Bændablaðið - 24.05.2005, Blaðsíða 21
Þriðjudagur 24. maí 2005 21
Austurvegi 69 - Selfossi - Sími 4 800 400
www.jotunn.is
Heyvinnutæki
í öllum
stærðum frá
Pöttinger
Vicon rúllubindivélar
fastkjarna og lauskjarna,
með eða án
3Dpack
plastsparnaðarbúnaði
Á árum áður urðu bíleigendur á leið um Mýrdalss-
and oft fyrir miklu tjóni vegna sandfoks. Nú heyrir
það næstum sögunni til vegna samstarfs Vegagerð-
arinnar og Landgræðslunnar um heftingu sand-
foks á þjóðveg 1 sem hófst 1987.
Nú eru tvær sáðvélar Landgræðslunnar að
störfum á Mýrdalssandi að sá lúpínufræi, melfræi
og öðru grasfæri. Salvar Júlíusson, bóndi í Álfta-
veri, ber svo áburð á sáningar síðustu ára eins og
hann hefur gert í mörg undanfarin ár. Á þessu ári
verða borin á um 100 tonn af áburði og sáð í nærri
100 hektara af foksandi.
Ýmsar rannsóknir á uppgræðslutækni hafa
verið á vegum Landgræðslunnar við þessar ein-
staklega erfiðu aðstæður. Þessar aðgerðir eru mik-
ið hagsmunamál fyrir alla sem fara yfir Mýrdalss-
andinn, sem er hátt í 40 þús. hektarar.
Sáð í 100 hektara á Mýrdalssandi
Salvar Júlíusson, bóndi í Álftaveri, við vinnu sína á Mýrdalssandi Bændablaðið/Jónas