Bændablaðið - 24.05.2005, Page 2

Bændablaðið - 24.05.2005, Page 2
2 Þriðjudagur 24. maí 2005 Eiríkur Davíðsson, bóndi á Kanastöðum Er að ljúka viðskipta- fræði í gegn- um fjarnám Eiríkur Davíðsson, bóndi á Kanastöðum í Rangárþingi eystra, hefur stundað nám í viðskiptafræði í Háskólanum í gegnum fjarnám og er á loka- sprettinum. Hann var með ISDN nettengingu þar til í janúar sl. að hann fékk Emax háhraða nettengingu og segist hann nú geta fengið allt efni sem hann þarfnast á Netinu. Meðan hann var með ISDN tenginguna gat hann ekki not- að þá fyrirlestra sem eru að- gengilegir á Netinu og þurfti að fara á Hvolsvöll eða Selfoss til að hlýða á þá. Hann segir muninn á ISDN og Emax teng- ingunum vera eins og á hjól- börum og dráttarvél með sturtuvagni. ,,Þegar maður er kominn með háhraðatengingu nýtir mað- ur sér Netið miklu meira bæði til upplýsingaöflunar, skemmtunar og fróðleiks. Nú er ekki rukkað fyrir hverja einustu sekúndu sem verið er á Netinu eins og gert var þegar maður var með ISDN tenginguna. Það er með ólíkind- um hve mikill áróður hefur verið rekinn fyrir ágæti ISDN tenging- arinnar fyrir dreifbýlið. Það er bara bull,“ segir Eiríkur Hann var spurður hvernig það hafi komið til að bóndi aust- ur í Rangárþingi hafi farið í við- skiptafræði í háskóla? Hann seg- ist ekki ætla að hætta búskap og fara að starfa sem viðskiptafræð- ingur. Hann hafi farið í námið sér til gamans og til að lífga uppá heilasellurnar, eins og hann kemst að orði, en bendir líka á að mikill fróðleikur sé í náminu. Eiríkur segir að námið muni nýtast honum í búskapnum við eigið bókhald og framtal. Svo sé möguleiki á að taka að sér bók- hald fyrir aðra, jafnvel að stofna bókhaldsstofu meðfram bú- skapnum. Strokkur ræskir sig! Á aðalfundi Sláturfélags Aust- urlands kynnti Sigurjón Bjarna- son, framkvæmdastjóri félags- ins, helstu niðurstöður úr könn- un sem staðið hefur yfir frá síð- asta hausti um möguleika þess að hefja á ný rekstur afurða- stöðvar á vegum félagsins. Hann sagði í samtali við Bændablaðið að vissulega væri hér ekki um borðleggjandi dæmi að ræða en sér sýndist þetta helsta leiðin til að hefja rekstur á nýjan leik. Á aðalfundinum, þar sem hug- myndin var kynnt, var henni al- mennt vel tekið en stefnt er að því að kynna þetta fyrir bænd- um með fundahöldum á öllu svæðinu. Héðan af verður það þó ekki fyrr en að loknum sauð- burði. Sigurjón segir að afkoma slát- urleyfishafa sé almennt ekki góð og því verði nýtt sláturhús og af- urðarstöð að móta sér sérstöðu. Sem dæmi um slíkt nefnir hann eftirfarandi fimm atriði. Tími frá aflífun til frystingar kjöts verði lengri en tíðkast hjá öðrum sláturleyfishöfum. Rann- sóknir frá Nýja-Sjálandi staðfesta að þriggja sólarhringa frestur til frystingar gefur mest bragðgæði. Nýtt hús hafi vottun fyrir lífræna framleiðslu, skrokkar verði snyrtir og teknir í sundur í sjö parta fyrir frystingu. Þess verði freistað að selja sem stærstan hluta fram- leiðslunnar ferskan, jafnt innan- lands sem til útlanda. Fyrirfram verði lögð drög að markaðssetn- ingu og hámarksnýtingu innmatar. Framleiðsluaðferðin verður svolítið öðruvísi en almennt gerist og gæðin eiga að verða meiri við það. Rætt er um að reisa sláturhús þar sem unnt verði að slátra 5-600 fjár á dag. Kjötsalur hússins verði af yfirstærð svo unnt verði að lag- era kjöt til að ná hámarks gæðum. Slátrað verði annan hvern dag, mánudag, miðvikudag og föstudag í sláturtíðinni. Í húsinu starfi 12 manns sem fái vissa þóknun pr. kg í laun sem skiptist innan hópsins í hlutfalli við unnar stundir. Þriðju- dagar, fimmtudagar og laugardag- ar verði nýttir til sundurtöku kjöts, snyrtingu þess og frágang fyrir frystingu. Kælirými verði fjórskipt og innréttað þannig að hámarksaf- köstum og hagræðingu verði náð. Sigurjón segir ljóst að fá þurfi öfluga fjárfesta til að koma að þessu. Í fyrirliggjandi drögum að áætlun er reiknað með að stofn- kostnaður nýs húss verði 160 milljónir króna, eigið fé af stofn- verði 90 milljónir króna og stofn- lán 70 milljónir króna. Gert er ráð fyrir að flytja út 25% af fram- leiðslunni. Meðalverð til bænda af innanlandsmarkaði verði 290 krónur pr. kg. Meðalverð til bænda til útflutnings verði 185 kr. á kíló. Sláturlaun verða 34 krónur á kíló. Sláturfélag Austurlands Rætt um að byggja nýtt sláturhús á Austurlandi Vatnsveitu- mælingar á Vestur- og Suðurlandi Vatnsveituráðunautur Bændasamtaka Íslands verð- ur á ferð um Vestur- og Suð- urland fyrri helming júní- mánaðar. Þeir sem telja sig þurfa á ráðleggingum hans að halda eru beðnir að hafa sam- band við næstu héraðsráðu- nauta nú fyrir mánaðamót og þeir koma óskunum til skila. Þeir sem ætla ekki í fram- kvæmdir fyrr en í haust eða jafnvel á næsta ári geta ekki gert ráð fyrir að ráðunauturinn geti komið þá, og því er best að fá hann sem fyrst. Mörg vandamál sem upp kunna að koma, þegar lögð er ný vatnsveita eða endurbætur gerðar á þeirri sem fyrir er, má leysa í gegnum síma. Eitt símtal er ódýrara en að fá ráðunautinn um langan veg til að skoða að- stæður, sem er þó stundum óhjákvæmilegt. Sími Óttars Geirssonar vatnsveituráðunaut- ar er 563 0301 og netfang og@bondi.is, Hann er við flesta daga frá kl. 8 - 12. Nám við LBHÍ - umsóknarfrestur að renna út Nú fer hver að vera síðastur til að sækja um nám við Landbún- aðarháskóla Íslands fyrir næsta haust, umsóknarfrestur rennur út 10. júní næstkomandi. Þegar hefur mikið skilað sér af um- sóknum auk þess sem mikið er um fyrirspurnir um nám við skólann. Boðið er upp á nám á þremur námsbrautum á há- skólastigi næsta haust: búvís- indabraut, náttúru- og um- hverfisfræðibraut og umhverfis- skipulagsbraut (landslagsarki- tektúr). Af starfsmenntabrautum skól- ans verða bara teknir in nemendur á búfræðibraut (bæði staðarnám og fjarnám) næsta haust, ekki verður innritað á garðyrkjubrautir fyrr en á næsta ári. Þær eru: blómaskreytingabraut, garð- og skógarplöntubraut, skógræktar- braut, skrúðgarðyrkjubraut, um- hverfisbraut og ylræktarbraut. Sumarbústaðabyggð í Sælingstungu Dalamenn vilja smíða bústaðina sjálf- ir og skapa atvinnu heima í héraði Sveitarstjórn Öxarfjarðar- hrepps hefur samið við fjóra aðila um að annast grenja- vinnslu og minkaveiðar á fjórum svæðum í hreppnum 2005 til 2008. Rúnar Þórar- insson, oddviti Öxarfjarðar- hrepps, segir að sveitarfélagið nái yfir gríðarlega stórt land- svæði og því hafi verið ákveð- ið að skipta því upp í fjóra hluta og semja við fjóra um veiðarnar. Rúnar segir að veiðarnar verði með svipuðum hætti og verið hefur nema að nú verði veiðimenn að hnitsetja (GPS) þau greni sem þeir finna. Með því móti má fá betri yfirsýn yfir það hvar dýrin halda sig og hægt að ganga að þeim grenjum vísum í framtíðinni. Hann segir að fyrir nokkrum árum hefðu menn farið út í að hnitsetja greni en þá var enn inni ákveðin staðsetningarvilla í GPS sem er kennd bandaríska hernum og því gafst merkingin ekki vel. Nú er búið að lagfæra villuna og merkingin orðin nákvæm. Það er nokkuð misjafnt eftir svæðum hve mikið er um ref í Öxarfjarðarhreppi. Rúnar segir að ekki sé eins mikið af ref á Sléttunni og var en fram í sveit- inni verði alltaf eitthvað vart við tófu og heldur meira en ver- ið hefur um árabil. Hins vegar segir hann að mink hafi snar- fækkað í Öxarfjarðarhreppi. Eina skýringin sem menn hafi á því séu meiri veiðar en áður enda hafa þær verið stundaðar af kappi undanfarin ár. Hlutur ríkisins í kostnaði við refa- og minkaveiðar á móti sveitarfélögunum hefur verið snarlækkaður. Rúnar segist telja að kostnaður hreppsins við þessar veiðar verði aldrei minni en 1200 til 1300 þúsund krónur á ári. Ætla að hnitsetja greni í hreppnum Leifshátíð Ákveðið hefur verið að Leifshátíð fari fram í sumar dagana 8. til 10. júlí n.k. að Eiríksstöðum í Haukadal Fjör í Flóanum Kynningarhátíð ferðaþjónustu í Austur-Flóa verður 27. - 29. maí. Sjá nánar heimasíðuna www.floi.is "Helst þyrfti að tryggja að engri lóð verði úthlutað nema með byggðum sumarbústað, sem Dalamenn hafa reist. Með því myndi veltan við uppbygginu svæðisins hlaupa á nokkrum hundruðum milljóna króna og mikil atvinna skapast fyrir heimamenn. Til þess að þetta takist sem best er mikilvægt að heima- verktakar taki sig saman um upp- bygginguna. Standa þarf þannig að málum að þegar framkvæmdum lýkur í haust á vegum sveitarfélags- ins, sem hér hefur verið gerð grein fyrir, að þá geti verktakar farið í uppbyggingu á svæðinu. Hér er um mikla hagsmuni að ræða fyrir Dala- menn, ekki einungis verður um mikla vinnu að ræða við uppbygg- ingu svæðisins heldur mun skapast ýmiss konar eftirspurn eftir þjón- ustu og vörum. Eigendur sumarbú- staðanna munu sækja í þjónustu og verslun á svæðinu. Uppbyggingin og eftirspurn eftir þjónustu mun skapa ný störf í Dalabyggð. Með aukinni eftirspurn má gera ráð fyrir að hægt verði að efla þjónustuna við heimamenn. Líklegt er að þegar sumarhúsasvæðið verður fullbyggt geti íbúum og dvalargestum í Dala- byggð fjölgað um a.m.k. 200 t.d. um helgar á sumrin. Hvaða áhrif má gera ráð fyrir að það hafi á verslun og þjónustu í sveitarfélag- inu?“ - sagði Haraldur í fréttabréfi sem gefið var út fyrir skömmu og dreift um Dalina. Nú eru Dalamenn að skoða skipulagningu sumarhúsabyggðar í Sæ- lingsdalstungu en búið er að staðfesta deiliskipulag. Rætt er um að svæðinu fylgi a.m.k. níu holu golfvöllur og RARIK er að kanna með heitt vatn. Haraldur L. Haraldsson, sveitarstjóri segir að stefnt sé á framkvæmdir síðar á árinu og að heimamenn smíði bústaðina og auki þannig á atvinnu heima í héraði. Samtals er um að ræða um 70 bústaði á svæðinu, þ.e. á Laugum og í Sælingsdalstungu.

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.