blaðið - 09.06.2007, Qupperneq 38
38 LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 2007
blaðið
tíska
tiska@bladid.net
Litaspá sumarsins
Nú þegar næstum er komið fram í miðjan júní er ekki seinna vænna að spá í aðalliti sumarsins. En sam-
kvæmt miklum tískugúrúum og spekingum er litaspá sumarsins eftirfarandi: vatnsmelónurauöur, Ijósgrár,
gulur, lime-grænn, hvítur og dálitið dempaður fjólublár. Þannig að líklegt er að verslanir séu um þetta leyti
að fyllast eða eru nú þegar fullar af flíkum í fyrrnefndum litum.
ÍStfSKECHERS
\\VW/SCT:vE'.
önmj&ú
Stærðir: 27 - 35
4.690 kr.
Stærðir 27 - 35
4.690 kr.
Stærðir 21 - 26
5.990 kr.
Stærðir 27 - 35
5.890 kr.
5.390 kr.
SPÖNGINNI S: 587 0740
MJÓDDINNI S: 557 1291
GLÆSIBÆ S: 553 7060
BORGARNESI S: 437 1240
VILTU SEUA...?
SMAAUGLYSINGAR@BLADID.NET
Verslunin KVK
Falleg föt sem eru
jafnframt þægileg
litlu sundi út frá Laugavegin-
! um getur að líta einstaklega
huggulega byggingu þar sem
verslunin KVK er til húsa.
| Aðstandendur búðarinnar
I eru þær íris Eggertsdóttir
I myndlistamaður og Kolbrún
Ýr Gunnarsdóttir en hún hefur
textílmenntun að baki. Þær stöllur
hófu að vinna að sinni eigin fata- og
fylgihlutagerð vegna helsta lögmáls
hagfræðinnar, framboðs og eftir-
spurnar. En eins og flestir vita þarf
markaðurinn að rata í ákveðið jafn-
vægi. „Falleg föt sem eru jafnframt
þægileg eru útgangspunktur okkar.
Það er svo mikið af fatnaði í dag sem
ætlaður er konum, til dæmis dragtir
og annar spariklæðnaður, sem er dá-
lítið þvingandi svo okkur langaði að
reyna að hanna sparilegan klæðnað
sem væri jafnframt þægilegur. Þess
vegna notum við mjúk og góð efni
sem og falleg form.”
í versluninni getur að líta ýmiss
konar sniðugan, óvenjulegan en
jafnframt hentugan klæðnað sem er
ekki á hverju strái. Ævintýralegar
Rauðhettuhempur má þar nálgast,
hina undarlegustu eyrnalokka og
flíkur sem geta gegnt misjöfnum
hlutverkum við mismunandi notk-
Svokölluð Rauðhettuslá með afar
fínni slaufu og hettu. Hentar vel í
skógarferðir sumarsins eða jafnvel
í heimsókn til ömmu gömlu. Sláin
hentar sem yfirhöfn þegar veöur er
hlýtt en einnig er hún nytsamleg ein
og sér þegar kólna tekur.
KVK-spangirnar hafa rutt sér til rúms að undanförnu hjá tískuljón-
um borgarinnar. Þeer fást í nokkrum gerðum. Hægt eraðfá eintak
með blúndum, leðri eða slaufum. Spangirnar eru nytsamlegar við
margs konar tækifæri, bæði við ffn tiiefni og önnur.
Hot-pink-slá Þessa má nota við
hvers konar tilefni, bæði sem utanyf-
irflík eða fín kokteilaflík. Hún er kjörin
fyrir skvísur bæjarins sem vilja vekja
athygli. Sláin er fóöruö og úr bómull
með rómantískri blúndu að aftan.
Röndóttur bómullarkjóll sem
hentar vel íkokteilboð eða viö önnur
tilefni. Stúlkurnar í KVK minna á að
við kjól þennan sé hægt að vera í
leggings, sokkabuxum eöa buxum,
allt eftir smekk hvers og eins.
Ljósbleikur og svartur kjóll sem
hefur margvíslega notkunarmögu-
leika. Einnig er hægt að nota flíkina
sem pils eða ponsjó þegar svo
stendur á.
un, svo sem pils sem getur jafnframt
verið kjóll eða jafnvel ponsjó þegar
svo ber undir. „Við finnum vel að ís-
lenskar konur hafa gaman af því að
vera í einstökum flíkum en margar
af flíkum okkar eru aðeins til í einu
eintaki þó við notum sömu sniðin ef
til vill síðar.”
Þær leyfa efninu að ráða ferðinni
og svo koma hugmyndirnar í kjöl-
farið. Aðspurðar um ráð varðandi
klæðaburð eru þær stöllur á einu
máli um að það sé kominn tími til
að fólk hætti að eltast við tískuspeki
utan úr heimi og klæðist því sem
hentar hverjum og einum.
bjorg@bladid.net
Málverkasýning
einstök sýning
Auður Marinósdóttir opnar sýningu
laugardaginn 9. júní kl. 13:00 sem stendur viku
W
I snyrtibudduna
Á sumrin hentar náttúruleg förðun
gjarnan betur en þung og dramatísk.
Þá er um að gera að velja sér léttan
farða, gott krem og ferskt ilmvatn.
Funny frá Moschino
Nýr og ferskur ilmur frá Mo-
schino. Funny einkennist af
freyðandi ávaxtakeim með
mjúkum tónum. Jasmína,
bóndarós og rifsber gefa ilm-
vatninu sumarlegan og léttan
blæ sem svíkur engan.
Elizabeth Arden Intervene
Nýtt krem frá Eliza-
beth Arden sem
hægir á öldrunar-
einkennum húðar-
innar. Kremið gefur
húðinni góðan raka ásamt því að
það vinnur á áhrifum sólarljóss
og dregur úr myndun finna lína.
Kremið minnkar ójafnvægi sem er
tilkomið vegna hormónabreytinga
og viðheldur kollagenframleiðslu
húðarinnar.
WetandWild
Wet N'Wild-vörurnar eru sérhann-
aðar fyrir neglurnar. Nail Repair
nærir og styrkir neglurnar. Nail
Ironhand er sérstaklega
ætlað stuttum og
veikum nöglum og
Diamond Shine
gefur nöglunum
einstakan gljáa og
fallega áferð.