Bændablaðið - 24.05.2005, Síða 27
Þriðjudagur 24. maí 2005 27
Ársfundur
2005
Ársfundur Lífeyrissjóðs bænda verður haldinn í Skála á 2. hæð í Bændahöllinni
við Hagatorg í Reykjavík, þriðjudaginn 14. júní 2005 og hefst kl. 16:00.
Dagskrá ársfundarins verður eftirfarandi:
1. Flutt skýrsla stjórnar
2. Kynntur ársreikningur
3. Gerð grein fyrir tryggingafræðilegri úttekt
4. Gerð grein fyrir fjárfestingarstefnu sjóðsins
5. Önnur mál
Allir sjóðfélagar, jafnt greiðendur sem lífeyrisþegar, eiga rétt til fundarsetu.
Sjóðfélagar eru hvattir til að nýta sér rétt sinn og mæta á ársfund sjóðsins.
Þeir sem vilja nýta sér þennan rétt þurfa að tilkynna það skrifstofu sjóðsins í
síðasta lagi 7. júní og munu þeir fá afhent fundargögn í upphafi fundar.
Lífeyrissjóður bænda
!"#
$%&
'''
(
)*+",*--.#/ # .
#* * Á Hvanneyri standa yfir miklar
byggingaframkvæmdir á íbúð-
arhúsnæði. Sveinbjörn Eyjólfs-
son, oddviti hreppsnefndar
Borgarfjarðarsveitar, sagði í
samtali við Bændablaðið að í
fyrra hafi verið úthlutað 23 lóð-
um undir parhús. Þá eru tvö ein-
býlishús í byggingu og nemenda-
garðar með 15 íbúðum. Ætlunin
er að þessum byggingafram-
kvæmdum ljúki á þessu ári.
Það eru byggingafyrirtækin
Akur hf. á Akranesi og ESK ehf.
sem byggja parhúsin og ætla hvort
heldur sem er að selja þau eða
leigja. Sveinbjörn segir að þessar
húsnæðisbyggingar séu að hluta til
vegna mikillar uppbyggingar
Landbúnaðarháskóla Íslands og
þess að margt fólk vill búa í sveit
þótt það sæki vinnu annað. Hann
bendir á sem dæmi að járnblendi-
verksmiðjan á Grunartanga ætli að
fjölga starfsfólki og að það sé lítið
mál að búa á Hvanneyri og sækja
vinnu á Grundartanga. Fyrrnefnd
byggingafyrirtæki ætla að vera til-
búin með húsnæði að bjóða upp á
þegar þetta gerist.
Miklar byggingafram-
kvæmdir á Hvanneyri
Á Hvanneyri er verið að byggja tugi íbúða.