Bændablaðið - 24.05.2005, Síða 13
Þriðjudagur 24. maí 2005 13
Búnaðarsamband Suðurlands
og Atvinnuþróunarsjóður Suð-
urlands stóðu í vetur fyrir nám-
skeiði í frumkvöðlafræðslu á
Suðurlandi. Á námskeiðinu var
kennt m.a. hvernig koma megi
auga á viðskiptatækifæri í nán-
asta umhverfi og hvernig megi
nýta sér það í ábataskyni. Kennd
var mótun stefnu og markmiða-
setning, grundvallaratriði við
gerð viðskiptaáætlunar, vöru-
þróun, markaðsmál, hvernig
gera eigi fjárhagsáætlanir, fjár-
mögnun viðskiptahugmynda,
sala og samningatækni. Sigurð-
ur Torfi Sigurðsson, Stokkseyr-
arseli, hlaut verðlaun fyrir bestu
viðskiptaáætlunina; að setja á
stofn járningaskóla þar sem
kenndar verði járningar og hóf-
umhirða.
Sigurður er rafvirki að mennt
en fór að læra járningar úti í
Bandaríkjunum þegar kona hans,
Ragnhildur Sigurðardóttir, var þar
við masters- og doktorsnám í vist-
fræði. Hann vinnur nú eingöngu
við járningar. „Það er mikil þörf á
að kenna erlendum járningamönn-
um járningar íslenska hestsins,“
segir Sigurður, „af því hann hefur
sérstakar gangtegundir. Rétt járn-
ing hests hefur mikil áhrif á gang
hans. Það er svo sem ekki mikið
mál að ríða hestum ójárnuðum á
moldargötum, en allt þar fyrir utan
kallar á járningu. Ég vinn mest fyr-
ir tamningamenn og þeir upplýsa
mig um gangtegundir hestsins og
gangvandamál og ég haga járning-
unni út frá því. Víða erlendis er
staf járningamannsins meira metið
en hérlendis og þar sem best lætur
er það járningamaðurinn sem
stjórnar ferlinu og segir til um hve-
nær hann á að koma næst og hvaða
hestar eiga þá að vera tilbúnir.“
Þau hjón eru að byggja upp á
Stokkseyrarseli og stefna á að
opna járningaskóla þar á næsta ári.
„Við munum bjóða bæði upp á
grunnnámskeið og styttri kúrsa
með erlendum gestakennurum. Ég
býst allt eins við að um helmingur
verði erlendir nemar að læra fyrir
íslenska hesta.“
Sigurður Torfi heitjárnar hestana. Eftir hófsnyrtinguna setur hann glóandi skeifu á hófinn og brennir þannig sæti
fyrir hana, kælir hana síðan og neglir á hefðbundinn hátt.
Járningaskóli í mótun
Laugavegi 29 • Sími 552 4320
www.brynja.is • brynja@brynja.is
Nýtt frá
Borðsagir
ts 315 GT
3 hö mótor - 220W
12“ sagablað
verð frá 47.890verð frá 49.730,-
WECKMAN STURTUVAGNAR
H. Hauksson ehf.
Suðurlandsbraut 48
Sími 588 1130
Fax 588 1131
Verðdæmi:
6 tonn
Verð kr. 497.000 með virðisaukaskatti
10 tonn
Verð kr. 696.000 með virðisaukaskatti
12 tonn
Verð kr. 788.000 með virðisaukaskatti
(Athugið! Fleiri gerðir í boði: 1,5 - 17 tonn)