Orðlaus - 01.04.2005, Page 16

Orðlaus - 01.04.2005, Page 16
 "Það er flott, segðu honum að hann sé Pele og sendu hann aftur inn á." John Lambie, framkvæmdastjóri, þegar honum var sagt að sóknarmaður sem hafði fengið heilahristing vissi ekki hver hann væri. "Ég eyddi miklu af peningunum mínum í brennivín, gellur og hraðskreiða bíla. Afgangnum eyddi ég í vitleysu." George Best "Ég er ekki sáttur við sóknarleikinn, sumir leikmennirnir myndu ekki hitta rassgatið á belju með banjói." Dave Bassett "Ég fékk högg á vinstri ökklann, en eitthvað sagði mér að það hefði verið sá hægri." Lee Hendrie "Ég sé gulrótina í myrkrinu." Stuart Pearce "Ég gæti ekki verið hamingjusamari, en ég hef svo sem verið hamingjusamari." Ugo Ehiogu "Án þess að ég ætli að skella skuldinni alfarið á David Beckham þá er Ijóst að tapið var honum að kenna." lan Wright Tekið af fotbolti.net "Það er alveg pottþétt að ég vil að Brooklyn verði kristinn, ég veit bara ekki ennþá í hvaða trú." David Beckham "Við töpuðum vegna þess að við unnum ekki!" Ronaldo "Mig langar að spila fyrir ítalskt lið, eins og Barcelona." Mark Draper "Mér er alveg sama þótt við töpum hverjum einasta leik, svo f ramarlega sem við vinnum deildina." Mark Viduka "Ef ég gengi á vatni, þá myndu þeir sem gagnrýna mig segja að það væri vegna þess að ég væri ósyndur." Berti Vogts, þjálfari Þýskalands "Það sem ég sagði við þá í hálfleik væri óprenthæft í útvarpinu." Gerry Francis "Á undarlegan hátt virtist sem boltinn hengi í loftinu enn lengur, þegar þetta var endursýnt hægt." David Acfield "Newcastle, að sjálfsögðu, ósigraðir í síðustu fimm sigurleikjum sínum." Brian Moore "Það er þeirra mál hvað þeir segja um leikmenn liðsins, enginn vill vera gagnrýndur, sérstaklega ekki af leikmönnum sem munu eyða sumrinu í Disneylandi en ekki Japan". Phil Thompson þjálfari Liverpool um Kluivert og De Boer en hollenska liðið komst ekki á heimsmeistaramótið. LISTI, FORTIÐAR DRATTA Að vera í nýju sambandi er góð skemmtun. Það er svo margt að tala um. Langt fram eftir nóttu er talað og knúsast og talað meira. Tilfinningum deilt, leyndarmál afhjúpuð og spurninga spurt sem færa þig nær því hvers konar manni þú ert að hleypa upp á þig. Því fleiri sem kjaftaknúsinæturnar verða því fleiri verða samtölin og því framhleypnari verða spurningarnar. Og einn daginn þegar þér er farið að líða ansi vel í kjaftaknúsihorninu og ert hætt að vera á varðbergi gagnvart spurningum sem gætu komið þér i klandur... þá kemur hún... spurningin sem getur sett þig í The Klandur... Hvað ertu búin að sofa hjá mörgum? Ef þú ert búin að ræða lítillega um fyrrverandi kærasta þannig að hann veit um nokkra sem þú ert búin að sofa hjá en þú ert ekki viss um hversu marga þá skaltu reikna út hversu marga þú ert nú þegar búin að gefa upp og hversu margir þeir í raun eru og farðu tæplega milliveginn, svo er bara að krossleggja fingur. Best er að undirbúa sig lítillega fyrir þessar aðstæður. Skrifaðu niður lista fortíðardrátta og farðu vel ígegnum hann. Þaðeru vissir gæjar sem hægt er að strika út en aðra ekki. Fyrrverandi kærastar sem eiga eftir að koma í umræðuna verða að vera með, sá fyrsti verður líka að vera með. Hinsvegar má sleppa þeim sem þú hefur ekki séð í laaaaangan tíma og þú kemst upp með að Ef þú situr uppi með tölu á bilinu 10-13 skaltu leggja þig alla fram við að reyna að ná henni niður í 9. Eins stafs tala hljómar betur en tveggja stafa, og ég þarf ekki að taka það fram að tveggja stafa tala er betri en þriggja stafa. Umfram allt, sama hvaða tölu þú ákveður að gefa upp, þá skaltu alltaf segja töluna á þann máta að þér finnist hún vera doldið smá há. Ekki skammast þín eða afsaka þig, en ekki segja bara - já já elskan mín ég er búin að sofa hjá 50 manns og hafði bara gaman af því - mildaðu höggið og segðu - já ég veit þetta er kannski meira en það ætti að vera en mig langaði til að prófa og lifa lífinu og veistu ég líka þekki langanir mínar betur núna Ég get sagt ykkur það stelpur að þið viljið ekki vera óundirbúnar þegar kemur að þessari spurningu. Sumir karlmenn eru nefnilega ansi viðkvæmir fyrir því hversu há þessi tala er, því sumir karlmenn vilja helst að þeir séu eini maðurinn sem þú hefur nokkurn tímann verið með. Ekki að við eigum að skammast okkar fyrir þá ótrúlega heppnu menn sem voru þess heiðurs aðnjótandi að fá að taka aðeins í okkur. Ef þú ert sátt við þann fjölda sem þú hefur stunið með þá gefur þú fjöldann upp og vonandi hefur gæinn nægilega mikinn þroska til að taka því. Það verður samt að viðurkennast að mýtan um að konur eigi ekki að sofa hjá er enn til staðar og því er full ástæða til að fara varlega. Það eru bara sumir hlutir sem við reynum að "hlífa" nýjum gæja við ef svo má að orði komast. Við sitjum ekki heilu og hálfu dagana og ræðum um frábæra kynlífið sem við áttum með Dúdda upp um alla veggi, inni í lyftunni, ofan á píanóinu, úti á svölum þegar við fengum þrefalda fullnægingu og sleik á eftir. Við segjum frekar - niiiiii hann var ekkert spes... hann var so fljótur að fá það greyið - Alveg eins opinberum við ekki tölur um mál sem geta valdið varanlegum skaða. Við erum konur... við fegrum hluti. Það eru til aðferðir við að rúnna þessa tölu af svo hún hljómi ekki einsog skerandi öskur sem fyllir svefnherbergið, þeytirsænginni uppí loft og þér út á pall. Það versta sem þú getur gert í þessari stöðu er að virkilega svara spurningunni. - ég hef sofið hjá 34 strákum, Stráksa sem var rosa fínn, Gaura sem var ekki svo góður, Dúdda sem ég man eiginlega ekki eftir og síðan var það Blesi brjóstasjúki sem ... jarí jarí jarí - Einnig er það mjög óþægilegt þegar þið hafið nú þegar rætt gömul sambönd og hjartasorgir og þú manst ekki hversu mörg nöfn hafa nú þegar komið fram. Og einn daginn þegar þér er farið að líða ansi vel í kjaftaknúsihorninu og ert hætt að vera á varðbergi gagnvart spurningum sem gætu komið þér í klandur ... þá kemur hún ... spurningin sem getur sett þig í The Klandur... hvað ertu búin að sofa hjá mörgum? segja - nei hann þekkti vinkonu mína - ef þú óvart rekst á hann með nýja gæjanum. Einnig má taka út sona einnarnáttara sem eiga aldrei eftir að koma til tals. Þannig má væntanlega grynnka verulega á hópnum. Passiðykkur samt að draga ekki of mikið úr, þetta verður að vera raunhæf tala. Ekki segja 3 þegar hann veit allavega um 3 sem þú hefur verið í samböndum með, þá ertu að koma þér i bobba, því ekki má gleyma því að við búum nú einu sinni á íslandi þar sem allir þekkjast og allir vita allt um alla og allir segja öllum allt. og kann betur að meta þegar ég hitti frábæra menn einsog þig.... (slurp og slef) - Og alls ekki horfa upp og til vinstri á meðan þú hugsar þig um, það sýnir glögglega að þú ert að Ijúga. Annars finnst mér best að segja - eftir að hafa verið með þér þá man ég ekki til þess að hafa verið með nokkrum öðrum manni - Eigið góða hagræðingu Jóhanna

x

Orðlaus

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Orðlaus
https://timarit.is/publication/942

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.