Bændablaðið - 24.05.2005, Blaðsíða 8
8 Þriðjudagur 24. maí 2005
Fyrir skömmu var í Hvanneyr-
arfjósi settur upp búnaður til að
blanda steinefnum og snefilefn-
um í drykkjarvatn kúnna á
Hvanneyri. Síðustu árin hafa
verið notaðir snefilefnastautar í
gripina en ákveðið var að skipta
þeim út fyrir fljótandi efnalausn.
Þessi lausn kostar svipað og
stautarnir en hefur þann kost að
upptaka gripanna fylgir drykkj-
armynstri þeirra og þannig er
auðveldara að fylgja nytháum
kúm eftir. Helsti gallinn við
blöndun í drykkjarvatn er að
víða eru smúlkranar á sömu
vatnslögn og drykkjarvatnið og
annars staðar eru fleiri en ein
aðskilin drykkjarlögn fyrir grip-
ina.
Til að hægt sé að skammta
steinefnin inn á vatnslögnina þarf
að setja rennslismæli inn á hana.
Gaman er að geta þess að fyrstu
tvo sólarhringana drukku gripirnir
í Hvanneyrarfjósinu 8600 lítra eða
um 4300 lítra á sólarhring. Þetta er
fyllilega í samræmi við þær leið-
beiningar sem við höfum gefið út:
Gripur l/dag
Kálfur 100 kg 10
Kvíga 200 kg 15
Kvíga 300 kg 20
Kvíga 400 kg 25
Geldkýr 35
Kýr í 10 kg nyt 70
Kýr í 20 kg nyt 85
Kýr í 30 kg nyt 95
Kýr í 40 kg nyt 105
Það þarf engum að blandast
hugur um að til að fullnægja
drykkjarþörf kúnna þarf mjög gott
brynningarkerfi. Ef kýrnar ná ekki
að drekka nóg kemur það mjög
fljótt niður á nytinni.
Til viðbótar þarf að huga sér-
staklega að afköstum drykkjar-
skála. Nauðsynlegt er að drykkjar-
skálarnar anni að lágmarki 10
l/mín. Þetta er auðvelt að mæla
með því að fylla drykkjarskál af
vatni, setja fötu undir skálina og
halda síðan ventlinum inni í eina
mínútu og mæla síðan hversu mik-
ið hefur runnið í fötuna. /Torfi
Jóhannesson Á síðustu 3-4 árum hefur auk-
ist mjög umræða um mismun-
andi fóðurþörf og fóðurnýt-
ingu einstakra dýra. Þessi
munur á einstaklingum innan
sömu tegundar er
reyndar vel þekktur
í öðrum búgreinum
eins og t.d. svína-
rækt. Til eru til-
raunir í loðdýra-
rækt sem staðfesta
að fóðurnýting loð-
dýra erfist milli ein-
staklinga sem þýðir í
raun að hægt er að
velja til ræktunar
einstaklinga sem
nota hlutfallslega lít-
ið fóður miðað við
heildina en vaxa
meir og skila í heild
meiri afurðum. Nú
er þessi eiginleiki
hins vegar ekki með í ræktun-
arstarfinu þar sem mjög erfitt
hefur verið að mæla fóður-
notkunina úti á búunum. Nú
er hins vegar komin tækni sem
gengur út á að stærð hvers fóð-
urklatta sem skammtaður er á
búrið úr fóðurvélinni ákvarð-
ast af tölvu sem stýrir fóður-
dælunni. Við tölvuna er tengd-
ur skanni sem les númerið á
korti dýrsins um leið og keyrt
er framhjá búrinu þannig að
tölvan veit hvaða einstaklingur
er í viðkomandi búri. Til að
mata tölvuna af
upplýsingum um
einstaklingana
þurfa bændurnir að
ganga einn hring í
húsunum að morgni
dags með tölvuna og
skrá inn hvort bæta
eigi við dýrið eða
draga úr fóður-
magninu. Allt eftir
því hvernig átið hef-
ur verið frá því síð-
ast var gefið og hvar
í framleiðsluferlinu
(vetrarfóðrun, með-
ganga, mjólkurskeið
eða vaxtarskeið)
viðkomandi dýr er.
Eftir árið er síðan hægt að sjá
hversu mikið fóður fór í við-
komandi dýr. Innan tíðar opn-
ast síðan fyrir þann möguleika
að keyra þessar upplýsingar
inn í skýrsluhaldsforritið og
þar með að taka tillit til þeirra
við val á einstaklingum til
ásetnings.
/EE
Líkamsþungi, frá kg 100 200 300 400 500 600 700
Hæð á brynningarskálar, hámarkshæð frá gólfi, m 0,5 0,5 0,6 0,6 0,7 0,7 0,7
Fjöldi gripa á brynningarskál 10 10 8 8 6 6 6
Hæð drykkjarkara, hámarkshæð frá fótþrepi, m 0,6 0,7 0,8 0,8 0,9 0,9 0,9
Dýpt drykkjarkara, m 0,2 0,3 0.4 0.4 0.4 0.4 0.4
Fjöldi gripa á hvern metra drykkjarkars 20 17 13 12 11 10 10
Lengd þreps, m (frá brún drykkjarkars til þrepbrúnar) 0,4 0,4 0,4 0,4 0,5 0,5 0,5
Hæð þreps, m 0,15 0,15 0,15 0,20 0,20 0,20 0,20
Breidd þvergangs með drykkjarkari, m 2,30 2,90 3,25 3,55 3,60 3,60 3,60
Hæð drykkjarstúta, m 1,00 1,15 1,30 1,40 1,45 1,50 1,50
En hvaða kröfur þarf að gera til brynningarkerfa. Á heimasíðunni www.fjos.is er að finna grein um
brynningu mjólkurkúa eftir Óðin Gíslason. Þar er m.a. eftirfarandi tafla:
Vatn fyrir nautgripi Einstaklings-
fóðrun minka
Hver er tilgangur ferðar ykkar til Ís-
lands nú?
Við viljum ræða samstarf okkar
um framleiðslu og dreifingu eyrna-
merkja í nautgripi og svín og kynnast
viðhorfum og reynslu bændanna af
merkingunum og sjálfum merkjun-
um. Einnig vildum við ræða við
bændur um vandamálið með aflitun
merkjanna og kanna umfang þess. Í
tengslum við einstaklingsmerkingar
sauðfjár höfum við einnig áhuga á að
kynna okkur nýjar reglur stjórnvalda
um þær. Með heimsókn á Tilrauna-
búið á Hesti og til nokkurra sauðfjár-
bænda gafst okkur kjörið tækifæri til
að kynnast sauðfjárrækt og sauðfjár-
merkingum. Fyrirtækið okkar hefur
vissulega áhuga á þeim markaði og
vill vera undir það búið þegar nýjar
merkingareglur sauðfjár taka gildi.
Hvernig finnst ykkur til hafa tekist
með merkingar nautgripa hér á
land.?
Ef aflitun merkjanna er frá talin
finnst okkur vel hafa til tekist.
Bændasamtökin og Os hafa útbúið
rafræna, örugga og einfalda ferla
þannig að pantanir, skráning upplýs-
inga, framleiðsla og dreifing á merk-
um gengur sjálfvirkt og vandkvæða-
laust. Nú höfum við ákveðið að
stytta pantanaferli merkja um helm-
ing og afgreiða merkjapantanir hálfs-
mánaðarlega.
Nú kemur í ljós að eyrnamerkin aflit-
ast hjá allmörgum kúabændum.
Hvað veldur þessum litarbrigðum?
Í þéttum fjósum, með ónóga loft-
ræstingu og loftstreymi úr haughús-
kjöllurum mengast fjósloftið af
ammoníaki og öðrum óæskilegum
lofttegundum. Þetta veldur litar-
brigðunum að meira og minna leyti.
Þar sem gripir eru á básum eða í
lausgöngufjósum með hauggeymslur
til hliðar er aflitun merkjanna lítil eða
hverfandi. Frumorsök litarbrigðanna
er þó að nú er af umhverfisástæðum
óheimilt nota þungmálmana blý og
kadmium í merkjalitinn, en þau gera
litinn stöðugan. Framleiðendur
plastsins í merkjunum hafa enn sem
komið er ekki náð að þróa umhverf-
isvæna lausn með sama stöðugleika
litarins og var meðan blý og kadmi-
um voru notuð.
Á fyrirtæki ykkar við sömu vandamál
að glíma á öðrum mörkuðum ?
Vandamálið tengist einkum
norðlægum slóðum þar sem naut-
gripir eru veturlangt í
einangruðum, þétt-
um og rökum fjós-
um. Vandamálið er
bundið við Noreg,
Svíþjóð og Ísland. Í
löndum, þar sem
loftslag og húsvist er
með öðrum hætti, er
vandamálið nánast
óþekkt. Við getum
nefnt að Os Husdyr-
merkefabrikk selur
til Bretlands um 600
þúsund nautgripa-
merki af nákvæm-
lega sömu gæðum
og úr sama efni og
þau sem íslendingar kaupa. Þar er
þetta vandamál óþekkt.
Hvaða úrlaus getið þið boðið ís-
lenskum nautgripabændum?
Við gerum okkur fulla grein fyrir
vandanum og vinnum markvisst að
því að finna varanlega lausn. Á veg-
um okkar og samstarfsaðila okkar fer
fram umfangsmikil rannsókna- og
þróunarvinna sem miðar að því að
finna framleiðsluaðferð sem kemur í
veg fyrir aflitun merkjanna án þess
að nota þurfi blý eða kadmium. Við
erum viss um að okkur muni takast
það en við þurfum einhvern tíma til
þess. Um leið og fullprófuð, ásætt-
anleg lausn finnst munum við bjóða
íslenskum bændum, sem eru með ill-
læsileg merki, að framleiða ný þeim
að kostnaðarlausu.
Aflitast eyrnamerki í sauðfé ?
Við framleiðum yfir tvær millj-
ónir sauðfjármerkja sem seld eru í
Noregi og Svíþjóð. Þrátt fyrir að í
þessum löndum sé sauðfé á innistöðu
í þéttum húsum veturlangt er lesan-
leiki merkjanna alls ekki vandamál.
Loftmengun í fjárhúsum virðist mun
minni en í fjósum.
Hefur fyrirtæki ykkar áhuga á að
selja íslenskum bændum sauðfjár-
merki þegar reglur um einstaklings-
merkingar taka gildi hér á landi?
Við erum stærsti framleiðandi
sauðfjármerkja á Norðurlöndum og
höfum áratuga reynslu af merking-
um. Vissulega höfum við áhuga á að
nýta reynslu okkar og markaðsstöðu
á Íslandi og vonumst til að geta átt
góða samvinnu við sauðfjárbændur
og sláturleyfishafa í því efni.
Sauðfjárbændur eru áhugasamir
um að nota rafræn merki í sauðfé.
Hvenær reiknið þið með að geta boð-
ið fullprófuð rafræn eyrnameri?
Frá og með næsta hausti, 2005,
getum við boðið fullprófað, heild-
stætt rafrænt merkjakerfi ásamt les-
búnaði. Lokaprófun fer nú fram í
samvinnu við GILDE NORSK
KJÖTT - samtök norskra sláturhúsa.
Nýlega tókum við þátt í útboði á
sauðfjármerkjum í Danmörku og
nýju rafrænu sauðfjármerkin frá okk-
ur urðu fyrir valinu í danska opinbera
merkjakerfinu. Framleiðsla hefst nú
í sumar.
Hvað munu rafrænu merkin kosta
samanborið við venjuleg eyrna-
merki?
Miðað við það magn sem mark-
aðurinn spyr um í dag reiknum við
með að þau kosti 3-4 sinnum meira
en venjuleg merki. Við erum sann-
færð um að hluti af verðinu skili sér í
auknu lesöryggi hjá bóndanum, í
ræktunarstarfinu, heilsufarsskrán-
ingu dýralækna og hjá sláturhúsun-
um.
Að lokum?
Eftir þau fjölmörgu samtöl sem við
áttum við fagstarfsmenn landbúnað-
arins og ekki síður heimsóknir til
bænda erum við mjög hrifin af bú-
fjárrækt ykkar. Það sem við sáum
einkenndist af fagmennsku á öllum
sviðum og sérlega ánægjulegt var að
kynnast því hve íslenskir bændur eru
stolt og lífsglöð starfsstétt. Móttökur
voru alls staðar höfðinglegar og ferð-
in var okkur afar lærdómsrík.
Komu til landsins til að ræða
við bændur um aflitun merkja
Tvö ár eru síðan samstarf hófst við merkjaframleiðandann Os Husdyr-
merkefabrikk AS í Noregi um framleiðslu og dreifingu á forprentuðum
eyrnamerkjum í nautgripi. Fyrir skömmu voru framkvæmdastjórinn,
Wenche Wikan Ligård, og Egil Wikan verkefnisstjóri og stjórnarmaður
stödd hér á landi. Hingað komu þau til að hitta starfsmenn Bændasam-
takanna, landbúnaðarráðuneytisins og yfirdýralæknis. Þau heimsóttu
nokkra kúa- og sauðfjárbændur og ráðunauta í Eyjafirði og á Vestur-
landi, forsvarsmenn sláturleyfishafa og Norðlenska og framkvæmda-
stjóra LK til að kynnast viðhorfum til einstaklingsmerkinga nautgripa.
Tíðindamaður Bændablaðsins hitti þau Wenche og Egil að máli.
Os Husdyrmerkefabrikk AS
Eignarhald: Hlutafélag fjölskyldu í eigu systranna Wenche Wikan Ligård og
Elisabeth Wikan Heidtmann sem eru þriðja kynslóð frá stofnanda.
Stofnað: Skömmu fyrir seinna stríð. Fyrst sem hluta- eða tómstunda-
starf við hlið sauðfjárbúskapar.
Dótturfélög: Stallmästaren AB í Svíþjóð er í eigu fyrirtækisins. Það er
markaðsleiðandi fyrirtæki í sölu, framleiðslu og dreifingu merkjabúnaðar á
sænska markaðnum.
ID&Tracebak Systems AS i Noregi er fyrirtæki sem þróar REID-vörur
fyrir búfé, rafræn eyrnamerki, vambarörmerki og lesbúnað. ID&T er einnig
markaðsfyrirtæki samsteypunnar utan Norðurlandanna.
Framleiðsluvörur: Venjuleg og rafræn eyrnamerki fyrir allar búfjárteg-
undir (nautgripi, sauðfé, geitur, svín, hreindýr og hjartardýr). Framleiðsla á
sauða- og kúabjöllum, hálsböndum og útbúnaði fyrir búfjárrækt.
Aðal markaðssvæði 2004: Noregur, Svíþjóð, Danmörk, Ísland, Bretland
og Holland.
Velta 2004: NOK 32 milljónir hjá Os og SEK 11 milljónir hjá
Stallmästaren.
Wenche Wikan Ligård, og Egil Wikan