafi verið afar óhagstætt
og ferðin því gríðarlega erfið. Þrekvirki sem þetta, gert f þeim tilgangi að efla
starf Leitarstöðvar Krabbameinsfélagsins, verður sennilega seint fullþakkað.
Því miður er það svo að ár hvert greinast á bilinu 160-170 íslenskar konur
með brjóstakrabbamein, þar af er nær helmingurinn á aldrinum frá 30 til 60
ára. Fjöldi nýrra tilfella hefur aukist en lifshorfurnar hafa sem betur fer einnig
batnað mikið. Um helmingur kvenna sem greindust með brjóstakrabbamein
fyrir fjörutíu árum lifði í fimm ár eða lengur en nú geta um 80 prósent vænst
þess að lifa svo lengi. Nú eru á lífi um 1900 konur sem fengið hafa brjóstakrabba-
mein. Tíunda hver íslensk kona getur búist við að fá brjóstakrabbamein og það er
ekki lítill hópur. Flestir þekkja einhverja konu sem greinst hefur, hvort sem það
er í fjölskyldu, vinahópi eða á vinnustað.
Islenskar konur gera sér sennilega ekki grein fy rir hversu mikils virði það er að
hafa aðgang að Leitarstöð Krabbameinsfélagsins. Þar er afbragðsþjónusta, fljót
og góð, og vel tekið á móti öllurn. Þá greiða mörg yerkalýðsfélög skoðunina fyrir
félagsmenn sína. Það er því mikil synd að enn skuli vera til konur sem ekki nýta
sér þessa þjónustu. Nýjustu rannsóknir benda til þess að hjá þeim sem mæta í
skoðun lækki dánarlíkurnar vegna brjóstakrabbameins um 40 af hundraði.
Að undanförnu hafa Krabbameinsfélaginu borist stórhuga gjafir til að efla
þessa þjónustu. Nýjustu tæki til að skoða brjóst kvenna, sem leysa munu af
hólmi eldri röntgentæki, eru dýr en nú hillir undir að Krabbameinsfélagið geti
eignast slík tæki. Það verður frábært fyrir allar íslenskar konur þegar nýja tækið
verður komið í notkun því það er mun nákvæmara en það eldri og getur fyrr
greint krabbameinsæxli, t.d. hjá mjög ungum konum. Auk þess nota þessi tæki
mun minni geislaskammta en áður þekktist.
Miðað við hversu vel hefur tekist til með krabbameinsleit hjá konum er nauð-
synlegt að taka upp reglubundið eftirlit með körlum. Blöðruháls- og ristilkrabba-
mein hafa aukist á undanförnum árum og nú er svo komið að ristilkrabbamein
er annað algengasta krabbameinið sem greinist hér á landi. Alþingi ályktaði í vor
að fela heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra í samráði við landlækni að hefja
undirbúning að skimun fyrir krabbameini í ristli og endaþarmi þannig að skipu-
leg leit hefjist á árinu 2008 en það hefur verið mikið baráttumál að fá það í gegn.
Vonandi að nýr heilbrigðisráðherra gangi í málið.
Krabbameinsfélagið hefur að stóru leyti verið rekið af góðmennsku einstak-
linga og fyrirtækja ( gegnum tíðina sem hafa fært félaginu fé til eflingar þess.
Fólki sem þekkir sjúkdóminn af eigin raun eða í gegnum ættingja. Krabbamein
er hræðilegur sjúkdómur sem leggst bæði á börn og fullorðna. Það er nauðsyn-
legt að heilbrigðisyfirvöld geri sér grein fyrir mikilvægi þess að sjúkdómurinn
greinist á byrjunarstigi og efli alla þjónustu til að svo geti orðið.
Það er þakkarvert sem gert er en enn er margt óunnið í baráttunni við krabba-
meinið og vonandi er heilbrigðisráðherra með skýra sýn á þetta málefni. Þjóðin
væntir þess.
Elín Albertsdóttir
Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson Ritstjórn & auglýsingar: Hádegismóum 2,110 Reykjavík
Aðalsími: 510 3700 Símbréf á f réttadeild: 510 3701 Símbréf á auglýsingadeild: 510 3711
Netföng: bladid@bladid.net, frettir@bladid.net, auglysingar@bladid.net
Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins
PENZIM
ÍSLENSK NÁTTÚRUVARA UNNIN
Ú R SJÁVARRÍKINU UMHVERFIS
ÍSLAND
Dr. Jón Bragi Bjamason, prófessor í lífefnafræði, hefur
unnið að rannsóknum og þróun Pensímtækninnar um
áratuga skeið og er hún nú einkaleyfisvarin um allan heim.
Penzim fyrir húðina, liðina og vöðvana
PENZIM er hrein,
tær og litarlaus
náttúruvara byggð á
vatni en ekki fitu.
PENZIM inniheldur
engin ilmefni,
litarefni eða gerviefni
sem geta valdið
ofnæmisviðbrögðum.
PENZIM inniheldur
engar fitur, oíiur eða
kremblöndur sem
geta smitað og eyðilagt
flíkur eða rúmfót.
PENZIM
GEL
WiIM AIJ. NAftWAi.
s;;p{H Aítnvr
MARtM EN2VMÍJS
Adv*i*ual Slrln (a Body
Mtnxiifí.nlu **
PENZIM
LcrrioN
wmi KU \ATi nAt
.«p»n Mrnt
M VRINt r.VJYVFt
Ad*wmnl SkMi fc Bmly
MaMifUlnit fc
Penzim fæst í apótekum, heilsubúðum og verslunum Nóatúns um land allt.
penzim.is
18 LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 2007
blaöiö
27..JuTsJt Blí TypL$Td
H0í>BYLGJ/í
Vt’N‘NuAn5 SKELLU*
% 7$lA>4Dt
tu y\kní\h/E& KtlLfi MiCr
~R.a$r$rr/l' £A/ BiMHVtfiKl
'BxGfUnn \/i$> eft? pt Sj Ú
bFtjiz PVi' w hlATA HLBYrT
T-ESgU Pítftftí ÍTJH í LAfiViÞ,
Spennandi verkefni
Ég hefði ekki tekið það alvarlega
ef einhver hefði sagt mér að ég ætti
eftir að ganga inn Dómkirkjugólfið
með Árna Johnsen og Birni Bjarna-
syni og láta biskupinn blessa sam-
band okkar og nýja ríkisstjórn okkar
og Sjálfstæðisflokks. Svona hefur
almættið mikinn húmor að það er
alltaf að leggja fyrir mann ný verk-
efni til að auka manni víðsýni og lífs-
reynslu. Það tekur auðvitað svolít-
inn tíma að venja sig við hið breytta
landslag og fyrstu dagana þurftu
margir að minna sig á hverjum þeir
væru með í liði og hverjum ekki en
það er fljótt að venjast.
Sumir hafa sagt að samstjórn Sjálf-
stæðisflokks og Samfylkingar hafi
verið eini kosturinn, einkum eftir
stórundarlega framgöngu Steingríms
J. dagana eftir kosningar. En þó í
því sé margt rétt er samstarf flokka
okkar ekki neyðarkostur heldur
spennandi tilraun. Tilraun til þess að
návíðtækri samstöðu venjulegs fólks
um mörg og stór verkefni sem linnu-
litlar deilur hafa staðið um. Hinn
mikli meirihluti ríkisstjórnarinnar
styrkir mjög miðjuna í íslenskum
stjórnmálum og gefur færi á breyt-
ingum í frjálslyndis- og framfaraátt
án öfga, hvort sem er til hægri eða
vinstri. Enda sjáum við að þeir sem
eru ósáttir eru einkum þeim sem
lengst eru til hægri eða vinstri.
Hin stóru verkefni eru auðvitað
efnahagsstjórn í þágu almennings,
útrýming biðlista barna og aldraðra
ásamt endurskoðun almannatrygg-
inga, úrbætur í heilbrigðiskerfinu,
nýjar áherslur í atvinnumálum og
umhverfisvernd. Við í Samfylking-
unni megum vera býsna ánægð með
þá málefnalegu góðu samstöðu sem
við höfum náð með félögum okkar í
Sjálfstæðisflokknum í stefnuyfirlýs-
ingu ríkisstjórnarinnar. Nú verður
verkefnið að breyta orðum í efndir
og sýna með styrk og staðfestu í
stjórnarsamstarfinu að hægt sé að
ná markmiðum sínum í samstarfi
við Sjálfstæðisflokkinn. Takist
okkur það ættum við líka að afs-
anna að óhjákvæmilegt sé að sam-
starfsflokkar Sjálfstæðisflokksins
þurrkist að mestu út þegar á líður.
Enda erum við minnug þess að Sam-
Helgi Hjörvar
fylkingin var ekki bara stofnuð til
þess að komast í ríkisstjórn heldur
til að ná forystu í landsmáíum og
gera breytingar á samfélaginu í
anda jafnaðarstefnunnar.
Allt annað umhverfi
í minn hlut kemur það ánægjulega
verkefni að stýra umhverfisnefnd
Alþingis. Á fáum sviðum eru áhrif
stjórnarskiptanna til stefnubreytinga
greinilegri. Samstaða er um að taka
stærsta hluta kjörtímabilsins í að
gera áætlun til framtíðar um hvaða
hluta íslenskrar náttúru við ætlum
að friða. Það er mikilvægt að við
nálgumst umhverfismál frá því sjón-
armiði en ekki eins og verið hefur í
hvaða röð við ætlum að spilla náttúr-
unni með virkjunum. Á meðan sú
vinna fer fram verður ekki hróflað
við mikilvægum svæðum þar sem
virkjunaráform hafa verið, s.s. Kerl-
ingafjöllum, Landmannalaugasvæð-
inu og Langasjó. Áhugavert verður
að sjá hvort okkur tekst að skapa þá
víðtæku sátt sem mikilvægl er að ríki
um framtíð náttúru landsins.
Mikilvægur liður í stjórnarsátt-
málanum er einnig yfirlýsingin
um verulega stækkun friðlandsins í
Þjórsárverum þar sem alls votlendis
verði gætt. Helstu athugasemdir
við hina nýju umhverfisstefnu hafa
verið að Norðlingaöldu sé ekki sér-
staklega getið en sem kunnugt er
hafa sjónarmið stjórnarflokkanna
um hana verið öndverð. Hvað sem
gagnrýni líður liggur fyrir að í
stjórnarsamstarfi þessara flokka
verður ekki ráðist í Norðlingaöldu
og er það auðvitað einn af hinum
fjölmörgu ávinningum sem Sam-
fylkingin hefur náð með því að axla
ábyrgð á stjórnarsamstarfinu.
Fyrir okkur sem erum vön því að
starfa í meirihluta var skemmtilegt
að fá að spreyta sig í stjórnarand-
stöðu síðustu 4 ár en það var líka
meira en nógu langur tími. Það var
löngu orðið tímabært að jafnaðar-
menn tækju um stjórnvölinn enda
í pólitík til að hafa áhrif en ekki að
mótmæla úti fyrir. Eftir sem áður er
hlutverk stjórnarandstöðunnar lýð-
ræðinu mikilvægt og áhyggjuefni á
þessu sumarþingi hversu veikburða
hún er og forystulaus. Því verður
áríðandi að almenningur og fjöl-
miðlar veiti okkur nauðsynlegt að-
hald - það nauðsynlega aðhald sem
ekki verður vart í þinginu.
Höfundur er þingmaður Samfylkingar
Klippt & skorið
w
Arangur íslensku keppendanna á Smá-
þjóðaleikunum í Mónakó þetta árið
er sérlega glæsilegur. Yfir 200 Islend-
ingar tóku þátt í ellefu
íþróttagreinum og
hirtu margir þeirra verð-
laun í sínum greinum
auk þess sem margir
aðrir bættu sín persónu-
legu met enda aðstaða öll og umgjörð með því
besta sem gerist. Gárungar í netheimum og
reyndar víðar benda á að á slíkum vettvangi
gæti íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu
sannarlega látið til sín taka meðal jafningja.
Margsannað sé að þrátt fyrir stbku stórleiki þá
séu íslenskir knattspyrnumenn upp til hópa
ekki í nægilega háum gæðaflokkl tll að taka
þátt í stærri mótum og ná góðum árangri.
Fákeppnin meðal ferðaskrifstofa hérlendis
er aldrei jafn áberandi og yfir háannatím-
ann. Sama verð gildir mikið til á þeim
þremur til fjórum ferðaskrifstofum sem eitt-
hvað kveður að hérá landi og nokkuð áberandi
hvað flugferðir hafa hækkað í verði. (vetur til
að mynda buðust flugsæti til Evrópu nokkuð
reglulega á tæpar 20 þúsund krónur fyrir ein-
stakling en verð fyrir flugsætin í dag og næstu
mánuði er 15 þúsund
krónum dýrara fyrir
sömu vegalengd. Þá er
og lítill teljandl munur
á fargjöldum lceland
Express og lcelandair standi viljl til að flýja Klak-
ann í flýti og flestum orðið Ijóst að sú kjarabót
sem hið fyrrnefnda færði þegnum þessa lands
íupphafierfyrirbí.
Nýtt leiðakerfi Strætó tók gildi um síð-
ustu helgi í miklum flýti. Virðist breyt-
ingin hafa gengið nokkuð þrautalaust
fyrir sig en hafa ber í huga
að notendur þjónustunnar
hafa hvergi rödd til að láta
í sér heyra og er líklegt að
vagnstjórar hafi fengið
stöku gusur yfir sig í stað
þeirra sem ábyrgðina bera. Ein breyttra leiða
gengur um vesturbæ Kópavogs öfugum megin
við það sem áður tlðkaðist og þjónustan er slík
að þeim megin eru engin strætðskýli og hvergi
merkingar um biðstöðvar. Viðskiptavinir verða
að giska á hvar vagninn stoppar eða beinlínis
flagga vagninn þegar hann ekur framhjá.
albert@bladid.net