Bændablaðið - 24.05.2005, Qupperneq 15

Bændablaðið - 24.05.2005, Qupperneq 15
Þriðjudagur 24. maí 2005 15 Ferðaþjónusta bænda keypti á dögunum 570 fermetra hæð við Síðumúla 2. Helmingur hæðarinnar er nú þegar í útleigu. Segja má að húsnæðið sem kemur í hlut Ferðaþjónustu bænda sé fokhelt en Sævar Skaptason framkvæmdastjóri sagði að ætlunin væri að flytja inn í nýja plássið í haust. „Kaupin á húsnæðinu - sem er á annarri hæð - eru mikilvægt skref fyrir Ferðaþjónustu bænda og að þeim hefur verið stefnt í langan tíma,“ sagði Sævar og bætti því við að ferðaþjónustubændur hefðu safnað í sjóð til að mæta þessum útgjöldum. Þegar allt er reiknað saman má segja að kostnaðurinn á mánuði verði áþekkur því sem fyrirtækið greiðir mánaðarlega í leigu á núverandi stað. Sævar sagði að útlitið í sumar væri ágætt. „Þetta verður ekkert metár. Bókanir fóru seint af stað en það er í fullkomnu samræmi við ferðamáta nú til dags,“ sagði Sævar. „Sala okkar á ferðum til útlanda hefur gengið samkvæmt björtustu vonum. Með tilkomu Bændaferða hefur Ferðaþjónusta bænda náð að festa sig enn betur í sessi sem skipulagsaðili fyrir utanlandsferðir,“ sagði Sævar. Ferðaþjónusta bænda festir kaup á húsnæði Hingað inn ætlar Ferðaþjónusta bænda að flytja í haust, segir Sævar Skaptason, þar sem hann stendur í fokheldu húsnæðinu. Á innfelldu myndinni má sjá Síðumúla 2.

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.