Orðlaus - 01.12.2003, Side 25
ekki upp og gerði aðra flóttatilraun sem heppnaðist. Hann komst
út fyrir bæjarmörkin áður en nokkur fattaði að hann væri horfinn,
breytti um nafn og settist að i litilli íbúð í Tallahassee, Florída.
Hann var þó á engan hátt breyttur maður og stuttu seinna var
ráðist á unga stúlku þar sem hún var sofandi i rúmi sínu á heimavist
í skólanum. Skömmu seinna fann lögreglan tvær stúlkur til viðbótar,
látnar í rúmunum sínum á heimavistinni. Það var ekki fyrr en Bundy
áreitti tvö börn sem hann náðist.
Kviðdómurinn dæmdi hann sekan fyrir öll morðin og
rafmagnsstóllinn beið hans og var hann tekinn af lífi við mikinn
fögnuð almennings, 24. janúar 1989.
Flestir töldu Harold Shipman vera ósköp venjulegan og
viðkunnanlegan heimilislækni, það er þar til upp komst að hann
hafði drepið meira en 200 sjúklinga sína og nú er hann þekktur
sem einn afkastamesti fjöldamorðingi sögunnar. Hann afplánar
nú 15 lífstíðardóma plús fjögur ár fyrir að falsa erfðaskrá síðasta
fórnarlambsins, Kathleen Grundy. Þrátt fyrir yfirþyrmandi sannanir
heldur hann enn fram sakleysi sínu.
Sem barn var Shipman ofverndaður af móður sinni sem ákvað
hverja hann mátti leika við og hverja ekki. Móðir hans þjáðist
einnig af lungnakrabbameini og hann sat hjá henni alla daga og
þegar hún lést var hann eyðilagður. Þegar hann varð eldri varð
hann mjög stjórnsamur, en var þó vinnusamur og kappsfullur með
mikið sjálfsöryggi og samstarfsmenn hans voru ánægðir með hann.
Þegar Shipman náðist við að skrifa út falsaða lyfseðla fyrir sjálfan
sig breyttist þó viðhorfið. Hann var skyldaður til að hætta á
læknastofunni og var sendur í meðferð, en ótrúlegt en satt var
hann mættur aftur tveimur árum seinna. Hann fékk vinnu sem
heimilislæknir á læknamiðstöð í Hyde á norður Englandi þar sem
flestir sjúklingar hans voru eldri konur sem bjuggu einar. Þær dáðu
allar lækninn sinn og héldu tryggð við hann jafnvel þó að sífellt
fleiri konur sem Shipman hafði annast fyndust látnar á heimilum
sínum.
Alan Massey, útfararstjóri í Hyde, fór að taka eftir skrýtnu mynstri
varðandi dauða sjúklinganna. 90 % líkanna voru full klædd þegar
sjúkrabíllinn kom. Ekkert í húsinu sýndi að viðkomandi hefði verið
eitthvað veikur, það leit út fyrir að sjúklingarnir hefðu bara dáið
sitjandi í stól eða í rúminu. Útfararstjóranum fannst þetta fremur
furðulegt. Enn furðulegra þótti mönnum að Katherine Grundy sem
var síðasta fórnarlamb læknisins hefði arfleitt hann að öllum eigum
sínum samkvæmt nýlegri erfðaskrá. Þegar Angela Grundy, dóttir
Katherine Grundy, fór að kynna sér málin betur fór boltinn að
rúlla. Erfðaskráin var illa skrifuð og illa orðuð og Angela, sem var
lögfræðingur, sá strax að hún var fölsuð. Rannsóknin á málinu var
gífurlega erfið þar sem mörg líkanna höfðu verið brennd strax
eftir andlátið en þær sannanir sem fundust þóttu þó nógu traustar
til þess að handsama lækninn og koma honum bak við lás og slá.
Shipman drap sjúklinga sína með því að gefa þeim of stóran skammt
af morfíni. Siðan falsaði hann allar skýrslur um sjúklingana og
skrifaði þar ranga sjúkdómsgreiningu til þess að hylja slóð sína.
Það voru engin merki um ofbeldi eða kynferðislega misnotkun á
likunum og enginn ástæða virtist vera fyrir því að sjúklingarnir
voru drepnir. Sumir sálfræðingar halda því fram að Shipman hafi
hatað konur, sérstaklega gamlar konur. Aðrir halda að hann hafi
verið að reyna að endurupplifa dauða móður sinnar. Shipman drap
af því að hann hafði gaman af því. Hann hafði gaman af því að
hafa völd til að stjórna lífi og dauða, en hann gerir það ekki lengur
þar sem hann var dæmdur árið 2000 til að sitja í Wakefield fangelsi
til æviloka.
Jeffrey Dahmer er einn viðbjóðslegasti fjöldamorðingi sögunnar
en hann leitaði uppi unga karlmenn, drap þá og nauðgaði siðan
líkum þeirra.
Hann hafði verið með dauðann á heilanum frá því að hann var
krakki og var dæmdur barnaníðingur en þegar hann náðist játaði
hann að hafa drepið 17 unga karlmenn.
Hann leitaði helst til samkynhneigðra karlmanna og fann hann
fórnarlömbin yfirleitt inni á börum. Hann lokkaði mennina heim
til sín með því að bjóða þeim pening fyrir að taka myndir af þeim.
Síðan gaf hann þeim svefnlyf, kyrkti þá og fróaði sér yfir lík þeirra.
Stundum geymdi hann ákveðna líkamsparta til minja.
Fyrsta fórnarlambið var Steven Hicks sem Dahmer kyrkti einungis
átján ára gamall. Hann skar líkið i parta og gróf þá bak við húsið
hjá sér. Yngsta fórnarlambið var Konerak, fjórtán ára. Hann náði
að sleppa úr klóm Dahmers og hljóp nakinn um göturnar þegar
tvær konur tóku eftir honum og hringdu á lögregluna. Lögreglan
mætti á svæðið, en það gerði Dahmer líka. Hann sagði lögreglunni
að Konerak væri 19 ára elskhugi sinn og að hann hefði bara drukkið
of mikið. Konerak gat ekki svarað fyrir sig þar sem Dahmer hafði
gefið honum svefnlyf fyrr um kvöldið og var því varla með rænu.
Dahmer náði að sannfæra lögregluna og fékk að fara með Konerak
heim til sín, en þar drap hann strákinn um leið, hafði samfarir við
lík hans og tók síðan af því myndir.
22. júlí 1991 náðist loks að handsama geðsjúklinginn. Þrítugur
maður stoppaði tvo lögreglumenn og sagði þeim að undarlegur
Ijóshærður maður hefði handjárnað sig í íbúð í nágrenninu og
hótað sér með hnífi. Lögreglumennirnir fóru með honum í íbúðina
og Dahmer hleypti þeim inn. Ibúðin lyktaði alveg hrikalega og
polaroidmyndir voru út um allt af sundurskornum líkum,
höfuðkúpum, og beinagrindum. Annar lögreglumannanna opnaði
ísskápinn og þar blasti við honum mannshöfuð sem starði á hann.
( frystinum voru þrír hausar til viðbótar ásamt höndum og fótum
sem búið var að sjóða. Á eldavélinni var pottur með mannsheila í
tómatsósu sem Dahmer hefur líklega ætlað að borða og inni á
baðinu voru kynfæri í fermalíni.
Öryggisgæslan í kringum réttarhöldin var einstök í sögu Milwaukee.
Leitað var að sprengjum I réttarsalnum og eins var leitað gífurlega
vel á öllum sem hleypt var inn í salinn. Blaðamenn, fjölskyldur
fórnarlambanna og almenningur mættu til að fylgjast með og
mikill fögnuður greip um sig þegar Dahmer var dæmdur í 957 ár
í fangelsi. Hann var barinn til bana í fangelsinu árið 1994.
Páll Björnsson - 22 ára.
Hver var fyrsti forseti íslands?
Það hefur verið hann þarna rithöfundur ...
Kristján Eldjárn.
Hvað eru margar sýslur á fslandi?
Þær eru sjö.
Hvað heitir varnarmálaráðherra
Bandaríkjanna?
Donald Rumsfield.
Hvaöan er Che Guevara?
Einhverstaðar í Suður Amerfku..Bolivíu
Hvað getur þú sagt mér um Önnu Lindh?
Ekki neitt .... ég veit ekki hver það er.
Stafana Kristfn Ólafsdóttir - 20 ára.
Hver var fyrsti forseti islands ?
Ég veit ekki.
Hvað eru margar sýslur á Islandi?
Átta.
Hvað heitir varnarmálaráðherra
Bandarfkjanna?
Ég veit það ekki.
Hvaðan er Che Guevara?
Kúbu.
Hvað getur þú sagt mér um Önnu Lindh?
önnu Lind??? Ég veit ekki hver það er.
Bergný Heiða Steinsdóttir - 17ára.
Hver var fyrsti forseti islands ?
Jón Sigurðsson.
Hvað eru margar sýslur á islandi?
Sex.
Hvað heitir varnarmálaráðherra
Bandaríkjanna?
Ég man það ekki.
Hvaðan er Che Guevara?
Kúbu.
Hvað getur þú sagt mér um Önnu Lindh?
Ekki boffs.
Haildór Gunnlaugsson - 26 ára.
Hver var fyrsti forseti íslands ?
Jón Sigurðsson.
Hvað eru margar sýslur á fslandi?
Þrettán.
Hvað heitir varnarmálaráðherra
Bandaríkjanna?
Það er hann hérna Madalen Albright.
Hvaðan er Che Guevara?
Hann er frá Kúbu.
Hvað getur þú sagt mér um Önnu Lindh?
Ég segi þaö ekki, það er leyndó !
Anna Kristfn Óskarsdóttir - 21 árs.
Hver var fyrsti forseti islands ?
Oh my god ... ég er ekki viss.
Hvað eru margar sýslur á islandi?
Þær eru má ég sjá örugglega í kringum 15.
Hvað heitir varnarmálaráðherra
Bandarlkjanna?
Ég veit ekki.
Hvaðan er Che Guevara?
Hann er frá Kúbu.
Hvað getur þú sagt mér um Önnu Lindh?
Ekki neitt ég veit ekki hver það er.